Skattastefna ríkisstjórnarinnar! Sannleikurinn kemur í ljós!

 

"Í OECD ríkjunum lækkuðu tekjuskattar einstaklinga úr 10,5% af VLF í 9,1% frá 1990 til 2004. Á sama tíma hækkaði þetta hlutfall á Íslandi úr 8,3% í 14,3% eða um 6 prósentustig og var hlutfallið á Ísland þá orðið það fjórða hæsta í OECD." Indriði H. Þorláksson

                                                         

"Því hefur verið haldið fram að skattbyrði hafi ekki hækkað því kaupmáttur ráðstöfunartekna hafi aukist. Slík röksemdafærsla er byggð á misskilningi því skattbyrði getur hækkað án þess að leiða til skerðingar á kaupmætti einstaklinga ef tekjur þeirra vaxa á sama tíma meira en sem nemur verðlagsbreytingum. Hækkun skattbyrði við slíkar aðstæður þýðir þó að kaupmáttur ráðstöfunarteknanna hækkar minna en kaupmáttur tekna fyrir skatt. Einstaklingarnir sjá á eftir stærri hluta af kaupmætti tekna sinna til hins opinbera en áður var sem þýðir að skattbyrðin hefur aukist."  Indriði H. Þorláksson

 

 

Skrýtinn bloggari, landgönguliðinn! Zero framsókn!

Sveinn Hjörtur er skrýtinn bloggari.  Hann leyfir ekki athugasemdir á blogginu sínu, en svo eru önnur blog útbíuð af athugasemdum sem hann skrifar.  En það verður að virða honum það til vorkunar að hann er framsóknarmaður!

Lúnkinn húmoristi, Jóhannes!

"Strikið yfir siðleysið" -áskorun til sjálfstæðismanna í Reykjavíkurkjördæmi suður.

Með því að strika Björn Bjarnason út á sem sagt að þurrka út siðleysi djélistans.  Það er nú gott að BB hefur breytt bak, en hræddur er ég nú um að siðleysi sjálfstæðisflokksins þurfi meira pláss en eitt bak.


Launaskrá Morgunblaðsins?

Er hringt út eftir launaskrá Morgunblaðsins í þessum skoðanakönnunum Blaðsins?  Mér datt það nú helst í hug þegar ég renndi yfir Blaðið í nótt.  Les aldrei Blaðið, nema kannski eina og eina klausu, þó dóttir mín, sú eldri, elskuleg vinni þar.  Það er svo hrútleiðinlegt.  Reyndar virðist það vera sérstakt keppikefli Þorsteins Pálssonar að gera Fréttablaðið jafnleiðinlegt.  En þannig eru víst "virðuleg" íhaldsblöð, leiðinleg, einsog allt íhalds!
mbl.is Ríkisstjórnin héldi velli skv. könnun Blaðsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Harmónikkuspil?

Ég verð sennilega að fara að líta í kringum mig eftir harmonikku og spilakennara. Maður fær víst frían farseðil úr landi spili maður á harmónikku niðrí bæ. Hlýtur að duga að kunna eitt lag. Ætli sé ekki ágætt að búa í Noregi? Þar er að minnsta kosti vinstri stjórn og vel tekið á móti aðkomumönnum. Nei, grínlaust, er það ekki alveg óbærileg tilhugsun að sjá fram á sömu fjölnota siðlausu (sbr. augl. Jóa í Bónus) ríkisstjórnina í fjögur ár en? Best að labba sér útí í Tónabúð!
mbl.is Ríkisstjórnin með meirihlutafylgi skv. könnun Fréttablaðsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eyðum áfram-Ekkert stopp.

Hvaðan koma allir þessir peningar sem framsókn er að nota í að kaupa sér fylgi?  Ekki þó úr vasa okkar skattgreiðenda?  Ég fyrir mitt borga ekki skatta til að risaeðlan geti keypt sér atkvæði. En þú?
mbl.is Samið um reiðhöll í Hrunamannahreppi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef stjórnin fellur....

