Merkilegt!

Það hefur nefnilega ekki staðið á ráðherranum að hafa skoðun á málinu og tjá sig um það, án þess að kynna sér málavexti útí í hörgul. Reyndar nákvæmlega einsog Haukur Guðmundsson, sem virðist hafa tekið ákvörðun um mál Paul Ramses án þess að kynna sér alla málavöxtu og aðstæður hans á Íslandi.  Það er ástæða til að óttast að dómsmálaráðherra, Björn Bjarnason, hafi þegar tekið ákvörðun um niðurstöðu ráðuneytis síns í málinu. 

Það er ástæða til að velta fyrir sér þeirri hörku og grimmd, sem einkennir viðhorf og framkomu valdsmanna í heiminum.  Það er einsog mannúð og kærleikur skorti í allri afstöðu þeirra, sama hvar er borið niður, lög og reglugerðir eru þeirra ær og kýr.  Í Peking og í Reykjavík etc....


mbl.is Ráðherra ókunnugt um málið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband