30.6.2010 | 16:15
Svona fer ritskoðunin/þöggunin fram! 1. kafli
Mér hefur borist eftir farandi bréf:
Sæll Auðun,
Okkur hefur borist kvörtun um ærumeiðingar í færslunum
http://skarfur.blog.is/blog/skarfur/entry/1067239/ og
http://skarfur.blog.is/blog/skarfur/entry/1068561/ þar sem nafngreindur
einstaklingur eru borinn röngum sökum.
Í skilmálum blog.is kemur þetta fram:
"Notandi samþykkir að miðla ekki ólöglegu efni, áreiti, hótunum, særandi
skrifum eða nokkru öðru sem getur valdið skaða. Notandi samþykkir
sérstaklega að miðla ekki háði, rógi, smánun, ógnun eða ráðast á mann eða
hóp manna vegna þjóðernis, litarháttar, kynþáttar, trúarbragða eða
kynhneigðar, í samræmi við ákvæði 233. gr. a. almennra hegningarlaga nr.
19/1940."
Vertu svo vinsamlegur að fjarlægja færslurnar eða nafn þess sem þarna er
borinn sökum.
Með kveðju,
f.h. umsjónarmanna blog.is
Soffía Haraldsdóttir
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:58 | Facebook
Athugasemdir
Ekki var það litarhátturinn sem þú klikkaðir á ?:) get ekki séð neitt þarna sem ætti við þig
Finnur Bárðarson, 30.6.2010 kl. 16:47
Nú eins og oft þessa dagana þarf maður að fara í spurningaleik í höfðinu. Kannski XXX hafi álitið umræddar færslur valda honum skaða? Nema það hafi verið Björgólfur sem ekki vildi láta bendla sig við málið.
Auðun Gíslason, 30.6.2010 kl. 17:03
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.