19.10.2009 | 16:36
Hin flokkspólitíska tilfinningasemi helmingaskiptaflokkanna!
Bjarni Benediktsson, Tryggvi Þór Herbertsson og Birgir Ármannsson ræddu allir um Icesave undir liðunum "óundirbúnar fyrirspurnir" og "fundarstjórn forseta." Það er aungvu líkara en almenn skynsemi og góð greind þessara manna rjúki á dyr um leið og þeir opna munninn um pólitík. Þá tekur við hin flokkspólitíska tilfinningasemi þeirra, gjarnan kenndar við skotgrafir. M.a. mátti Birgir vart mæla af hneykslun, þegar hann dró það uppúr pússi sínu að undirritaður hefði verið svokallaður Icesave-samningur í dag, áður en Alþingi hefði rætt málið!!! Málflutningur flokksbræðra hans var á svipuðum nótum!
Flokkssystir þingmannsins, háttvirtur forseti Ragnheiður Ríkharðsdóttir, benti honum góðfúslega á, og í vingjarnlegum tón hins vana uppalenda, að milliríkjasamningar væru iðulega undirritaðir með fyrirvara um samþykkt Alþingis og svo væri að þessu sinni! Þingmaðurinn hafði sem sagt brennt af!
Síðan hóf Sigmundur Davíð umræðu um AGS utandagsskrár. Það er einsog SDS hafi ekki heyrt af því að samningur við AGS snýst ekki aðeins um peningalánin heldur líka um aðgerðaráætlun í efnahagsmálum þjóðarinnar. Endurskoðun á þessari aðgerðaráætlun hefur tafist von úr viti og tafið fyrir vinnu í endurreisn efnahagslífsins. Það skal undirstrikað að það var ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar sem stóðu að samningi við AGS!
Sigmundur er á sama báti og aðrir félagar helmingaskiptaflokkanna í opinberri umræðu, að um leið og hann opnar munninn um pólitík tekur tilfinningasemin stjórnina af almennri skynsemi hans og hann hrekkur í hinar pólitísku skotgrafir.
Ég er alveg örugglega ekki einn um það að bíða enn eftir, að flokksmenn helmingaskiptaflokkanna ræði á Alþingi ábyrgð sína og flokka sinna á því fjármálakerfi, sem byggt var upp hér í stjórnartíð þeirra, og hrundi hér í haust. Sú uppbygging hófst á einkavinavæðing bankanna, og hélt svo áfram undir kjörorðinu "það er kannski best að gera ekki neitt." Laissez faire. Fræi hrunsins var sáð með uppbyggingu þessa fjármálakerfis.
Nú ætla ég að óska eftir að þeir taki málið fyrir á Alþingi og reki fyrir landsmönnum, hvernig þessi stefna, og gerðir af henni leiddar, er alfarið á ábyrgð flokkanna tveggja Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins, helmingaskiptaflokkanna!
![]() |
Óviðunandi niðurstaða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.10.2009 | 16:09
Af flokkspólitískri tilfinningasemi!

Sakar Steingrím um kúvendingu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
16.10.2009 | 12:44
Fréttir Baugs-miðla í Mogga?
Nú er ég hlessa!
Þessi skoðanakönnun sýnir og sannar gullfiskaminni kjósenda. Lýðskrum helmingaskiptaflokkanna hefur skilað sínu! Ferill þeirra skiptir engu!
![]() |
Ríkisstjórnin rétt héldi velli |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.10.2009 | 12:25
Loksins eitthvað að viti?
Eftir allan áliðjuáróðurinn koma loksins fréttir af einhverju, sem til framfara horfir. Allt tal um stóriðjuna,sem á að ganga fyrir orku sem ekki er til, einsog t.d. Helguvíkurverksmiðjan, hefur kæft umræðu um allt annað. Það er einsog stóriðjudraumurinn hafi breyst í þráláta þráhyggju. Nánast ekkert annað hefur verið rætt af sumu fólki. það hefur ekki séð neitt annað sem geti horft til framfara í atvinnulífinu.
Talandi um Helguvík, hvaðan á öll þessi orka, sem fyrirtækið þarf, að koma? Það væri gott, ef þeir sem hafa lýst sig svona fylgjandi þessu álveri upplýsi okkur um það sundurliðað eftir virkjunum.
Eftirfarandi er listi úr skýrslu iðnaðarráðuneytisins um þá orku, sem hugsanlegt er að virkja fyrir áliðjudrauminn. Þegar þessi orka hefur verið virkjuð, eru virkjunarmöguleikar á suðvesturlandi uppurnir. Þá verður engin virkjanleg orka eftir til að sinna öðrum verkefnum í þessum landshluta! Helguvíkurálbræðslan þarf 625 MW í endanlegri stærð. 90 MW eru frátekin fyrir Norðurál í Hvalfirði!
625 MW + 90 MW = 715 MW
Virkjanir í neðri hluta Þjórsár: Hvammur 80 MW, Urriðafoss 120 MW, Holt 50 MW=250 MW
(Búðarháls 75 MW. Orkan frá Búðarhálsi er víst frátekin fyrir RioTintoAlcan, sem nú hótar öllu illu vegna væntanlegra skatta.)
Reykjanes 50 MW, Krýsuvík (Trölladyngja) 100 MW, Hellisheiði 300 MW=450 MW
Samtals eru þetta 700 MW. Frekari rannsóknir þarf að gera á háhitasvæðum á Reykjanesi. Ekki er fullvíst að hægt sé að fá alla þessa orku frá háhitasvæðunum vegna breytinga, sem orðið hafa á þeim vegna þeirra virkjana sem þegar hafa verið reistar.
![]() |
Skóflustunga metanólverksmiðju |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.10.2009 | 11:29
Fari þeir sem fara vilja...
RioTintoAlcan er nú komið á kaf í innanlandspólitíkina. Nú stendur uppá Landsvirkjun að upplýsa landslýð um það raforkuverð, sem álfurstarnir borga hér. Samanburður við heimsmarkaðsverð má fylgja. Það er hámark ósvífninnar að erlendir auðhringir skuli ekki geta látið það ógert að vera með svona hótana-spuna á hendur ríkisstjórn Íslands, hver sem hún er hverju sinni!
Ef RioTintoAlcan vill ekki beygja sig þegjandi og hljóðalaust undir þær reglur, sem réttkjörinn yfirvöld landsins kjósa að setja má fyrirtækið einfaldlega fara. Það eru væntanlega einhverjir aðrir í heimi hér sem vilja reka álbræðsluna, sem væntanlega yrði yfirtekin af ríkinu vegna samningsbrota, fari svo að RioTinto vilji ekki vera hér lengur! Hótana-spunameistarinn fylgir væntanlega húsbændum sínum frekar en þjóð sinni!
...og veri þeir sem vera vilja!
![]() |
Kipptu að sér höndum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 11:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
15.10.2009 | 17:56
Noregsför Framsóknarformannanna og gleypigangur óhæfra fjölmiðlamanna!
Fjölmiðlamenn ófróðir og vinna ekki vinnuna sína. Gleypa við öllu vegna þekkingar- og reynsluleysis? Þorbjörn Broddason tekur fjölmiðla á beinið.
http://dagskra.ruv.is/ras1/4511522/2009/10/14/2/
Skítt með almenning, sem þegar sýpur dauðann úr skel eftir hrunið! Sjá menn verðbólguna fyrir sér! Og svo vill Bjarni fá að gambla með sjóði lífeyrisþega nútímans og framtíðarinnar. Hirða skatttekjur af börnunum, skattgreiðendum framtíðarinnar. Nú sjá bankavinamennirnir að eina féð sem til er í landinu, það fé sem ekki er búið að tapa í botnlausri spilamennsku kapítalismans, og vilja endilega komi því í súginn líka! Ég segi nei takk! Ég vil ekki meiri verðbólgu, og ég vil ekki gefa Bjarna og félögum lífeyrissjóðina til að borga spilaskuldir vina Sjálfstæðisflokksins!
Það er hinsvegar alveg nýtt, að Sjálfstæðisflokkurinn vilji ekki flatan niðurskurð! Finnst einhverjum þetta trúverðug sinnaskipti?
![]() |
Svigrúm til að lækka ríkisútgjöld verulega |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14.10.2009 | 16:11
Kannski er bara best að gera ekki neitt?
![]() |
Krefjast lausnar á Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.10.2009 | 15:41
Svalir í annarlegu ástandi?
Þá er ekki nema von að maðurinn dytti fram af.
"Maðurinn var í annarlegu ástandi en hann er ekki búsettur þar sem óhappið varð."Mbl.is. Er þetta eitthvað málinu viðkomandi?
Þetta er skrítna frétt vikunnar! Ekki atburðurinn heldur fréttin!
![]() |
Féll fram af svölum í annarlegu ástandi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.10.2009 | 15:30
Hef mínar efasemdir.
![]() |
Ráðin kosningastjóri Sjálfstæðisflokksins |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.10.2009 | 15:09
Leyniskjal?
![]() |
Rannsóknarskýrslu seinkar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:15 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
14.10.2009 | 12:32
Nýsköpun?
Er allt orðið nýsköpun, hversu gamalt og tuggið það er? Eða opna matvörubúð, er það nýsköpun?
Ég tek undir með Haraldi Haralds. Jón Sullen á að hætta þessu væli! Annaðhvort opnar hann þessa matvörubúð á heiðinni eða ekki!
Ég var nú að spá í að skrafa soldið um viðtalið við Friðrik, lúser í búðarrekstri, en ég nenni því varla. Það er varla eyðandi orðum á fólk sem telur viðskiptavini Bónuss Maóista, Stalínista eða Nazista svonu upp til hópa. Eftir þá romsu hans steinhætti ég að taka mark á einu orð, sem frá hans kjafti kom!
Ég veit ekki hverslags "manía" er skollin hér á í sambandi við Bónus. Mér er slétt sama hversvegna ódýrara er að versla hjá Jóa. Og mér finnst með ólíkindum að kenna vinnu brögðum hans um hátt vöruverð á Íslandi. Ef einhver getur boðið betra verð, hversvegna í skollanum gerir hann það ekki? Og án þess að væla!
P.s. Ég heyrði það í útvarpinu í gær, að verð í Krónunni væri hækkað eftir lokun hjá Bónus. Ætli geti verið að þetta sé rétt? Ef svo er, er það löglegt? Eða má Krónan allt? Kannski er það löglegt en siðlaust, einsog flest í þessu þjóðfélagi auðhyggjunnar!
![]() |
Alvarlegt fyrir nýsköpun |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:33 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
9.10.2009 | 21:06
Almælt tíðindi í samantekt Seðlabankans og tilkynningu Jóhönnu!
Í Ekki Fréttum var þetta helst: Seðlabankinn setur saman
i álitsgerð almælt tíðindi um stöðu mála! Jóhanna gefur út yfirlýsingu/tilkynningu sem innheldur þessi almæltu tíðindi! Og hvað gerist? Það verður allt vitlaust í boði ábyrgðarlausustu stjórnmálamanna á Íslandi, fyrr og síðar, þeirra Bjarna Ben. og Sigmundar Davíðs! Þeir skamma Jóhönnu fyrir að hafa gefið út tilkynningu almæltra tíðinda! Þeir vildu sem sagt halda þessum almæltu tíðindum leyndum fyrir almenningi og Bretum og Hollendingum! Þetta eru mennirnir sem hafa heimtað allt uppá borðið til þess. Nú vilja þeir halda almennum tíðindum leyndum!
Jón og Gunna sem vinna hjá Granda og Krónunni vissu þetta allt saman. Jerry og Geraldine sem vinna hjá Tesco vita þetta líka, jafnvel og hún Erica Ljósaljós á búllunni í Amsterdam. Ríkisstjórnir Breta og Hollendinga vissu þetta allt saman. En ekki Bjarni Ben og Sigmundur Davíð. Það hlýtur að minnsta kosti að vera ástæðan fyrir því að þeir vilja halda þessum almæltu tíðindum svona rosalega leyndu!!!
Um daginn afhjúpaði Bjarni Ben fáfræði sína, Þegar hann hélt sig vera fyrstan manna til að uppgötva að AGS er handrukkari m.a. Breta og Hollendinga. Og upplýstu okkur um það í fréttaviðtali ábyrgum og fræðandi tón!. Þetta voru almælt tíðindi löngu áður en Bjarni Ben kveikti á perunni í málinu. Sigmundur Davíð átti svo sitt útspil á svipuðum nótum með blaðri sínu um hið ímyndaða norska lán. Og fylgismenn Litla og Stóra í íslenskri pólitík éta uppeftir þeim vitleysuna! Ja, hérna hér!
Athyglisverð færsla http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/entry/962176/?fb=1 um ferðafélaga Sigmundar Davíðs í Noregsreisu!
![]() |
Alvarlegar afleiðingar af frekari töfum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
8.10.2009 | 17:53
Héðan í frá...
![]() |
108 milljóna kostnaður vegna Baugsmáls |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.10.2009 | 17:48
Styttist nú í ASÍ-þing?
![]() |
Ef þið viljið stríð þá fáið þið stríð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
8.10.2009 | 11:32
Eru Norðmenn betri lánardrottnar en aðrir?
Ein helsta hættan fyrir þjóð sem lendir í efnahagshruni, er skuldagildran! AGS og Alþjóðabankinn hafa lengi leikið þann leik, að lána og lána þjóðum sem lenda í efnahagskröggum stórfé. Á endanum verða svo skuldirnar það miklar, að engin von er til þess að nokkurn tíma sé hægt að greiða þær. Þessvegna þarf að umgangast öll lán með töngum. Freistast alls ekki til að nota það fé sem fengið er að láni.
Mig grunar að hér sé Sigmundur í ævintýraför aðeins til að slá sjálfan sig til riddara. Hingað til hafa Norðmenn ekki verið neitt sérlega viljugir. Létu t.d. undan þrýstingi AGS og afgreiddu ekki 100 milljarða lán til okkar í haust. Stoltenberg hefur sagt að ekki sé von til að breyting verði á stefnu Norðmanna. En kannski hér hafi orðið breyting á? Hver veit?
Það setur að manni ugg, þegar maður veltir fyrir sér þeim möguleika, að helmingaskiptaflokkarnir með þessa popularista í formannssætum komist til valda. Með allt þetta lánsfé til að "kaupa" sér vinsældir kjósenda og þó sérstaklega til að útdeila til nýrra S-hópa og manna "í talsambandi við flokkinn." Flokksgæðingar helmingaskiptaflokkanna eru nefnilega enn á kreiki!
--------------
Þeir eru að verða svolítið kostulegir, þessir kumpánar formenn helmingaskiptaflokkanna, þeir Sigmundur Davíð og Bjarni Ben. Sigmundur minnir á uppreisnargjarnan ungling á erfiðu mótþróaskeiði. Bjarni Ben slær úr og í, og segir eitt í dag og annað á morgun. Lengst af hefur hann haldið því fram að AGS-endurskoðunin og afgrreiðslan á láninu strandaði á að ríkisstjórnin hefði ekki staðið við áætlunina fyrir sína parta. Ekki hefur hann orði hallað á AGS. Nú er hann skyndilega búinn að fá altalaðar upplýsingar um AGS, að AGS vinni fyrir stórþjóðirnar sem eiga aðild að honum, og sé einskonar handrukkari þeirra. AGS sé að rukka fyrir Breta og Hollendinga! Sjaldan lýgur almannarómur!
Frá því í vetur er Barni búinn að endurtaka aftur og aftur að ríkisstjórnin sé ekkert að gera og að ástandið sé bara að versna og versna. Í Kastljósinu hér um kvöldið kvað alltíeinu við annan tón, þegar Bjarna vantaði rök fyrir að óhætt sé að reka AGS (hann trúir því sem sagt ennþá að AGS sé alþjóðleg félagsmálastofnun). Nú varr landið farið að rísa og gott ef ekki atvinnulífið farið að taka við sér! Hvort er það? Og er þá ekki ríkisstjórnin þó eitthvað að gera? Eitthvað smá?
![]() |
Mikill velvilji í garð Íslands |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
7.10.2009 | 16:05
Til lítils að biðjast fyrirgefningar?
Hér svara flestir afsökunarbeiðni Jóhönnu Sigurðardóttur með skætingi. Sem kannski getur sagt manna, að Jóhanna hefði betur látið þetta ógert!
Ég ætla að gerast svo djarfur að þakka Jóhönnu fyrir mína hönd og minnar fjölskyldu. Jóhanna sýnir hér eina ferðina enn, að hún er stærri manneskja en ýmsir samferðamenn hennar undanfarin ár. Hún telur augljóslega ekki lítilmannlegt að biðjast fyrirgefningar. Við það verður Jóhanna enn stærri!
Takk fyrir!
![]() |
Biður þjóðina afsökunar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Borga þessir greifar svona mikla skatta? Nei! Málmbræðsluiðnaðurinn greiddi 2,4 milljarða í skatta 2006. Það voru heil 0,43% af tekjum hins opinbera! Nei, það er satt, skattpínd eru þessi grey, svei mér þá! Og skiluðu heilum 2% af hreinum þjóðartekjum, eða innan við 16 milljörðum, mest launum! Það eru sem sagt álverin öll þrjú í eigu Norðuráls, Alcoa (hóf reyndar ekki rekstur verksmiðju fyrr en í apríl 2007), Járnblendiverksmiðja Elkem og RioTintoAlcan! Og varla er þrautin þyngri hjá Sementinu.
Skattar 2,4 milljarðar 0,43% af tekjum hins opinbera. 2006.
Skila nær 16 milljörðum af hreinum þjóðartekjum eða 2%. 2008. Það ár var Kárahnjúkaskrímslið komið í fullan rekstur og Alcoa farið að telja! Fjórar málmbræðslur ná ekki að skila meiru en tæpum 2% af þjóðartekjum!
Mengunarskattur 0 krónur.
6.10.2009 | 17:58
Baggalútur: Þetta er búið! "...meiddin verði örugglega kysst."
Kannski kominn tími til að taka upp annan og léttari snúning á hruninu?
Hlusta: http://baggalutur.is/mp3/Baggalutur_Thetta_Er_Buid.mp3
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.10.2009 | 22:08
Ræður Bjarna og Sigmundar! Er þeim treystandi?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)