Rekum IMF/AGS.

Við getum án þessarar innheimtustofnun heimskapítalismans verið.  Fellið Icesave-frumvarpið!  Eins og lesa má í settlement agreement skjalinu yfirtók FSCS Icesave skuldbindinguna 4. nóvember.  Þeir geta stefnt ríkissjóði vegna greiðslunnar.  Þá kemur ýmislegt óhreint uppá yfirborðið.  Og síðast en ekki síst:  Drögum til baka EU umsóknina!

Stöndum nú í lappirnar!  Það er orðið ansi langt síðan það gerðist síðast!

Dagur eitt:  Rekum IMF/AGS! 

Á því hefst raunveruleg endurreisn, ekki endurreisn 2007 þjóðfélagsins, þess kasínó-kapítalisma sem verið er að endurreisa nú!


mbl.is Stjórnvöld halda í vonina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Já það er þetta með endurreisnina. Ég held nefnilega að til þess að við getum reist þetta samfélag við í tengslum við tryggari framtíðarsýn þá verðum við einmitt að hafna þessum andskotans þrælasjóði auðvaldsins. Í dag er það greinilegt að stjórnvöld hafa ekki aðra sýn en 2007 kasínó-kapítalismann. Það er mikið talað um viðreisn bankanna og þá helst vegna hungursins eftir fjármagni til stórvirkjana og álvera.

Það er ljóst að verði sá þankagangur virkjaður þá er stutt í endurtekningar á veislunni. Og veislulokin munu verða með afar líkum brag og veislulokin s.l. haust.

Þannig að eftir vandlega íhugun get ég tekið undir þennan pistil þinn.

Árni Gunnarsson, 31.7.2009 kl. 13:42

2 Smámynd: Auðun Gíslason

Takk fyrir, Árni!  Mig grunar að IMF/AGS ráði nokkuð meiru um stefnu stjórnarinnar en uppskátt er látið.  You ain't seen nothing yet!  Þetta er bara byrjunin á kúguninni!

Auðun Gíslason, 31.7.2009 kl. 14:36

3 Smámynd: Auðun Gíslason

Sæll aftur Árni!  Já, gott að það er búið að koma tengingunni í lag!

Auðun Gíslason, 31.7.2009 kl. 14:45

4 Smámynd: Auðun Gíslason

Þú hefur nú varla þurft að íhuga þetta lengi.  Er í samhljómi við skoðanir sem þú hefur viðrað.

Auðun Gíslason, 31.7.2009 kl. 14:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband