Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Helgi Áss Grétarsson one of the Indefence-group's founders and...

...an adviser to the Icelandic Government in the Icesave-conflict considers inevitable to complete the Icesave-case. Inevitable to resolve conflicts with the British and Dutch governments and pay them back their loans, he says.

Helgi Áss Grétarsson einn af upphafsmönnum Indefence og...

...ráðgjafi ríkisstjórnarinnar í Icesave-deilunni telur nauðsynlegt að klára Icesave -málið, sem fyrst.  Ekki verði hjá því komist að leysa ágreininginn við Breta og Hollendinga og greiða stjórnum þeirra.
mbl.is Undirskriftir gegn Icesave vekja athygli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allir 13!

Allt frá Stekkjarstaur til Kertasníkis.  Allir þrettán vilja komast í bæjarstjórn Hafnarfjarðar!
mbl.is 13 í prófkjör í Hafnarfirði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það er sama hvar frómur flækist!

Reykur í Hlíðaskóla

mynd sjá www.visir.is  
Hvað varst þú að gera þarna, Árni minn Gunnarsson/Reykur?

Ruglið í manninum! Allt getur gerst í boltanum! 76,7% kjósenda skrifuðu EKKI undir!

Þessi formaður Framsóknarflokksins er sennilega einn skelfilegast lýðskrumarinn í íslenskum stjórnmálum, fyrr og síðar.

En þetta og Indefencedeild Framsóknarflokksins hafa undirskrifendur verið að elta á Bessastaði og víða.  M.a. hafa börn, sem fædd eru 2006-2008 skráðu nöfn sín í undirskriftasöfnun Framsóknarflokksins.

Það ætla ég bara að vona, að Framsóknarflokknum takist að skipta um formann áður en hann kemst í ríkisstjórn.  Ef völva DV hefur rétt fyrir sér, hrökklast Sigmundur frá á árinu og Guðmundur Steingrímsson verður formaður.  Vonandi að það rætist.

Hvað varðar þá spurningu, hvort forsetinn staðfestir lögin eða ekki, þá verður hann ekki í neinum vandræðum með að rökstyðja það.  Jafnvel gefinn og vanur rökræðum og hann er.  Það verður ekki byggt á ruglinu úr Sigmundi Davíð Gunnlaugsson!

Að lokum.  Það yrði skammgóður vermir fyrir stjórnarandstöðuna,  Indefence-deild Framsóknarflokksins og undirritendur neitaði forsetinn að staðfesta lögin.  Talsverður minnihluti kjósenda ritaði nafn sitt sannanlega á listann.  Látum það vera þó 56.000 manns  hafi  sett nafn sitt á hann, sem gerir ca. 23,3% kjósenda.  Þrátt fyrir mikinn trumbuslátt, áróður helmingaskiptaflokkanna og auðvelt aðgengi að því að skrifa undir, létu sem sagt 76,7% kjósenda það ógert.  Fjölmiðlamönnum þykir þetta afskaplega merkilegur árangur.  Þeir um það. 

1974, 15. janúar-20. febrúar safnaði hópur manna, svokallað Varið Land,  55,522 undirskriftum.  Undirskriftasöfnunin fór öll fram í höndunum.  Varið Land var hópur manna, sem þótti alveg afskaplega nauðsynlegt að hafa hér amrískt herlið.  Hermangið var ansi drjúgt í vasa ýmissa merkra Sjálfstæðismanna.  Fyrir utan náttúrulega, að þetta fólk trúði því alveg statt og stöðugt, að Rússarnir myndu ryðjast hér inn á hverju augnabliki og myrða hér hvert mannsbarn og senda vofurnar í Gúlakið, væri landið herlaust.  Reyndar fór herinn og við erum hér enn!  Það hefur verið ansi dapurlegt líf, að vera skíthræddur alla daga.  Já, með lífið í lúkunum.  Spyrjið bara Björn Bjarnason!

Það mætti segja mér, að staðfesti forsetinn lögin yrðu afleiðingarnar svona álíka afdrifaríkar og brottför hersins.  Þ.e. hér verður enginn drepinn og lífið haldi áfram.  Endurreisn íslensks samfélags mun geta hafist af fullri alvöru, siðbót mun geta átt sér stað, sekir verða dæmdir og saklausir sýknaðir, börnin ganga í skóla og fólk halda áfram að fæðast og deyja.

Ég óttast frekar þá framtíð, sem bíður staðfesti forsetinn ekki lögin.  Þó ótti minn sé ekki jafn ógnvænlegur og ótti VL-inga!

