Er búið að afnema lýðræðið á Íslandi, ásamt einkaeignarréttinum? Bréf HH.

 

Bréf HH: 

"Kæru viðtakendur.

Atburðir morgunsins segja manni að hér starfi hvorki þing né ríkisstjórn. Eitt stærsta fyrirtæki landsins er þjóðnýtt í nafni ríkisstjórnar Íslands en forsætisráðherra er ekki í aðalhlutverki heldur situr í farþegasætinu og fjármálaráðherra í aftursætinu ... Og Alþingi er einhverstaðar víðs fjarri. Bara hóað í nokkra þingmenn til að vera vitni að aðgerðinni.

Hver fer með æðsta vald á Íslandi?

Ein stærsta aðgerð okkar daga er framkvæmd án umræðu, án sýnilegrar aðildar annars ríkisstjórnarflokkanna. Hvar er Samfylkingin? Í Bandaríkjunum hefur umræða um svipaða aðgerð staðið látlaust í tíu daga. Fyrir opnum tjöldum. Hér er allt í leyni. Og svo er ákvörðuntekin af ... já, af hverjum? - á lokuðum fundi seint um nótt. Minnir óneitanlega á aðra stóra ákvörðun, sem tveir menn tóku fyrir nokkrum árum.

Til hvers vorum við að kjósa fyrir rúmu ári síðan?

Geir gufaði endanlega upp sem forsætisráðherra um helgina. Hér er hvorki starfandi þing né ríkisstjórn. Við erum bara með Seðlabankastjóra, sem ræður, og Silfur Egils, fyrir umræðuna.

Svo bætast við sögur um að Glitnir hefði beðið um aðstoð Seðlabanka í síðustu viku en DO neitað honum um það, nema hann fengi að yfirtaka bankann. Davíð yfirtekur banka Baugs ... Hversu traustvekjandi aðgerð er það? Ekki mjög, eftir að stjórnarformaður Glitnis talar í viðtali við Stöð 2 eins og bankanum hafi verið rænt af sér. Á meðan birtist viðskiptaráðherra dreyrrauður í viðtali við sömu stöð og talar eins og hlutlaus áhorfandi. "Með þessu er ríkisstjórnin að sýna að hún lætur ekki banka fara í þrot." Hann hefði fremur átt að segja: "Með þessu sjáum við að Samfylkingin hefur engin áhrif í ríkisstjórn sem að auki er í vasa Seðlabankastjóra."

Í hádegisfréttum RUV sagði svo Davíð: "Seðlabankanum verður svo bætt þetta upp með ákvörðun Alþingis, væntanlega." Já, væntanlega. Hver ræður á Íslandi í dag?

Ég get ekki betur séð en að ríkisstjórnin sé ónýt. Seðlabankinn hefureignast 75% hlut í henni.

Ég sofnaði í lýðræðisríki í gærkvöldi en vaknaði í konungsríki í morgun."


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Auðunn.

Kúnstugt að seðlabankinn hefur eignast 75% í ríkisstjórninni.

Annars er fátt sagt af viti þessa dagana á meðan átökin eru sem mest,og vona ég það þjóðarinnar vegna að öllu þessu Írafári fari að ljúka.Svo við getum farið að vinna okkur út úr þessu. Mér finnst margt líklegt og annað ekki líklegt og ætli maður fái nokkurn tíman hreinskipt svör við því sem raunverulega er að gerast.

Hafðu það sem best.

Þórarinn Þ Gíslason (IP-tala skráð) 1.10.2008 kl. 01:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband