17.3.2008 | 15:08
Málefnalegur ráðherra...
...Þeir sem gagnrýna stöðu heilbrigðismála eru ekki í jafnvægi!? Jasso!
Gulli er önnum kafinn við að bjóða út rekstur í heilbrigðiskerfinu. Um daginn bauð hann rekstur deildar á Landakoti. Öll tilboð einkaaðila voru mun hærri en sem nemur núverandi kostnaði! Svoleiðis fór um sjóferð þá.
Á Landspítala Háskólasjúkrahúsi er mannahald allt í háalofti vegna þess að stjórnendur skilja ekki einföldustu atriði mannlegra samskipta, heldur rúlla yfir starfsmenn háa sem lága. Þeir ættu að byrja á því að afleggja þennan frjálshyggju-stjórnunarstíl, sem einkennist af yfirgangi og frekju. Samtöl við starfsmenn skila betri árangri í stjórn fyrirtækja, en valdboðsleiðin!
Skrýtið hvað sumir ráðherrar taka mikið meira mark á OECD en aðrir! Sú stofnun sendi frá sér skýrslu sem sýndi (það sem margir hafa vitað) svart á hvítu skattpíningu Sjálfstæðismanna á fátæklingum á Íslandi. Fjármálráðherrann rífur kjaft skv. venju.
Mér er spurn: Hver er metnaður Guðlaugs Þórs Þórðarsonar í heilbrígðismálum? Er hann einhver? Þ.e. einhver annar en frjálshyggjuórar?
Eins og þingflokkur VG sé ekki í jafnvægi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:09 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.