Enn stígur Gallup á puttana á sér. Þegar ekki fékkst svar við fyrri spurningunni var spurt spurningar sem má ætla að sé leiðandi. Það væri fróðlegt að fá álit sérfróðra á svona vinnubrögðum. Mig minnir að eitthvað hafi þetta verið rætt á árum áður. Kannski er þetta ástæðan fyrir því að Délistinn fær ávallt minna útúr kosningum, en hann skorar í skoðanakönnunum Gallup?
Sjálfstæðisflokkur með mest fylgi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Sjálfstæðisflokkurinn, einn flokka, hefur nær undantekningarlaust fengið hærra hlutfall greiddra atkvæða en skoðanakannanir hafa gefið vísbendingu um fyrir kosningar. Þar er sama hvort um sveitarstjórnar- eða alþingiskosningar er að ræða. Vinsamlegast kynntu þér tölfræðilegar staðreyndir áður en þú slærð fram rangri fullyrðingu á borð við þessa:
"Délistinn fær ávallt minna útúr kosningum, en hann skorar í skoðanakönnunum Gallup"
Stjórnmálafræðingar hafa hins vegar nokkrum sinnum velt því upp í gegnum tíðina að kjósendur Sjálfstæðisflokksins reynist skila sér betur á kjörstað, þ.e. að hærra hlutfall fylgjenda þess flokks mæti í raun á kjörstað og veiti þeim atkvæði sitt. Ég hef ekki séð afgerandi rökum skuptið undir þessa tilgátu, þó langlíf sé.
Kveðja,
RG
Reynir Guðmundsson (IP-tala skráð) 5.3.2009 kl. 20:23
Já, við sjálfstæðismenn erum að sækja í okkur veðrið
Sjálfstæðisflokkurinn með nýrri og ferskri forystusveit og með vindinn í seglin eftir Landsfundinn verðum við í 34-35%
Framsóknarflokkurinn með nýrri og ferskri forystusveit á eftir að fara 15-17%
Þetta mjakast allt í rétta átt öll út að grilla
Guðbjörn Guðbjörnsson, 5.3.2009 kl. 22:30
Skv. venju eru délistamenn góðir með sig! En hræddur er ég um að Reynir rugli saman veruleikanum og óskhyggju sinni. GG skv. nýrri skoðanakönnun MMR er délistinn ekki að sækja í sig veðrið. Fyrir síðustu kosningar var délistinn að fá yfir 40% í skoðanakönnunum, hver var niðurstaðan, jú 36%, og sumir af þessum 36% hafa séð ástæðu til að biðjast afsökunar á atkvæði sínu. Góðir og gegnir délistamenn einsog Yngvi Hrafn og Reynir Traustason svo einhverjir séu nefndir. Enda ber Délistinn ábyrgð á því hversu alvarlegt ástandið er hér, mun verra en þar sem frjálshyggjan hefur ekki vaðið uppi!
Auðun Gíslason, 6.3.2009 kl. 14:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.