16.8.2009 | 11:06
Mogginn er samur við sig!
When the banks were put into administration last October, experts believed that Iceland's banks had simply fallen prey to the global credit crisis.
But Dr Jon Danielsson, an Icelander who teaches economics at the London School of Economics, believes that while the timing of the crash was dictated by the global banking crisis, the scandal is unique among European financial institutions.
He believes the root of Iceland's problemsthat have now decimated its economy appear to have started when the government decided to privatise the banks in the early 1990s.
"Iceland got its regulations from the EU, which was basically sound," he says. "But the government had no understanding of the dangers of banks or how to supervise them. They got into the hands of people who took risks to the highest possible degree."
Það er "glæsileg" blaðamennska sem birtist í endursögn moggans á þessari misgóður grein "Símskeytisins". Mogginn skautar fram hjá mikilvægum hlutum í kaflanum um skoðanir Jóns Daníelssonar á bönkunum og efnahagshruninu.
1. Jón er þeirrar skoðunar að meðan tímasetning hrunsins hafi ráðist af heimskreppunni , sé skandallinn einstæður á Evrópskan mælikvarða.
2. Hann telji að rætur vandans liggi í þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að einkavæða bankana 1990.
3. Regluverk bankanna fengu Íslendingar frá EU, en ríkisstjórnin hafði hvorki skilning á þeim hættum sem bönkum fylgir né hvernig ætti að hafa eftirlit og stjórn á þeim. Þeir lentu í höndunum á mönnum sem færðu áhættu í hæstu hæðir!
Það hefur vafist fyrir hægrimönnum að viðurkenna upphaf vandans sem við er að eiga í dag: Einkavæðingu banka, annarra fjármálastofnana og einkavinavæðinguna almennt. Allt frá Síldarverksmiðjum Ríkisins til bankanna. Einkavæðinguna í stóru sem smáu. Og trúnni á, að stjórnlaus kapítalismi gæti staðið sig. Ofan á allt bætist svo algert skilningsleysi á þörf á eftirlit og yfirstjórn á fjármálalífinu.
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:09 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.