Hægrimenn...

...eru ekki haldnir neinni sérstakri verkfælni þegar kemur að því að svíkja samherjana og stinga þá í bakið.  Það er alveg ljóst.  Fyrir einhverjum 100 dögum sviku dvergarnir sex þann sjöunda, Gamla góða Villa sinn.  Gamli góði Villi sveik dr. Ólaf í tryggðum eftir síðustu kosningar.  Síðustu vikur hafa farið í plástranir á borgarstjórnarflokki djélistans, en þó einkum í umvandanir innanflokks við einstaka fulltrúa. 

Ekki var að sjá, að allir borgarstjórnarfulltrúar djélistans væru jafn sprækir með framvindu mála, svo maður segi nú ekki, að þeir væru með skítabragð í munninum.  Gísli Marteinn, Hanna Birna og fleirri voru ekki mjög glöð að sjá og Þorbjörg Helga virtist vera með grátkökkinn í hálsinum. En kannski bara af gleði yfir að geta kannski krækt sér í feitann bita úr borgarstjórnarkjötkötlunum.

Nú ætla ég bara að vona að þeir fyllist ekkert af verkkvíða á vormánuðum!


mbl.is Ólafur og Vilhjálmur stýra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er víst sagt að ekki sé gott að kasta steinum í glerhúsi. Ég mæli með því að þú kynnir þér sögu vinstriflokka á Íslandi en saga þeirra er eitt stórt hnífasett í bakið.

Vilhjálmur Andri Kjartansson (IP-tala skráð) 21.1.2008 kl. 21:42

2 Smámynd: Auðun Gíslason

Smjörklípa? 

Ungir læra þeir á smjörhnífinn, smjörklípumeistararnir! 

Eða hvað sögðu þeir Gunnar og Geir?  Eða Albert?  Að maður tali nú ekki um svikin bak við luktar dyr í reykfylltum bakherbergjum.

Auðun Gíslason, 21.1.2008 kl. 21:58

3 Smámynd: Gunnlaugur Halldór Halldórsson

ja ja nú er ég hissa ég bara held að seg best að kjósa aftur í Reykjavík (borg óttans) og ekki leifa þessu fólki bjóða seg fram.nema henni SVANDÍSI

Gulli Dóri

Gunnlaugur Halldór Halldórsson, 21.1.2008 kl. 22:44

4 Smámynd: Auðun Gíslason

Kjósa, Gulli minn? Nei, all ekki.  Þá er gamanið búið.  Nú er það bara spurningin:  Hver svíkur hvern næst?

Auðun Gíslason, 21.1.2008 kl. 22:49

5 Smámynd: Gunnlaugur Halldór Halldórsson

já . veru það ekki F maðurinn er nokkur að marka hann ?

Gulli Dóri

Gunnlaugur Halldór Halldórsson, 22.1.2008 kl. 03:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband