Félagsmálaráðherra svíkur bótaþega Tryggingastofnunar!

Mikill loforðaflaumur Samfylkingarinnar, og stór orð, um umbætur í málefnum lífeyrisþega hafa reynst innantómur lygaþvættingur.  Þetta varð ljóst nú um áramót.  Bætur Tryggingastofnunar hækka aðeins um áramót og hækkunin nú um þessi áramót heldur ekki í við verðbólguna.  Sem sagt, enn mega lífeyrisþegar búa við það að bætur Tryggingastofnunar rýrna að verðgildi.  Það er gott fyrir Jóhönnu Sigurðardóttur, að núverandi formaður Öryrkjabandalagsins er yfirvöldum auðsveipur, enda hefur hann sagt að hann muni ekki beita sömu hörku í baráttunni fyrir lífskjörum umbjóðenda sinna og fyrri formaður.  Ríkisstjórnin getur því verið alveg róleg og haldið áfram að skerða lífskjör elli- og örorkulífeyrisþega.  Og loforðin, skítt með þau!  Enda skal stefnt að því "að fækka öryrkjum" með fulltingi formanns Öryrkjabandalagsins.  Hvort beitt skal sömu aðferðum og í Þriðja Ríkinu forðum er ekki vitað enn.  Þó skal á það bent, að aðeins þar hefur tekist "að fækka öryrkjum."

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gunnlaugur Halldór Halldórsson

 Hæ og Gleðileg jól og ár og takk fyrir það liðna 

já er samála þig sem þú ert að skrifa

Gulli Dóri

Gunnlaugur Halldór Halldórsson, 2.1.2008 kl. 22:37

2 Smámynd: Auðun Gíslason

Takk fyrir Gulli minn, og sömuleiðis:  Gleðilegt ár og takk fyrir liðna árið, og öll gömlu árin!  Það eru ekki allir sem átta sig á því hversu mikils virði það er að þekkja þig og eiga að vin.  Sem sagt, takk!

Auðun Gíslason, 4.1.2008 kl. 00:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband