Enn bullar Bjössi!

Þótt svo hafi verið, að meirihluti hafi verið með setu "varnarliðs" Kana á Miðnesheiði má samt fullyrða, að málið hafi klofið þjóðina.  Þó að BB sé þeirrar skoðunar að herstöðvamálið hafi ekki klofið þjóðina, eru aðrir á annarri skoðun, þar á meðal Ólafur Ragnar.  Og það er ekki þar með sagt, að Bjössi hafi rétt fyrir sér.  Við hin, sem erum ekki sömu skoðunar og Bjössi, megum hafa skoðun á málinu.  Þó BB, og skoðanabræður hans, hafi einhverja skoðun er ekki þar með sagt, að hún sé sú eina rétta.  BB er engin alsherjardómari í málum, þó svo hann skrifi og tali þannig af sínum alkunnu merkilegheitum.  Skoðanir manna eru mismunandi, það er bara þannig!  Hvort sem Birni líkar það betur eða verr!

Einkennilegt, hvernig Bjössi talar alltaf einsog hann sé alvitur!


mbl.is Einkennilega að orði komist
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Auðun Gíslason

Náðargjöfin(?) áttar sig ekki á því, að þegar Bjössi talar og skrifar, þá gerir hann þá einsog alsherjardómur hafi kveðið upp dóm sinn.  Hann talar einsog sá sem veit betur en allir aðrir.  Skoðanir hans sé ekki skoðanir heldur óumdeildar staðreyndir, staðreyndir sem ekki verði deilt um, og allt annað sé vitleysa.  Annars sýnist mér, að Náðargjöfin skrifi einsog náðargjafirnar hafi verið uppurnar þegar kom að honum!

Auðun Gíslason, 5.8.2008 kl. 18:37

2 Smámynd: Haraldur Davíðsson

BB er einn þeirra sem halda að þeir sem ekki eru sammála honum séu fífl.

Enda er maðurinn fasisti af verstu sort.

Haraldur Davíðsson, 9.8.2008 kl. 21:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband