9.5.2007 | 11:04
Árni Matt. og eignarétturinn!
Nú hefur Árni Matt. toppað þúsundkróna ummæli Geirs H.. Spurður um stefnuna í Þjóðlendumálinu sagði Árni Matt. fjármálaráðherra, að Sjálfstæðisflokkurinn virti að sjálfsögðu eignaréttinn á landinu! Og þá hlógu nú ýmsir með öllu andlitinu! Undanfarín ár hefur lögfræðingagengi á vegum Árna reynt með lagaflækjum að hafa landareignir af bændum og skiptir þá engu, þó um marg þinglýstar eignir sé að ræða eða eignir sem hafa verið í eigu sömu ættar mann fram af manni. Þeir eiga aldeilis vel saman Árni í fyrsta sæti og Árni í öðru sæti!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.