30.6.2008 | 14:44
Ómerkileg vinnibrögð SA og byggð á lygi!
Skv. fréttinni af þessari undarlegu greinargerð Samtaka atvinnulífsins, tók Íbúðarlánasjóður að lána 90% lán um sumarið 2004. Þetta er einfaldlega lygi. Íbúðalánasjóður byrjaði fyrst 6. desember að lána 90% af brunabótamati. Fimm mánuðum eftir að bankarnir byrjuðu að lána 100% lán af ásettuverði íbúða (það var kallað markaðsverð). Það er ekki flóknara en þetta!
2003 var samþykkt stefnumörkun um að Íbúðalánasjóður tæki upp 90% lán af brunabótamati í áföngum.
Árið 2007 átti sem sagt Íls að lána 90% af brunabótamati alfarið á markaðnum. Byrja átti á að lána 90% útá íbúðir af hóflegri stærð.
Sumarið 2004 tóku bankarnir að lána 100% lán, þ.e. 100% af ásettuverði fasteigna. Ekki söluverði eða 100% af brunabótamati. 100% af verðmati löggilts fasteignasala á fasteign; ásett verð. Út á þetta mat gátu menn endurfjármagnað eignir sínar, hefðu þeir tekjur til þess skv. greiðslumati. Eða keypt. Fengu 100% lán miðað við verðmat fasteignasala, en endanlegt söluverð gat svo verið 10-20% lægra. Og brunabótamat e.t.v. 60% af söluverði.
6. desember 2004 fór svo Íbúðalánasjóður að lána 90% lán af brunabótamati, sem í langflestum tilvikum varog er langt undir söluverði fasteigna, hvað þá ásettu verði á fasteignasölu. Var litið svo á að vegna innkomu bankanna með 100% lánin væri ekki stætt á öðru en að gera þetta, einsog það var gert!
Það er því ljóst að öll þessi greinagerð Samtaka atvinnulífsins, svo og stefna SA í þessum málum byggist á lygi og rangfærslum.
![]() |
Stjórnvöld breyti aðkomu sinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
27.6.2008 | 03:57
"Hvaða andskotans máli...."
Aðstoðarmaður Össurar virðist hafa gleymt mannasiðum sínum að þessu tilefni. Einar Karl Haraldsson er einn af þessum mönnum sem gjarnan setur upp helgislepjusvipinn þegar rætt er um Landið með stórum staf, Ísland, og Guð og Kristni líka með stórum staf. Nú er kominn á hann annar svipur, nefnilega svipur valdsmannsins eftir að hann komst í hóp stjórnmálaelítunnar, en þangað hefur hann lengi langað. Ekki verður vart lítillætis hjá honum frekar en fyrridaginn!
Hvernig stendur á því að stjórnmálastéttin/elítan á Íslandi hefur þetta viðhorf til fjölmiðla? Hefur þetta fólk eitthvað að fela eða er því ekki ljóst hlutverk fjölmiðla í lýðræðisþjóðfélögum? Finnst þessu fólki kannski að okkur hinum komi ekkert við hvað það er að aðhafast? Lítur þetta fólk á sig sem einhverskonar yfirstétt, sem ekki þarf að gera grein fyrir verkum sínum og athöfnum? Eða birtist hér fyrirlitning valdastéttarinnar á fjölmiðlum og fólkinu í landinu? Hverskonar framkoma er þetta eiginlega, sem þetta lið er farið að temja sér? Ítrekað fáum við fréttir af dónaskap og hortugheitum stjórnmálastéttarinnar í garð fjölmiðla, og þá um leið í garð okkar sem viljum fylgjast með því, hvað valdhafar eru að bauka í okkar nafni. Það er nefnilega þannig í lýðræðisþjóðfélögum, að stjórnmálamenn eru í vinnu hjá okkur hinum. Þiggja vald sitt og laun frá þjóðinni. En því hafa þeir greinilega alveg gleymt og hafa tileinkað sér hugarfar horfinna valdsmanna, sem þágu vald sitt frá Guði!
![]() |
Viljayfirlýsing framlengd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.6.2008 | 18:44
Sérdeild Ríkislögreglustjóra: verkefni.
![]() |
Erfið aðgerð framundan að Hrauni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.6.2008 | 23:48
Snillingur-Ekkert minna?
![]() |
Nánast hálfur maður sem utanríkisráðherra |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.6.2008 | 23:04
Djúpt sokkin í fíkniefnaneyslu?
![]() |
Í fjárþröng og djúpt sokkin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.6.2008 | 13:59
Grunnhyggni?
Miðað við ástandið þá má segja að það sé grunnhyggni, að halda því fram að þakka megi stýrivöxtum lækkandi verðbólgu. Stýrivextir eiga jú að hafa áhrif á lánavexti og lán hafa nú um nokkurt skeið ekki fengist í bönkum. Þannig að frekar má segja, að lánsfjárskorturinn sé farinn að hafa áhrif og stýrivextir seðlabankans koma þar hvergi nærri. Að það sé farið að sverfa að heimilunum í landinu má svo "þakka" óðaverðbólgunni, sem hefur hækkað svo greiðslubyrði af húsnæðislánum heimilanna, að margur hefur ekki lengur efni á éta. Menn verða að athuga að meginþorri almennings hafði ekki úr miklu að moða og nú hefur enn verið þrengt að þessu fólki sem ekki hefur 2x500.000 krónur í mánaðarlaun og ekki hefur ekið um á 5-10 milljón króna bílum. Og þessi meginþorri almennings mátti hreinlega ekki við þessum efnahagslegu hryðjuverkum sem dunið hafa á honum.
![]() |
Háir stýrivextir farnir að bíta |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.6.2008 | 20:41
Hnífamaður af Norrænu kyni?
![]() |
20 mánaða fangelsi fyrir hnífaárásir |
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana. |
6.6.2008 | 17:41
Hundtyrki og hundsvitni.
Sá að menn voru að ræða orðið hundtyrki og eitthvað að kljást. Í Ritmálsskrá Orðabókar Háskólans má finna fjölda orða með þessu neikvæða forskeyti, bæði hund- og "hunds-. Og afþví Tyrki kemur við sögu í þessari krytu manna, þá rakst ég á þetta skemmtilega orð: hundsvitni. Eitt dæmi er tilfært:
"kristin vitni eru hundsvitni, og haldi hinn tyrkneski maður kúnni uns betri vitni koma." (Þjóðólfur, 1848-1912)
6.6.2008 | 16:31
Hvaða húmor? Jón Gnarr!
"Lengi tekist á við húmorsleysi." Það er vonandi ekki verið að tala um Jón Gnarr! Það getur verið að það sé voða gaman hjá Jóni Gnarr í vinnunni, en varla skilar það sér í "pródúktinu." Þessar Galíleo auglýsingar eru hrútleiðinlegar, nema náttúrulega fyrir þá sem hafa smekk fyrir aulafyndni, en það er einmitt sérsvið Jóns að leika einhverskonar aula. Enda haft fyrir satt, að leikurum takist einna best upp við að leika persónur, sem eru líkar þeim sjálfum.
Auglýsingin, sem birtist fyrst í þessari kynningarrunu Símans, er eitthvert það ósmekklegasta af öllu ósmekklegu sem gert hefur verið í þessum bransa. Að nota helgustu helgisögu kristninnar, hina heilögu kvöldmáltíð, í ómerkilegri markaðsbrelluherferð gróðapunga, er bæði hallærislegt og dónaskapur.
Hvað næst? Verða foreldrar í sorg eftir barnsmissi næstu fórnalömb auglýsingaskrumarans, eða fósturlát? Nei, ég bara spyr?
Og Jón Gnarr! Fáðu þér aðra vinnu eða stúderaðu smá siðfræði!
![]() |
Lengi tekist á við húmorsleysi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.6.2008 | 23:01
Skv. síðustu málsgrein...
...fréttarinnar sakfelldi héraðsdómur Jón Ásgeir fyrir tilkynningu, sem ekki fannst meðal málsgagna. Athyglisvert! Hæstiréttur sýknaði Jón Ásgeir af þessum lið ákærunnar!
Einnig má lesa úrúr endursögninni í fréttinni að saksóknari hafi farið fram á að Hæstiréttur bryti gegn 1. málsgrein 70. greinar stjórnarskrárinnar með því að ómerkja dóm héraðsdóms um sýknu og senda það aftur í hérað. Athyglisvert!
Mér sýnist eftir að hafa fylgst með umfjöllun um málið í dag, og áður, að ýmsir hafi talið sjálfsagt að dæma Baugsmenn sjálfkrafa seka af öllum ákæruliðum vafningalaust. Þar á meðal ljóskan í Kastljósinu. Hún var hreinlega móðguð og var ekkert að fela það...Frekar en svo margir aðrir sem styðja vald helbláu handarinnar blint og skilyrðislaust!
Var STM að leita hefnda þegar hann lagði fram ákæruna gegn fyrrum vitni Ríkislögreglustjóra (og ritstjóra Mbl. og geðvonda lögfræðingsins). Í stað þess að vera aðalvitnið og kærandi í málinu er Jón Gerald allt í einu kominn á sakamannabekk með þeim sem hann kærði með aðstoð nokkurra málsmetandi Sjálfstæðismanna...
![]() |
Ekki fært að endurskoða sönnunarmat héraðsdóms |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.6.2008 | 22:36
Kastljósið í gærkvöldi.
1.6.2008 | 09:40
...að mínu mati."
Ætti Jón Gerald Sullenberger að hætta að reyna að níða niður dómskerfið á Íslandi. Margir hafa reynt með litlum árangri, þar á meðal Davíð Oddsson og Mogginn! Og hafa ekki vaxið að virðingu við, heldur orðið sjálfum sér til minnkunar. Jón ætti að snúa sér að því áfram sem hann gerir sjálfsagt best, að höndla með amrískan pakkamat!
P.s. Hverjir skyldu hafa unnið að uppsetningu og vinnslu þessa vefs Jóns Geralds? Ætli einhverjir í Hádegismóum hafi aðstoðað Jón, og kom hægðatregðudrottningin við sögu?
P.p.s Þessi Jón Gerald Sullenberger er þessi sami Jón, sem gat ekki fundið sér lögfræðing á Íslandi hjálparlaust hér um árið!
![]() |
Birtir gögn úr Baugsmálinu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |