Athyglisverð þögn. Beðið eftir línunni?

Það er athyglisvert, hvað hljótt er um djélistabloggara þegar svona fréttir berast.  Eru þeir að bíða eftir Hannesi með sínar venjulegu dylgjur og innantómu upphrópanir og fullyrðingar?  Eru hægriöfgamenn búnir að skrifa sig útaf borðinu í skattamálum?  Ekkert eftir nema fullyrðingar um að þessi eða hinn af ekki vit á málinu og kunni ekki að reikna?  Minnir á þögn þessara sömu bloggara fyrst eftir að fréttir bárust af valdaráni Ólafs F. hins niðurdregna!  Þá var beðið eftir línunni, sem fannst að lokum í ranghölum Vallhallar!  Þar sem dauðir rísa að kveldi.

Ingibjörg Sólrún skipar sendiherra!

ingibj

Utanríkisráðherra er loksins að átta sig á aðalhlutverki utanríkisráðherra!  Það er að skipa vini sína úr pólitíkinni í stöðu sendiherra! Að vísu lét hún tvo fylgja með til að tryggja heimilisfriðinn á Rauðarárstígnum.  Davíð Oddsson, einkavinur Ingibjargar, var mikið duglegri.  Hann skipaði 9, skrifa og segi níu, sendiherra á nær jafnmörgum mánuðum (menn hafa nú fengið sér í glas af minna tilefni).  Þar af skipaði Davíð eiginkonu vinar síns og samherja, Friðriks Sófussonar, í embætti sendiherra  Hún situr nú í Pretoríu við að skrifa bækur um hugðarefni sín, enda ekkert annað að gera í sendiráði Íslands í Pretoríu.  Mun stefnt að því að skipa Friðrik sendifulltrúa við sama sendiráð innan tíðar, svo sendiherrann þurfi ekki að sitja ein við skriftirnar.  Allir þessir sendiherrar, sem Davíð skipaði, reyndust óþarfir, og fóru þeir að segja af sér einn af öðrum fljótlega eða voru fluttir í önnur störf.  Tveir fóru á eftirlaun árið eftir að þeir voru skipaðir.


mbl.is Segir sendiherra of marga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

OECD kann ekki að reikna! Ekki frekar en Stefán Ólafsson!

c_arni_mathiesen  Segir Þessi.  En kann hann það?

OECD hefur ekkert vit á skattamálum!

hannesholmsteinn2  Segir Hannes á Horninu!
mbl.is Áfellisdómur yfir skattastefnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 12. mars 2008

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband