14.1.2010 | 00:44
Skelfilegar hörmungar!
Það hlýtur að vera skelfilegt að vakna upp við að allt leikur á reiðiskjálfi, svo hrynur allt og myrkrið skellur á! Þetta er hroðalegt! Nánast allt farið! Eftir allt sem á undan er gengið í lífi þessarar þjóðar! Engin orð fá þessu lýst!
Minnumst Haítíbúa og björgunarsveitarmannanna vösku á vettvangi!
13.1.2010 | 22:04
Misskilningur NRK!
![]() |
Fátæka Ísland fyrst til Haítí |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.1.2010 | 21:40
Þjóðin veður elginn í skotgröfunum, en hugsar í þessum dúr:
Ég er gull og gersemi,
gimsteinn elskuríkur.
Ég er djásn og dýrmæti,
Drottni sjálfum líkur.
-Solon Islandus 1820-1895
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.1.2010 | 17:39
Jón Valur er fæddur snillingur, en seint ætlar honum að takast að feta í fótspor Frelsarans!
Jón Valur er fæddur snillingur! Eftirfarandi fann ég í athugasemdum hjá honum í dag:
"Auðun Gíslason átti hér innlegg, sem ég tek út, þar til hann lofar og efnir það að leiðrétta vefsíðu sína, þar sem hann níddi mig að ósekju vegna málefna Ísraels og Palestínu. Þegar ég uppgötvaði ósanninda-níðið, sem fram fór meðan tölva mín var biluð, hafði lokazt á umræðuna á vefsíðunni. Níðið vil ég að verði tekið niður sem fyrst."
Ég sver við allt sem er heilagt, að bilunin í tölvu her-prestsins er ekki mér að kenna!
Innleggið umrædda er af vef Stjórnarráðsins og fjallar um Icesave!
Færslur mínar um málefni facista-ríkisins Ísrael og Palestínu, sem hann vill fá ritskoðaðar, eru margra mánaða gamlar. Við þær allar stend ég að sjálfsögðu, hvert orð! Að mig minnir!
Seint ætlar Jóni Val að takast að feta í spor Frelsarans! En kannski hefur farið framhjá okkur hinum, að hann hafi boðað rækt við hatursfullt hugarfar, þröngsýni, ofstopa og langrækni!
13.1.2010 | 14:11
Innlegg í samstöðu stjórnmálaflokkanna? Að vita ekki hvað maður vill!
Sundrungaráróður Sigmundar Davíðs og Bjarna Ben er greinilega þeirra lóð á vogarskálar samstöðunnar, eða hitt þó heldur! Það væri fróðlegt að fá að vita hvað þeir vilja, þessir drengir og fylgismenn þeirra. Þeir heimtuðu þjóðaratkvæði. Þeir fengu hana og þá vildu þeir ekki þjóðaratkvæði. Þeir hrökkva í kút, þegar sá möguleiki er ræddur að stjórnin segi af sér. Þeir vilja völd, en vilja þau þó ekki. Þeir vilja samstöðu, segja þeir, en gera svo allt sem í þeirra valdi stendur til að valda sem mestri sundrungu!
Þetta heitir að vita ekki hvað maður vill!
![]() |
Vöruðum við en ekki var hlustað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.1.2010 | 14:02
Meiri "forheimskun" af vef Stjórnarráðsins. Um gildi ábyrgðar tryggingarsjóðs, lagalega fyrirvara og dómstólaleiðina.
Til að gleðja herprestinn og vini hans, hægri-öfgamennina set ég hér þessar upplýsingar af vef forsætisráðuneytisins. Vonandi finnst þeim þetta ekki alltof heimskulegt eða forheimskandi!
Athugasemd vegna fjölmiðlaumfjöllunar
Í ljósi fjölmiðlaumfjöllunar um ábyrgð gistiríkja á eftirliti útibúa fjármálastofnana innan sinnar lögsögu er rétt að taka eftirfarandi fram:
Með aðild sinni að EES-samningnum gerðist Ísland hluti af innri markaði Evrópu. Samkvæmt tilskipunum ESB sem Ísland hefur tekið upp með lögum frá Alþingi gildir eftirfarandi:
- Banki sem er með höfuðstöðvar í EES ríki stofnar útibú í öðru EES ríki: þá gildir ábyrgð tryggingarsjóðs heimaríkisins, þar sem höfðustöðvar bankans eru.
- Banki sem er með höfuðstöðvar í ríki utan EES stofnar útibú í EES ríki: þá gildir ábyrgð tryggingarsjóðs gistiríkisins, þar sem útibúið starfar.
Ljóst er af þessu að þar sem Ísland er EES ríki féllu skyldur vegna trygginga á innlánum í útibúum íslenskra banka í öðrum EES ríkjum á íslenska tryggingasjóðinn. Þótt meginreglan sé einnig sú að eftirlit með því að fjármálastofnun geti greitt út innlán hvíli á heimaríki hefur af hálfu Íslands samt sem áður verið bent á að eftirlitsstofnanir gistiríkis séu ekki undanþegnar eftirlitsskyldum.
Samkvæmt tilskipun 94/19/EB um innlánatryggingakerfi sem Ísland hefur tekið upp er það skylda sérhvers aðildarríkis EES að tryggja að á yfirráðasvæði þess sé komið á fót innlánatryggingakerfi, sem nái til fjármálastofnana með höfuðstöðvar í því ríki sem og útibúa þeirra á Evrópska efnahagssvæðinu. Tilskipunin kveður skýrt á um að útibú í öðrum aðildarríkjum EES falli undir innlánatryggingakerfi heimaríkisins.
Íslensk stjórnvöld hafa á öllum stigum Icesave-málsins haldið því fram gagnvart Bretum, Hollendingum og Evrópusambandinu að um lagalega óvissu væri að ræða varðandi ábyrgð ríkissjóða við kerfishrun á lágmarkstryggingum innstæðueigenda. Jafnframt var strax í upphafi lögð áhersla á að fá úr málinu skorið fyrir viðeigandi úrskurðaraðila eða dómstól, en öllum tilraunum til þessa hefur verið hafnað af öðrum samningsaðilum en það er meginregla í þjóðarétti að ríki geta ekki leyst úr ágreiningi sín á milli fyrir dómstólum nema allir aðilar samþykki. Þessi fyrirvari sem áréttaður er í 2. gr. l. nr. 1/2010 breytir þó engu um þá niðurstöðu að ábyrgð tryggingarsjóðs heimaríkis gildir um útibú banka innan EES þótt annað hafi verið fullyrt undanfarna daga.
Fjölda lagaálita ásamt öðrum gögnum er málinu tengjast er að finna á www.island.is.
Reykjavík 11. janúar 2010
http://www.forsaetisraduneyti.is/frettir/nr/4094
13.1.2010 | 13:41
Forheimskun rökþrota hægri-öfgamanna! Jón Valur kominn í baráttu fyrir endurkomu Ingibjargar Sólrúnar í pólitík?
Það er ansi skondið að lesa skrif manna þegar rökþrotið blasir við. þá eru blákaldar opinberar upplýsingar af vef forsætisráðuneytisins taldar forheimskandi og þeir sem setja þær fram að sama skapi vitlausir.
Jón Valur, einn alræmdasti "besser-wisser" þjóðarinnar, tekur upp málflutning Ingibjargar Sólrúnar um að undirritaðar vilja yfirlýsingar og samningar séu bara minnismiðar. Árni Matt. getur á sömu nótum haldið því fram, að ríkisbókhaldið sé bara rassvasabókhald og sem slíkt að engu hafandi.
Hvað varðar undirskriftir ráðherra (Árna Matt. í þessu tilviki) og embættismanna fyrir þeirra hönd, þá hefur Helgi Áss Grétarsson upplýst (Á Hrafnaþingi ÍNN), að slíkar undirskriftir hafi þjóðréttarlegt gildi. Enda blasir það við, að annars gætu menn sett nafnið sitt undir allskyns samninga og yfirlýsingar án þess að slíkt hafi neitt gildi. Í þessu tilviki voru engir fyrirvarar við undirskriftir. Það blasir því við að samskipti þjóða væru ansi undarleg, ef málum væri svo háttað. Einsog Ingibjörg Sólrún og samherji hennar, Jón Valur, vill vera láta! Kannski Jón taki að sér að berjast fyrir endurkomu Ingibjargar Sólrúnar í pólitíkina. Öðruvísi mér áður brá!
12.1.2010 | 23:02
Hin umsömdu viðmið í samningi ríkisstjórnar Geirs H. Haarde við ESB fyrir hönd Hollendinga og Breta! Dæmi svo hver sem vill!
Umsamin viðmið
- Ríkisstjórn Íslands hefur átt viðræðufundi með stofnunum Evrópusambandsins og hlutaðeigandi aðildarríkjum þess um skuldbindingar Íslands samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið að því er tekur til tilskipunar um innstæðutryggingar 94/19/EB. Aðilar komu sér saman um að tilskipunin um innstæðutryggingar hafi verið felld inn í löggjöfina um Evrópska efnahagssvæðið í samræmi við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið og gildi því á Íslandi með sama hætti og hún gildir í aðildarríkjum Evrópusambandsins.
- Viðurkenning allra aðila á þessari lagalegu stöðu greiðir fyrir skjótri niðurstöðu samningaviðræðna þeirra sem nú standa yfir um fjárhagsaðstoð við Ísland, þ.m.t. við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Þessar samningaviðræður skulu fara fram með samhæfðum og samræmdum hætti og skal þar tekið tillit til hinna erfiðu og fordæmislausu aðstæðna sem Ísland er í og knýjandi nauðsynjar þess að ákveða ráðstafanir sem gera Íslandi kleift að endurreisa fjármála- og efnahagskerfi sitt.
- Stofnanir Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins munu taka áframhaldandi þátt í þessu ferli sem fer fram í samráði við þær.
Reykjavík 16. nóvember 2008
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.1.2010 | 20:47
Samningar ríkisstjórnar Geirs H. Haarde fyrir hönd þjóðarinnar 10. október 2008 og 16. nóvember 2008! Þannig hófst samningaferlið!
Samkomulag milli Hollands og Íslands um IceSave
Að loknum uppbyggilegum viðræðum hafa hollensk og íslensk stjórnvöld náð samkomulagi um lausn mála hollenskra eigenda innstæðna á IceSave-reikningum Landsbankans.
Fjármálaráðherra Hollands, Wouter J. Bos, og fjármálaráðherra Íslands, Árni M. Mathiesen, tilkynntu þetta.
Ráðherrarnir fagna því að lausn hafi fundist á málinu. Wouter J. Bos kvaðst einkum ánægður með að staða hollenskra innstæðueigenda væri nú skýr. Árni M. Mathiesen bætti við að aðalatriðið væri að málið væri nú leyst.
Samkomulagið kveður á um að íslenska ríkið muni bæta hverjum og einum hollenskum innstæðueiganda innstæður að hámarksfjárhæð 20.887 evrur. Hollenska ríkisstjórnin mun veita Íslandi lán til að standa undir þessum greiðslum og hollenski seðlabankinn mun annast afgreiðslu krafna innstæðueigendanna.
Samkomulag næst við Evrópusambandið fyrir hönd Hollendinga og Breta - Greiðir fyrir láni frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (IMF)
Mikilvægur áfangi hefur náðst til lausnar deilunnar um innstæðutryggingar vegna íslenskra bankaútibúa á Evrópska efnahagssvæðinu og stöðu sparifjáreigenda í þeim. Viðræður Íslands við nokkur Evrópusambandsríki, sem komust á fyrir tilstilli Frakklands sem nú fer með formennsku í Evrópusambandinu, leiddu til samkomulags um viðmið sem lögð verða til grundvallar frekari samningaviðræðum.
Samkomulagið felur í sér að íslensk stjórnvöld ábyrgjast lágmarkstryggingu þá sem EES-reglur mæla fyrir um til innstæðueigenda í útibúum bankanna erlendis. Endanlegur kostnaður ríkissjóðs vegna þessa mun ráðast af því hvað greiðist upp í innstæðutryggingar af eignum bankanna. Einnig er kveðið á um að Evrópusambandið, undir forystu Frakklands, taki áframhaldandi þátt í að finna lausnir sem gera Íslandi kleift að endurreisa fjármálakerfi og efnahag.
Aðilar eru ásáttir um að hraða fjárhagslegri aðstoð við Ísland, þar með talið samþykkt lánafyrirgreiðslu sem beðið hefur samþykktar stjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) undanfarnar vikur. Erindi Íslands hjá IMF verður tekið til afgreiðslu hjá sjóðnum miðvikudaginn 19. nóvember.
Umsamin viðmið
- Ríkisstjórn Íslands hefur átt viðræðufundi með stofnunum Evrópusambandsins og hlutaðeigandi aðildarríkjum þess um skuldbindingar Íslands samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið að því er tekur til tilskipunar um innstæðutryggingar 94/19/EB. Aðilar komu sér saman um að tilskipunin um innstæðutryggingar hafi verið felld inn í löggjöfina um Evrópska efnahagssvæðið í samræmi við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið og gildi því á Íslandi með sama hætti og hún gildir í aðildarríkjum Evrópusambandsins.
- Viðurkenning allra aðila á þessari lagalegu stöðu greiðir fyrir skjótri niðurstöðu samningaviðræðna þeirra sem nú standa yfir um fjárhagsaðstoð við Ísland, þ.m.t. við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Þessar samningaviðræður skulu fara fram með samhæfðum og samræmdum hætti og skal þar tekið tillit til hinna erfiðu og fordæmislausu aðstæðna sem Ísland er í og knýjandi nauðsynjar þess að ákveða ráðstafanir sem gera Íslandi kleift að endurreisa fjármála- og efnahagskerfi sitt.
- Stofnanir Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins munu taka áframhaldandi þátt í þessu ferli sem fer fram í samráði við þær.
Reykjavík 16. nóvember 2008
Kannski ekki úr vegi, að minna á þessar samninga ríkisstjórnar Geirs. H. Haarde nú þegar ásakanirnar dynja á núverandi ríkisstjórn. Svona hófst í raun þessi samningaruna. Svona var ríkissjóður skuldbundinn í byrjun þessa leiðindamáls! Nú virðist stór hluti þjóðarinnar telja að Jóhanna og Steingrímur J. eigi sök á hvernig komið er, og þau sæta ásökunum um hin villtustu svik við land og þjóð. Munið að Icesave-myllan fór af stóð 2006 með vilja og vitund íslenskra yfirvalda!
Stjórnmál og samfélag | Breytt 25.2.2011 kl. 15:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
12.1.2010 | 19:54
En skiptir keisarinn um föt!
![]() |
Bjarni: Snýst um líf ríkisstjórnarinnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.1.2010 | 22:46
"Það er kannski best að gera bara ekki neitt."
![]() |
Hefði átt að stöðva bankana |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.1.2010 | 22:39
Foringinn messar yfir vel heilaþvegnum söfnuði sínum!
http://wms0a.straumar.is/xd/DavidOddson.wmv Það er vel við hæfi að horfa á þetta myndband á þeim tímum, þegar hægriöfgamenn klifa á landráðum!
Og lesa svo þetta: http://www.pressan.is/Pressuuttektir_Olafur_Arnarson/Lesa_Olaf/pressuuttekt-olafs-arnarsonar-hvernig-vard-sedlabankinn-gjaldthrota
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:44 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.1.2010 | 21:52
Times með samviskubit? Klappstýra Icesave 2006-2007!
Advisers recommend Landsbankis Icesave as an alternative. It pays 5.45% and is guaranteed to be 0.25 points above Bank rate until 2009 and equal to Bank rate until 2011. The Times 30.12.06
http://www.timesonline.co.uk/tol/sitesearch.do?turnOffGoogleAds=false&sortBy=relevancy&offset=1&query=icesave 2006&hitsperpage=10&nextOffset=1§ionId=683
![]() |
Hvorki geta né eiga að borga |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.1.2010 | 20:32
Ég hef alltaf dáðst af fólki, sem á margar skoðanir til skiptana!
Kannski maður kjósi Sjálfgræðisflokkinn næst?
En keisarinn er bara alltaf jafn alsber þó hann skipti um föt!
![]() |
Hætt við að umræðan skekkist |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.1.2010 | 22:07
Hinn málglaði forseti vor, klappstýra Icesave-víkinganna, herra Ólafur Ragnar Grímsson.
"Nýverið hef ég ítrekað staðið frammi fyrir því, við ýmis embættisstörf, einkum hér í London, að þrýst er á mig að skýra hvernig og hvers vegna djarfhuga íslenskir frumkvöðlar ná árangri þar sem aðrir hika eða hrökkva, að afhjúpa leyndardóminn að baki árangrinum sem þeir hafa náð........ Í þriðja lagi taka Íslendingar gjarnan áhættu. Þeir eru áræðnir og sókndjarfir. Ef til vill er þetta vegna þess að þeir vita að ef þeim mistekst, þá geta þeir alltaf snúið aftur heim til Íslands þar sem allir geta notið góðs lífs í opnu og öryggu samfélagi; þjóðarefnið sem land okkar er ofið úr veitir öryggisnet sem gerir forkólfum okkar í viðskiptalífinu kleift að taka meiri áhættu en öðrum er gjarnt að gera..."
http://www.youtube.com/watch?v=rOyAyw1aOww
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.1.2010 | 01:36
Umræðan hér og nú er sokkin í djúpan skít illsku og meinfýsi!
Hér með er ég búinn að fá nóg. Lengi hefur ómálefnaleg umræða bæði í bloggheimum, svo og á hinu pólitíska leiksviði, farið fram af meinfýsinni heimsku, útúrsnúningum, þekkingarskort og lygi! Nú tekur útyfir allan þjófabálk. Meinfýsnin, lygin og útúrsnúningar á sannleikanum er komin út fyrir það sem við mætti búast af sæmilega siðmenntuðu fólk, svo með ólíkindum má teljast! Það er aungvu líkara en að sjálfur djöfullinn hafi sest að í sálum margra hér. Guðfræðingur, prestsonur, smiður, barnaskólakennari o.s.frv. hópnauðga sannleikanum og góðum siðum líkt og í einhverskonar djöfullegri orgíu hinu illa til heiðurs!
Þeir sem ekki taka þátt í orgíunni, en vilja heldur bera sannleikanum vitni eru úthrópaðir sem svikarar, landráðamenn, gungur og druslur, föðurlandssvikarar, hlandblautar raggeitur, heiglar, hálfvitar, ómagar og andlegir niðursetningar. Munnsöfnuðurinn er svo illvígur og mannskemmandi, að ófært er að hleypa skólabörnum í heimilistölvuna.
Hér með kveð ég þetta moggablogg, sem hefur verið yfirtekið af þeim djöfulóða óþjóðalýð sem að ofan er lýst.
Bið að heilsa í neðra!
.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.1.2010 | 01:11
Indlandsprinsinn Ólafur Ragnar.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 01:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
5.1.2010 | 22:24
Gerir Gordon Brown innrás?
Aðstoðarritstjóri Evrópuútgáfu Wall Street Journal veltir því fyrir sér. Ótrúlegt en satt!
http://www.dv.is/frettir/2010/1/5/gerir-gordon-brown-innras/
http://blogs.wsj.com/iainmartin/
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
5.1.2010 | 21:24
Sigmundur leysir Icesave með aðstoð óháðra aðila! ESB og Kanada!
Kanada eða ESB leiði Icesave til lykta
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, vill fá óháðan aðila eins og Evrópusambandið eða Kanada til að leiða málið til lykta.