Já, já! Nú skal stungið í feitt!

Nú á ekki bara að selja ofanaf sér heldur undan sér líka.  Hverslags fífl eru borgarfulltrúar sjálfstæðisflokksins.  Villi Góði er búinn að hegða sér eins og löggiltur hálfviti í þessu máli öllu.  En nú á að láta plottið ganga til enda.  Haukur gerður að blóraböggli og aukaatriðin gerð að aðalatriði (kauprétturinn).  Sér einhver handa sinna skil í rykmekkinum, sem nú er kastað í augu okkar?  Nú á að afhenda REI einkavinunum á silfurfati fyrir slikk.  Nú hefur einhver stungið í feitt!  Var einhver að halda því fram að hér þrífist ekki spilling í stjórnmálum og viðskiptum.  Berusconi og Marcos eru einsog mjóróma piparjómfrúr í ensku teboði hjá svona liði.
mbl.is Stefnt að því að selja hlut Orkuveitunnar í REI
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bragi Einarsson

Er þetta ekki bara liður í undirbúningi frá því í síðustu borgarstjórnarkosningum? það var vitað mál hver vilji sjálfstæðismanna í þessum efnum hefur verið, að selja öll arðvæn fyrirtæki í hendur á peningamönnum! Þetta er bara fyrirfram skrifað handrit!

Bragi Einarsson, 8.10.2007 kl. 16:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband