Öflugt atvinnulíf-undirstaða velferðar?

Er það þetta sem Jón stopp á við? Kannski heimilisníðingurinn, djelistinn, vilji tala við okkur um þetta ? Sorry, of lítið og of seint!
mbl.is 48 manns sagt upp störfum hjá Bakkavík í Bolungarvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auglýsingar ríkisstjórnarflokka ójafnaðarins!

GeirHHaardemarxbureaucrat                     Jon-Sigurdsson_1

MEIRI VELFERÐIN ! 

Það er greinilegt að kjósendur "kaupa" ekki kosningaauglýsingar framsóknar: Áfram árangur-ekkert stopp/öflugt atvinnulíf-undirstaða velferðar.  Það vill svo til, að kjósendur eru með fullu viti, þess vegna taka þeir ekki mark á stoppáróðri framsóknar. Við vitum sem er að það er líf eftir framsókn; lífið mun hafa sinn gang og svo mun atvinnulífið einnig. Talandi um kröftugt atvinnulíf. Ætli Jón stopp hafi ekkert heyrt frá Vestfjörðum og Norðurlandi-Vestra. Í því kjördæmi hefur hagvöxtur  verið neikvæður um árabil, sem þýðir að þar hefur ríkt samdráttur. Og framsóknarmenn eru seinheppnir á öllum sviðum: öflugt atvinnulíf-undirstaða velferðar. Miðað við ástand velferðarkerfisins hlýtur atvinnulífið að vera í lamasessi.  Veruleikinn er sá að í öllu góðærinu hefur allt velferðarkerfið drabbast niður og er því í hinum mesta ólestri! Landspítalann vantar meira en milljarð á ári til að geta sinnt verkefnum sínum og öll vitum við um ástandið í málefnum geðfatlaðra. Stjórnin hefur lækkað barnabætur og haft þannig 10 milljarða af barnafjölskyldum landsins. Stjórnin hefur lækkað raunvirði persónuafsláttar og haft þannig 35 milljarða af skattgreiðendum á 12 árum. Lífeyrir hefur ekki hækkað í takt við launahækkanir og þannig hefur ríkisstjórnin haft 40 milljarða af öldruðum. Samtals eru þetta 85 milljarðar. Það er von að Geir H. Haarde segi að ríkissjóð muni um hverja 1000 krónu hækkun á persónuafslættinum, en einstaklinginn muni ekkert um hann! Kannski eru kjósendur á annari skoðu.

71% landsmanna telur að ójöfnuður hafi aukist í landinu. Kaupmáttur lífeyrisþega hefur aðeins aukist um 20-25% á 12 árum!

TÖLUM SAMAN!

Nú auglýsir hinn ójafnaðarlokkurinn:  TÖLUM SAMAN!  Og minnir á ofbeldisfullan heimilisföður sem er búinn að níðast á fjölskyldu sinni í 12 ár og vill nú lofa bót og betrun!  Á að fara tala kjósendur til útundir húsvegg núna rétt fyrir kosningar! "Ég lofa að vera góður." þVÍ MIÐUR: OF LÍTIÐ, OF SEINT! 

Því miður! Ég hef ekkert við ykkur að tala!


Það sem að er stefnt!

Til hvers eru annars svona vopnakerfi? Þó ekki til pönnukökubaksturs. Er ekki meiningin að skemma og eyðileggja og drepa með þessum vopnum?
mbl.is Pútín segir eldflaugavarnakerfi geta leitt til „gagnkvæmrar eyðileggingar"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mynd handa Margréti.

religions

Mynd handa MögguDóru.

religions

Allsherjarnefnd.

Hvað er svo sem ein tengdardóttir milli vina?  Það veit auðvitað enginn í allsherjarnefnd hvar Jónína á heima!

Og trúi þeir sem vilja!

Ekki geri ég það!
mbl.is Nefndarmenn hafi tekið fram að þeim hafi verið ókunnugt um tengsl Jónínu og umsækjandans
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stórmerkileg niðurstaða!

Útkoman úr þessari skoðanakönnun er merkileg að því leyti, að 55% kjósenda sjálfstæðisflokksins eru ósammála flokknum, þannig að til að kjósa í samræmi við sínar eigin skoðanir þurfa þeir nú að velja sér annan flokk til að kjósa. Þ.e.a.s. ef þeir eru þeirrar skoðunar að ójöfnuður sé slæmur. En kannski eru þeir þeirrar skoðunar að ójöfnuður sé af hinu góða og þá er rétt að þeir kjósi bara sjálfstæðisflokkinn áfram. Sjálfstæðisflokkurinn er nefnileg flokkur ójöfnuðar, nema rétt fyrir kosningar!
mbl.is Fólk telur ójöfnuð meiri nú
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skipta þarf um ríkisstjórn!

Er ekki ljóst, að til að þetta markmið náist þarf að skipta um ríkisstjórn. Ekki næst markmiðið ef spítalinn verður áfram í fjársvelti, eða hvað. Svo þarf að fara drífa í að byggja yfir spítalann áður en stjórnmálamennirnir nota peningana í annað. Einar Oddur sagði í vetur að nota þyrfti símapeningana til að réttta af ríkissjóð eftir að þenslutímabilinu lyki. Hann hefur verið formaður og  varaformaður fjárlaganefndar lengur en menn muna, þannig að hann veit hvernig búið er að gera ríkissjóð háðan þenslu.
mbl.is LSH komist í hóp fimm bestu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 27. apríl 2007

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband