30.6.2009 | 10:57
The Big Sell-out Íslands hafið!
Þetta er stórhættuleg þróun sem er að hefjast með þessari sölu á HS Orku, ef af verður. Það er vonandi enginn sem heldur að þessir fjármálamenn ætli sér að reka HS Orku, einsog orku- og veitufyrirtæki hafa verið rekin á Íslandi fram til þessa. Nei, þeir munu gera allt til að hámarka afraksturinn af fyrirtækinu. Og hvað mun það þýða í orkuverði til almennings? Tvöföldun, fjórföldun á verði?
Myndin "The Big Sell-out" var nýverið sýnd á RÚV (kemur á óvart, en góðra gjalda vert). Þar mátti sjá hvernig fjármálamenn léku samfélagsleg fyrirtæki og stofnanir víða um heim. Bechtel (var þetta fyrirtæki ekki eitthvað að brasa hér á landi, svo þeir þekkja til hér) "eignaðist" vatnsveitur í Bólivíu, fjármálamenn rafmagnsveitu í S-Afríku, heilbrigðiskerfi Filippseyja var einkagróðavætt. Hver var niðurstaðan fyrir íbúana, sem þurftu að nota sér þjónustu þessara fyrirtækja og stofnana, sem voru komin í "eigu" peningamanna? Jú, hún var sú, að fólkið hafði einfaldlega ekki efni á að nýta sér þjónustuna. Sem það hafði áður getað!
Nú á sem sagt að hefja "The Big Sell-out" á Íslandi í boði einkavæðingarsinna!
Hér er verið að fremja glæp gegn samfélaginu!
Erlendir bjóða í HS Orku | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:06 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.