4.10.2008 | 10:29
Þvílíkar kerlingar!
Það var kostulegt að horfa á Kastljósið í gærkvöldi! Hannes Hólmsteinn og Gunnar Smári mærðu DO. Gunnar Smári taldi engan betur til þess fallinn en DO til að stjórna neyðaraðgerðum í efnahagskrísunni. Krísan er mun dýpri og alvarlegri hér á landi en víðast hvar annarsstaðar. Ástæðan er peningamálastefnan og aðgerðarleysi Seðlabankans og ríkisstjórnarinnar. Og svo er aðal brennuvargurinn talinn best til þess fallinn að stjórna slökkvistarfinu. Hlálegt!
Hannes Hólmsteinn kveinkaði sér undan Seljan og hélt því fram að hann reyndi að setji sig í þriðja gráðu yfirheyrslu. Og að menn hefðu áður lent í þannig trakteringum í Kastljósi. Ja, hérna hér! EF mönnum er ekki strokið, einsog nýfæddum ketlingum, þá á það að heita þriðju gráðu yfirheyrsla! Væl er þetta!
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
DO,á ekki að koma aftur að stjórnmálum. Hann er búinn og aðrir komnir í hans stað.
Hann á líka að þekkja sinn stað og þegja um stjórnmál.
Sigrún Jóna (IP-tala skráð) 5.10.2008 kl. 11:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.