...ekki fæ ég mér harmónikku og fer í bæinn!

Og kaffibandalagið! ZERO FRAMSÓKN! Allt er betra en íhaldið?

Nú geta allir Íslendingar sannfærst um að Stefán Ólafsson hefur rétt fyrir sér í skattamálaumræðunni!  Það staðfestir helsti sérfræðingur um íslensk skattamál, Indriði H. Þorláksson.  Nú hlýtur Hann-ess að reyna að níða af honum æruna, einsog hann reyndi með Stefán.  Hvað segir Helbláa hyskið nú?  Ætli það sé byrjað að hóta Indriða?  Einsog ýmsum háskólaborgurum hér áður!

Hellum uppá könnuna, félagar!  Nú er lag!  Fellum stjórnina!


Næst í framboð?

Jónas er sem kunnugt er Sjálfstæðismaður.  Kannski sjáum við hann næst opinberlega á framboðslista Sjálfstæðisflokksins, sbr. Árna í öðru sæti?
mbl.is Þriggja ára fangelsisdómur vegna sjóslyss staðfestur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yahoo!

Og engin stóriðja?  Geir hlýtur að hafa sagt nei við Yahoo!  "Við ætlum nefnilega í byggja álver á hverju krummaskuði hringinn í kringum landið, já, og olíuhreinsunarstöð!  Eitthvað skítugt og óhreint!"
mbl.is Yahoo kannar möguleika á netþjónabúi hér á landi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjárlögin og skuldirnar!

Hvernig stendur á því, að á fjárlögum 2007 er gert ráð fyrir 20.6 milljörðum í vaxtagreiðslur og lántökukostnað?  Er ekki búið að greiða allar skuldirnar?  Og ríkissjóður á bullandi blússi og rífandi tekjuafgangur og nóg af peningum?

Kaffibandalagið!

Nú þarf sko að fara að hella uppá könnuna! 

Allir sem eru í vafa ættu að les blog: Indriði Haukur Þorláksson.  Indriði flettir ofan af lygi stjórnarinnar um skattamálin!


mbl.is Samfylking og VG bæta við sig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og veruleikinn...

...er algert aukaatriði!
mbl.is „Ímynd og innihald spila saman til lengri tíma litið"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Sjálfstæðisflokkurinn hefur alltaf verið góður við gamalt fólk."

Það er að sjálfsögðu ekkert nema helvítis kergja í gamlingjunum að hafa það ekki jafn gott og Sjálfstæðismenn segja að þeir hafi það!

Hættulegir glæpamenn?

Jón H.B. hafði fyrir því áreiðanlegar heimildir, í Danmörku og Noregi, að Rúmenarnir væru á vegum skipulagðra glæpasamtaka.  Löggan í Noregi hefur ekkert frétt.  Verður ekki að láta þá vita, Jón?
mbl.is Norðmenn skipta sér ekki af komu Rúmena
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnarsinnar í fýlu! Og farnir á tauginni!

Mikið hlakka ég til skoðanakannana morgundagsins!

Áfram VinstriGræn!  Áfram Samfylkingin!  Áfram saman!


mbl.is Ríkisstjórnin fallin samkvæmt nýrri skoðanakönnun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og Bingi...

_blingi...hoppaði á það!

"Sjálfstæðisflokkurinn toppar á réttum tíma."

Kárahjúkaviðundrið.  sign

Heybrók!

Að þora eða ekki þora, það er spurningin!
mbl.is Skipun í embætti ríkissaksóknara frestað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góðhjartaðir Íslendingar!

Var okkur ekki öllum kennt að það væri ljótt að skilja einhvern útundan?  Nú verður úrtakið að velja Íslandshreyfinguna og frjálslynda næst!
mbl.is Fylgi Framsóknarflokksins tekur stökk
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband