17.3.2008 | 15:46
Að hafa fé af börnum! Einelti alla leið inní dómssalina?
Ég verð nú að segja, að mér finnst nú ekki vera hægt að komast neðar!
Skipulagt einelti?
Ég spyr: Er þessi kennari í Mýrahúsaskóla einhverskonar óviti? Miðað við lýsingu á málsatvikum er mér nær að halda það. Bera kennarar enga ábyrgð á flumbrugangi sínum í starfi? Hvernig stóð á því að barnið þurfti að leita skjóls fyrir samnemendum sínum í kennslustund að kennaranum viðstöddum? Ber kennurum ekki skylda til að halda uppi aga í kennslustundum? Var enginn stuðningsfulltrúi eða skólaliði í kennslustofunni? Var ekki talin þörf á því? Átti kennarinn enga sök á því hvernig fór? Eða skólinn? Er einelti látið viðgangast í þessum skóla? Eða telst allt í lagi að níðast á þeim sem er ekki nákvæmlega einsog við hin?
Ég hélt að það væri liðin tíð, að níðst væri á fötluðum! Kannski hefur framþróunin gleymt skólanum á Nesinu?
Spurning um hvort ábyrgðartryggja eigi börn í skólastarfi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:36 | Facebook
Athugasemdir
Þetta eru nákvæmlega sömu spurningar og leituðu á mig þegar ég las dóminn.
Elías Halldór Ágústsson, 17.3.2008 kl. 16:09
Mér sýnist þetta engan veginn sambærilegt. Frekar að bera þetta saman við: Ef ég rétti nú syni nágrannans stein og benti honum á gluggana á húsinu. Hann veldi einmitt glugga á minni íbúð, en ekki heima hjá sér, og bryti hann með steininum sem ég rétti honum. Hver væri þá mín sök eða hans? Þetta væri allt mín sök!
Í mörgum dómum um vinnuslys er oft deilt um sök í málum. Brotaþolar eru oft taldir bera ábyrgð t.d. vegna kæruleysis, vangár, þeir hafi ekki fylgt reglum um öryggi o.s.frv. Ef slys verður í kennslustofu vegna þess að ekki hefur verið haldið uppi aga, vegna aðgæsluleysis, starfsmannaskorts, ekki farið að reglum o.s.frv., hver ber þá ábyrgðin. Börnin eða sá aðili sem hefur börnin í umsjá sinni? Ef það eru börnin, þá er það að mínu viti, einsog að kenna bíl um árekstur en ekki bílstjóranum!
Auðun Gíslason, 17.3.2008 kl. 16:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.