Ný framsókn eða gömul framsókn? Leiðir framsókn Dé-listann til valda á ný? Og hvenær?

Eftir útspil frramsóknar í gær hlýtur maður að spyrja sig:  Hvað varð af þessari nýju framsókn?  Mig grunar að það sé aðeins tímaspursmál, hvenær framsókn og délistinn verða komnir í stjórn saman.  Í vor?  Í haust?  Það er alveg ljóst að Sigmundur hefur sterk tengsl við flokkseigendafélagið, bæði gömul og ný.  Og það félag vill sko enga vinstristjórn í landinu til lengdar.  Slík stjórn er vís með að skerða frjálsræði auðmannanna á bak við framsókn.  Og auðvitað kemur ekki til greina, af þeirra hálfu, að kyrretja eignir kapítalistanna.  Að ég nefni nú ekki í morgunsárið þjóðnýtingu á eignum þeirra.  Ég spái því, að innan tveggja ára verði komin hér á stjórn délistans og framsóknar.  Gott ef þreifingar í þá átt eru ekki þegar hafnar!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Svona, svona. Svona, svona!

Árni Gunnarsson, 30.1.2009 kl. 17:59

2 Smámynd: Auðun Gíslason

Svona hvað Árni minn?

Auðun Gíslason, 31.1.2009 kl. 12:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband