Með blýant og strokleður?

Einkennilegt hvað mál, sem teljast sjálfsögð og eðlileg allsstaðar annarsstaðar, eru þessari gáfuðu þjóð erfið.  Fjölþrepa skattkerfi eru viðhöfð víðast hvar á vesturhveli jarðar, en ekki hér.  Það er og flókið, segja embættismenn og sumir stjórnmálamenn.   Sama gildir um þjóðaratkvæði.  Hér er viðkvæðið, að mál séu of flókin til að hægt sé að greiða um þau atkvæði.  Þjóðin sé væntanlega og heimsk til að greiða atkvæði um flókin mál.

Með leyfi að spyrja, hvað er svona erfitt?  Og af hverju er þetta erfiðara hér en annarstaðar?  Kannski skýringarinnar sé að leita í leti embættismanna.  Og, varðandi þjóðaratkvæði, að stjórnmálamennirnir vilji halda valdinu hjá sér.


mbl.is „Flóknari og ónákvæmari“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ég held að þessar skýringar þínar séu nú bara augljósari en svo að um þær sé ástæða til að karpa. Hinsvegar þarf engan að undra þótt náhirðin standi vaktina fyrir sitt ósnertanlega fólk.

Árni Gunnarsson, 23.12.2009 kl. 01:11

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband