Gísli Freyr Valdórsson og greiningardeildin.

Gísli  Freyr, sendisveinn á skrifstofu Ríkislögreglustjóra, upplýsir okkur, sauðsvartan almúgan og mótmælendur (nokkurn vegin sama mengið), um hvernig við erum skilgreind af greiningardeild yfirmanns hans, Rikislögreglustjóra!  Nú erum við ekki skríll!  Nú erum við skæruliðasveit VinstriGrænna í annarlegu ástandi.  Það er skemmtilegt, þegar skósveinar Náhirðar hins geðfatlaða  tjá sig um almenning í landinu.  Okkur þessa þjóð, sem erum ekki þjóðin, sem pólitíkusar vilja tala við!  Hvað er það næst?  Mun almenningur, þessi þjóð..., kannski verða skilgreindur sem hryðjuverkamenn og meðhöndlaður sem slíkur af hægribullum og frjálshyggjufacistum?

Þeir, sem efast um að mótmælendur og sauðsvartur almúginn sé nokkurnveginn sama mengi, geta kallað ekki-mótmælendur saman á útifund til stuðnings hinni þjóðarlausu ríkisstjórn og Náhirðinni.  Þanning gætu þeir sannað mál sitt.  Þar til það gerist tel ég ofangreinda fullyrðingu sanna!


mbl.is Tveir mótmælendur handteknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Haraldur Davíðsson

Sammála.

Haraldur Davíðsson, 14.1.2009 kl. 18:25

2 identicon

Ég held þú hafir einhverjar alvarlegar ranghugmyndir um starf mitt. Ég hef aldrei stigið fæti inn á skrifstofu Ríkislögreglustjóra og ekki einu sinni inn í þá byggingu.

Gisli Freyr Valdórsson (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 00:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband