13.8.2010 | 21:50
Nýtt gildismat heilgrar Jóhönnu!
"Segja má að ríkisstjórnin byggi á samkomulagi um nýja byrjun, nýtt gildismat. Það hefur orðið viðhorfsbreyting meðal almennings í landinu. Það hefur myndast samstaða um önnur gildi en þau sem mest hafa verið í hávegum höfð á undanförnum árum. Það hefur myndast samstaða um samábyrgð fólks, við erum öll á sama báti.
Hvenær fór Jóhanna svona illilega útaf?
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:54 | Facebook
Athugasemdir
Já, það er eiginlega raunalegt að fylgjast með þeirri breytingu sem orðið hefur á Jóhönnu Sigurðardóttur skeleggrar baráttukonu fyrir réttarstöðu jaðarhópa.
Loks þegar er stödd í stóra, pólitíska draumi lífs síns og orðin æðsti yfirmaður stjórnsýslunnar breytist hún í verndara auðmagnsins og siðlausra fjárplógsmanna.
Og ekki er þá meiri reisnin yfir Steingrími J. Sigfússyni "Fiedel Castro" fólksins í þessu landi á tíma hægri ríkisstjórnar og kapitalismans í sinni óhugnanlegustu mynd í allri sögu þessarar þjóðar.
Árni Gunnarsson, 14.8.2010 kl. 10:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.