14.10.2007 | 21:32
Hvar var Villi?
![]() |
Einkaréttarsamningur til 20 ára ekki í tillögum á eigendafundi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.10.2007 | 21:15
Sök bítur sekann!
13.10.2007 | 20:36
Fallnir frá!
![]() |
Tók gjald fyrir eftirlit með aflífuðum hundum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
13.10.2007 | 15:40
Asnastrik Villa, aftur og enn!
Undir þennan samning skrifaði Villi borgarstjóri og samþykkti án umboðs fyrir hönd eigenda OR, þ.e. Reykvíkinga. Hann fékk pokann sinn og líka hinir litlu borgarstjórarnir í djélistanum. Er nema von að Sjálfstæðismönnum sárni svikin við sig. En þeim virðist ekki sárna svikin við borgarbúa, sem felast m.a. annars í þessum samningi. Borgarstjórnarflokkur djélistans stendur sem einn maður að baki sínum manni, allir sem einn. Þrátt fyrir þennan samning, og fleiri samninga, sem skrifað hefur verið undir án umboðs frá lýðræðislega kjörnum fulltrúum.
Svandísar og félaga bíður mikið verk við að rannsaka og leiðrétta þá svikamyllu sem gangi hefur verið í OR og REI.
Ég sting uppá að fyrirtækið REI verði einfaldlega leyst upp. Reykjavíkurborg taki aftur eignir sínar, þar á meðal hlutafé, sem hefur verið ráðstafað til REI og fleirri án umboðs bak við tjöldin og á ólöglegum stjórnarfundi.
Sjálfstæðismenn eiga að hætta að hengja bakara fyrir smið. Snúa sér að Villa sínum og láta Björn Inga í friði. Það stendur þeim nær, enda hægari heimatökin!
![]() |
Tuttugu ára skuldbinding ekki kynnt fyrir borgarfulltrúum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
12.10.2007 | 20:20
Spyrlar og álitsgjafar.
12.10.2007 | 14:07
Samkvæmur sjálfum sér!
12.10.2007 | 13:52
Hverjir eiga auðmennina?
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.10.2007 | 20:24
Ríkissjónvarpið og pólitíkin!
Áður hef ég fullyrt að RÚV sé hallt undir Sjálfstæðisflokkinn. Það kom berlega í ljós í Kastljósi kvöldsins. Hægri drengurinnn Sigmar reyndi hvað hann gat að sauma að oddvitum nýja meirihlutans og var á köflum ansi hvass. Síðan kemur Vilhjálmur Þ. í viðtal þar sem tekið er á honum með þvílíkum silkihönskum og fær að blaðra með sína vitleysu fram og til baka á sínum forsendum. Sérkennilegt drottningarviðtal! Það hefði t.d. mátt fara ofaní saumana á því hvernig fyrri stjórnarmeirihluti taldi sig geta ráðskast með eigur borgaranna á löglausum fundum bakvið luktar dyr án umboðs, ef ég skil spurningu Umboðsmanns Alþingis rétt. Allaveg sér Umboðsmaður ástæðu til að spyrja um þetta atriði. Og reyndar held ég að kjósendum hafi verið nóg boðið. 80% þeirra sem þátt tóku í skoðanakönnun á vísi.is vildu losna við Vilhjálm og þar með D-listann.
Sjálfstæðismenn tuða um að borgin eigi ekki að taka áhættu með skattfé borgaranna með því að taka þátt í áhætturekstri. Á OR fyrirtæki borgaranna ekki hlut Enex fyrirtæki sem tekur þátt áhætturekstri í útlöndum, m.a. í Kína. Er ekki Landsvirkjun að hluta í eigu borgarinnar og í áhætturekstri. Lekur ekki af þessu tækifærismennskan?
Svo má benda á að borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins bíða eftir öðru tækifæri að geta stungið Villa í bakið aftur og tekið hann af sem leiðtoga í borginni!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
11.10.2007 | 18:01
80% borgarbúa vildu Vilhjálm úr borgarstjórastólnum! Takk!
Nú er ljóst að ekki dugði að fórna Hauki Leóssyni í holumokstri borgarstjórnarflokks D-listans. Eitt alsherjarklúður í OR og REI málinu felldi borgarstjórnarmeirihlutann. Gísli Marteinn og fleiri höfðu stór orð um vináttuna á blaðamannafundinum. Það má kannski spyrja Hauk um vináttuna við Villa. Sjálfstæðismenn töluðu mikið um ágreininginn um söluna á REI. Ætli aðdragandinn að þessu máli öllu sé ekki frekar ástæðan fyrir falli meirihlutans. Björn Ingi er náttúrulega bara að bjarga eigin skinni. Það er einfalt: Upp komst um strákinn Tuma! Leynimakkið og pukrið í OR og REI er allt að komast uppá yfirborðið. Almenningi er misboðið. Umboðsmanni Alþingis er ofboðið og spyr hvaðan stjórnarmönnum í OR og REI kom vald til að fara með og ráðstafa hlutafé og eignum OR sem sínum eigin. Í framhaldinu væri gott að umboðsmaðurinn leyti eftir upplýsingum um það, hvernig standi á því að RÚV er farið að virka einsog einkaútvarp og sjónvarp Sjálfstæðinmanna. Dæmi: Strax eftir blaðamannafund nýja meirihlutans voru 2 þingmenn Sjálfstæðisflokksins, Bjarni Ben. og Sigurður Kári komnir í beina útsendingu á rás2. Og strax eftir blaðamannafund Vilhjálms og félaga í sjónvarpinu er formaður Sjálfstæðisflokksins í viðtali í beinni útsendingu. Reyndar hafði Bogi Ágústsson endursagt ræður flokksfélaga sinna áður. Allt klárt fyrirfram fyrir flokkkinn! En það er von að borgarstjórnarflokkur D-listans sé sár. Það er ekki bara að þau hafi tapað meirihlutanum í borginni, heldur verða nú flest þeirra að fara að skipuleggja einkahagi sína uppá nýtt. Auðvitað er það áfall að missa vinnuna. Að ég tali nú ekki um hálaunuð borgarfulltrúa störfin með öllum nefndalaununum. Og horfa fram á þurfa að fara í verr borgaða vinnu, já mikið verr borgaða. 1200-1400 þúsund króna störf liggja ekki á lausu fyrir hvern sem er. En það vantar fólk á leikskólum borgarinnar!
10.10.2007 | 18:34
Stefnt að því eða ekki? Tapast hefur skoðun...


8.10.2007 | 15:59
Já, já! Nú skal stungið í feitt!
![]() |
Stefnt að því að selja hlut Orkuveitunnar í REI |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.10.2007 | 14:16
Ógildið samningana!
![]() |
Tilbúinn að ræða hvort OR dragi sig út úr útrás |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.10.2007 | 14:03
Ógildið samningana!
![]() |
Minnihlutinn í borgarstjórn biður um aukafund vegna REI |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
8.10.2007 | 13:51
Ólöglegur gjörningur?
![]() |
Fundur borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins að hefjast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.10.2007 | 13:18
...úr pípulögn OR.
Meira af Orkuveitunni. Í fréttum í gær er sagt frá klóaksflóði á Reykjavíkurflugvelli. OR neitar að lagfæra bilun í frálagnakerfi á svæðinu, því liggur klóakvatnið yfir svæðinu með öllu því innihaldi sem fylgir. Viðbrögð Orkuveitustarfsmanna koma ekki á óvart þeim sem lent hafa í svipuðu. Hér í Stórholti í Reykjavík myndaðist í sumar fall í malbikinu, ansi góð hola. Hér höfðu á síðasta ári staðið yfir framkvæmdir undir yfirumsjón starfsmanna OR. Viðbrögð starfsmanna Orkuveitunnar sem talað var við voru þau að þetta væri mál húseigenda hér við götuna næst holunni. Þetta væri þeirra mál og þeir ættu að láta lagfæra fallið. Það hlyti að vera leki í skolplögn frá húsinu. Gekk svo í nokkrar vikur, en á endanum lét framkvæmdasvið borgarinnar laga skemmdirnar í götunni.
Meira af framkvæmdunum á vegum OR. Hér í götunni voru allar lagnir OR endurnýjaðar síðastliðið sumar. M.a. var lögð ný kaldavatnslögn í öll hús. Húsin hér í götunni eru tvískipt og áður var aðeins ein kaldavatnslögn fyrir hvert hús. Nú voru lagðar tvær lagnir vegna tvískiptingar húsanna. Þegar OR var beðin um að tengja kaldavatnslögnina við kaldavatnsdreifilögn hússins þeim megin þar sem ekki var inntak áður, þá tengdu starfsmenn OR hina nýju kaldavatnsinnlögn við næsta kaldavatnskrana í kjallaranum hér í húsinu. Spurning hvort maður á að vera þakklátur fyrir að þeir tengdu ekki inná eldhúskranann. Öll samskipti við OR hafa verið þannig að starfsmenn hafa svarað með hroka og yfirlæti, einsog lýsir sér í samskiptunum með holuna og klóakflóðið í fréttunum í gær. Maður spyr sig hvort OR lítur ekki lengur á sig sem þjónustufyrirtæki í almannaeigu. Fyrirtæki sem á að greiða úr málum neytenda þeirrar þjónustu sem OR selur okkur, einstaklingum og fyrirtækjum. Í staðinn er komið fyrirtæki sem rúllar yfir neytendur og vill greinilega ekki þjónusta neytendur!
7.10.2007 | 12:50
...úr pípulögn.
Nú er það þannig að stjórnarfundurinn sem tók ákvörðun um sameiningu REI við Geysir Green Energy var trúlega ólöglegur og því er sameiningin ólögleg. Það liggur því ljóst fyrir að rifta verður samningunum um sameininguna. Síðan verður að hefja vinnuna uppá nýtt, annað er ólöglegt. Þetta er ekki flóknara en það!
5.10.2007 | 22:06
Stjórnarfundur OR.
5.10.2007 | 20:40
...úr pípulögn?
Svolítið merkilegt að sjá málflutning kaupsýslumannanna í þessu OR-máli. Hvað var það sem hastaði svona mikið, að svína varð á löglegum og lýðræðislegum vinnubrögðum? Það er náttúrulega hreint bull að stórviðskipti gangi með svona miklum ógnarhraða í alþjóðlegu viðskiptaumhverfi. Samrunar og sameiningar stórfyrirtækja taka nú ekki svona skamman tíma! Kannski skýringuna á hraðanum sé m.a. að finna á heimasíðu REI. Þar telst nefnilega REI og Geysir Green eigandi allra virkjana og mannvirkja OR og 48% hlutur í HS er líka kominn í eigu REI og Þar með Geysis Green. Þá er sem sagt ekkert eftir af OR nema Orkuveituhúsið og pípulagnirnar í götum Reykjavíkur. Og svo náttúrulega hlutabréf í áhættusæknu fyrirtæki með óvissa framtíð. Það er áhyggjuefni að eigur OR skuli komnar í hendurnar á mönnum, sem nýlega ákváðu að fjárfesta fyrir 9,5 milljarðar á Filipsseyjum einu spilltasta ríki sem sögur fara af. Ég myndi ekki treysta svoleiðis mönnum fyrir tíkalli yfir götu!
Raunar minna vinnubrögðin við þessi viðskipti með eigur OR óþægilega á útdeilingu eigna Sovétríkanna til alskyns vafasamra pappíra í tíð fyllibyttunnar Jeltsíns. Fyrir hvað er verið að smyrja peningum á ýmsa einstaklinga sem koma við sögu í viðskipunum og rekstri OR. Er verið að kaupa eitthvað? T.d. þögn?
![]() |
Grundvöllur fyrir höfðun dómsmáls til ógildingar eigendafundar í OR |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
4.10.2007 | 19:34
Spilling hér og spilling þar!
![]() |
Vilhjálmur: Kannast ekki við að hart hafi verið sótt að mér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.8.2007 | 15:58
Og hvað?
![]() |
Gefur ekki kost á sér til endurkjörs sem formaður SUS |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |