30.9.2009 | 11:32
Ritskoðuð frásögn?
Fljótt á litið er þetta ágæt samantekt sem birtist hér. En hvað vantar? 8. október voru sett hryðjuverkalög á Íslendinga. Skv. áreiðanlegum heimildum segja breskir embættismenn, að ástæðan fyrir setningu þeirra hafi verið hið dæmalausa Kastljós-viðtal við Davíð Oddsson.
Hver er hinn ónafngreindi heimildarmaður? Er það ritstjóri moggans, sem nú virðist önnum lafinn við að snúa sögunni á haus?
Engin samskipti við Seðlabanka | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Auðunn, það er þú sem ert að reyna að snúa sögunni á haus. Um þessa lygi var t.d. bloggað hérna
Axel Jóhann Axelsson, 30.9.2009 kl. 11:36
Hamraðu bara á lyginni, Axel, kannski breytist hún í sannleika, ef það er gert nógu oft! Það er meira hvað ykkur er sárt um þetta!
Auðun Gíslason, 30.9.2009 kl. 11:50
En hvað finnst þér um samantekt Jóns Baldvins hér á síðunni?
Auðun Gíslason, 30.9.2009 kl. 11:55
Það læðist að manni grunur að sagan sé sögð eins og hún hentar best til frásagnar miðað hver annast ritstjórn blaðsins í dag, en sé ekki óháð frásögn af atburðarrásinni.
Jón Óskarsson (IP-tala skráð) 30.9.2009 kl. 11:58
Sá grunur er útbreiddur, já!
Auðun Gíslason, 30.9.2009 kl. 12:24
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.