Ábyrgðarlaus smáflokkur í stjórnarandstöðu? Stétt með stétt? Fari það í fúlan pytt!

Höfuðstólslækkun skulda?  Nú er Sjálfstæðisflokkurinn kominn útí að draga kjósendur á asnaeyrunum í kapp við Framsókn.  Þessir tveir flokkar einkavæddu bankakerfið á sínum tíma.  Komu því í hendur einkavina sinna, sem "voru í talsambandi við flokkinn" undir forystu DODO!  Nú á að kaupa sér atkvæði með ábyrgðalausum yfirboðum og fáránlegum gylliboðum með "velferðarkerfi" fyrir hina "ríku" og stórskuldugu.  Almúginn gat ekki slegið 50-100 milljónir í bönkunum útá glæsivillur.  Greiðslumatið leyfði aðeins hátekjufólki slíkar skuldsetningar.  Nú á sem sagt að bjarga málum með hlutfallsslegri lækkun  skulda.  Sá sem gat bara fengið lán hjá Íls uppá 10 milljónir á að fá lækkun uppá 2 milljónir.  Sá sem fékk lán uppá 50 milljónir bankanum sínum á að fá lækkun uppá 10 milljónir o.s.frv. 

Þetta kallast nú ekki félagsleg úrræði eða á neitt skylt við jöfnuð!  Sama reddinga-spillingin áfram.  Hygla hátekjufólki á kostnað alls samfélagsins, og skattgreiðendur framtiðarinnar eiga að svo að borga.  Og hvernig er svo skattkerfið leikið eftir stjórnarsetu sjálfhygliliðsins?  Byrðarnar hafa verið fluttar af hinum efnameiri á hina sem minnst mega sín, lágtekjufólkið!  Stétt með stétt? (Mússólíní væri hrifinn, en frá honum er slagorð Sjálfstæðisflokksins fengið).

Fari það í fúlan pytt!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband