Bannað að skipta um skoðun?

Á stöð 2 þykir greinilega fréttnæmt ef einhver skiptir um skoðun á Íslandi. Steingrímur J. var á móti bjórnum fyrir 20 árum. Núna dáðist hann að vexti bjórverksmiðju norður í landi. Það hefði hann ekki átt að gera. Maður á nefnilega ekki að skipta um skoðun!  Steingrímur J. fékk reyndar mun minni tíma í fréttatímanum en drykkjuboltinn Paris Hilton!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Pálmi Gunnarsson

Sjáðu til - við höfum verið alin upp við það Íslendingar að skipta alls ekki um skoðun því það þýddi veiklyndi og jafnvel bara hreinan aumingjaskap. Þannig að þegar það gerist hrökkva menn við og  mýsnar fara á stjá. Reyndar ganga menn svo langt í sumum flokkum að það er eiginlega alveg bannað að hafa neina aðra skoðun en þá sem flokkurinn setur fram, og auðvitað er meira bit í Paris en Steingrími J. þó kröftugur sé.

Pálmi Gunnarsson, 5.5.2007 kl. 21:04

2 Smámynd: Margrét St Hafsteinsdóttir

Bara svona að kíkja á þig og athuga hvað þú værir að gera  Gott að vita að Steingrímur er ekki ósveigjanlegur og alveg steinrunninn. Ég vil þessa Hilton stelpu út úr fjölmiðlum. Hefur einhver virkilegan áhuga á því sem hún er  að gera?

Margrét St Hafsteinsdóttir, 6.5.2007 kl. 02:08

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband