21.1.2008 | 21:11
Hægrimenn...
...eru ekki haldnir neinni sérstakri verkfælni þegar kemur að því að svíkja samherjana og stinga þá í bakið. Það er alveg ljóst. Fyrir einhverjum 100 dögum sviku dvergarnir sex þann sjöunda, Gamla góða Villa sinn. Gamli góði Villi sveik dr. Ólaf í tryggðum eftir síðustu kosningar. Síðustu vikur hafa farið í plástranir á borgarstjórnarflokki djélistans, en þó einkum í umvandanir innanflokks við einstaka fulltrúa.
Ekki var að sjá, að allir borgarstjórnarfulltrúar djélistans væru jafn sprækir með framvindu mála, svo maður segi nú ekki, að þeir væru með skítabragð í munninum. Gísli Marteinn, Hanna Birna og fleirri voru ekki mjög glöð að sjá og Þorbjörg Helga virtist vera með grátkökkinn í hálsinum. En kannski bara af gleði yfir að geta kannski krækt sér í feitann bita úr borgarstjórnarkjötkötlunum.
Nú ætla ég bara að vona að þeir fyllist ekkert af verkkvíða á vormánuðum!
Ólafur og Vilhjálmur stýra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:09 | Facebook
Athugasemdir
Það er víst sagt að ekki sé gott að kasta steinum í glerhúsi. Ég mæli með því að þú kynnir þér sögu vinstriflokka á Íslandi en saga þeirra er eitt stórt hnífasett í bakið.
Vilhjálmur Andri Kjartansson (IP-tala skráð) 21.1.2008 kl. 21:42
Smjörklípa?
Ungir læra þeir á smjörhnífinn, smjörklípumeistararnir!
Eða hvað sögðu þeir Gunnar og Geir? Eða Albert? Að maður tali nú ekki um svikin bak við luktar dyr í reykfylltum bakherbergjum.
Auðun Gíslason, 21.1.2008 kl. 21:58
ja ja nú er ég hissa ég bara held að seg best að kjósa aftur í Reykjavík (borg óttans) og ekki leifa þessu fólki bjóða seg fram.nema henni SVANDÍSI
Gulli Dóri
Gunnlaugur Halldór Halldórsson, 21.1.2008 kl. 22:44
Kjósa, Gulli minn? Nei, all ekki. Þá er gamanið búið. Nú er það bara spurningin: Hver svíkur hvern næst?
Auðun Gíslason, 21.1.2008 kl. 22:49
já . veru það ekki F maðurinn er nokkur að marka hann ?
Gulli Dóri
Gunnlaugur Halldór Halldórsson, 22.1.2008 kl. 03:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.