 


mbl.is „Útilokað að hann geti staðfest lögin“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær Jóhanna!

Jóhanna Sigurðardóttir hefur verið sá stjórnmálamaður, sem almenningur telur einna heiðarlegastan úr þeirra röðum.  Ólíkt áramótaávörpum síðustu 2ja áratuga var ávarpið innihaldsríkt en ekki innihaldslaust raus um ágæti  eigin ríkisstjórnar að mestu.  Þjóðin treystir Jóhönnu áfram.  Þrátt fyrir óvinsælar aðgerðir og þrátt fyrir Icesave.

Sömu sögu er að segja af Steingrími J.  Í dag varð hann í öðru sæti í kosningu um mann ársins.  Þrátt fyrir Icesave og þrátt fyrir óvinsælar aðgerðir ríkisstjórnarinnar.

Þetta segir mér talsvert um hvað þjóðinni finnst eftirsóknarvert í fari stjórnmálamanna.  Þetta segir mér líka talsvert um lýðskrumarana, sem leiða stjórnarandstöðuna.  Þeir komust ekki á blað í þessari kosningu, og hafa í könnunum skorað talsvert lægra en Jóhanna og Steingrímur í könnunum á trausti kjósenda.

Um 20% kjósenda hafa að sögn skrifað undir áskorun Indefence-deildar Framsóknarflokksins.  Vonandi að allir á listanum séu raunverlegir kjósendur, og að allir á listanum hafi sjálfir sett nafn sitt á listann.  Óvíst er um skoðanir undirritara.  Kannski eru einhverjir sem sett hafa nafn sitt þar sömu sinnis og ég.  Ég er á móti því að við þurfum að borga Icesave en ég veit hinsvegar, að við sitjum uppi með Icesave, hvort heldur okkar líkar betur eða ver.  Og ég hef enga trú á að við náum betri samningi verði þessum hafnað.  Þá held ég að Bretum og Hollendingum verði einfaldlega nóg boðið, og verði enn harðari í horn að taka.  Auk þeirra vandræða sem slíkt myndi valda á öðrum sviðum!


mbl.is Krefjumst ábyrgra fyrirtækja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á nú að gera það tortryggilegt?

Ólafur er ekki sá fyrsti í þessu embætti sem tekur sér frest til að skrifa undir.  Hér er greinilega verið að strá fræjum tortryggni. 

Og meðal annarra orða:  Voru Sjálfgræðismenn ekki búnir að margsanna að forsetinn hefði ekki rétt til að neita að skrifa undir?  Og vísa málum til þjóðarinnar?  Hvert stertimennið í þingliði Davíðs Oddjob sannaði það í bak og fyrir í umfjöllun um fjölmiðlalögin! 

Stundum bannað og stundum ekki?


mbl.is Engin ákvæði um frest forseta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Áskorun: Forsetinn skrifi undir!

Það er alger óhæfa að þjóð á valdi tilfinninga sinna greiði atkvæði um þetta mál!  Tilfinningarök íslensku þjóðarinnar eiga ekki við.

Þjóðin er heltekin af aumingjaég hugsunarhætti, ásamt bulli um umsátur vondra útlendinga um hina litlu saklausu þjóð, sem hefur orðið fyrir barðinu á fjárglæframönnum og vondum fólki í útlöndum.

En hvert er sakleysið?  Meirihluti þjóðarinnar kaus þau stjórnvöld yfir þjóðina sem sköpuðu þann óskapnað, sem síðan gat af sér Icesafe-ósómann.  Og þjóðin stóð hjá með stjörnur í augum.  Brjóstið fullt af stolti og augun af aðdáun!  Nú vill þjóðin enga ábyrgð bera.  Siðleysi þjóðarinnar hefur náð nýjum lægðum í undirskriftarlista Indefefence-útibús Framsóknarflokksins!

Hvar er siðbótin?  Hvar er tiltektin?  Hvar eru hin siðferðilegu reikniskil þessarar þjóðar?  Felst allt þetta í að hlaupa fram afleiðingum gerða sinna?

Að axla ábyrgð á afleiðingum gerða sinna og á eigin lífi eru aðeins skref í endurreisn þjóðarinnar eftir siðferðilega niðurlægingu frjálshyggjuáranna.

Forsetinn á að skrifa undir!


mbl.is Forseti tekur sér frest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dansi, dansi dúkkan mín...

"Ólöf Nordal, þingmaður Sjálfstæðisflokks, segir að þessi tölvusamskipti ættu að geta varpað ljósi á hvernig staðið var að kynningu Icesave málsins fyrir utanríkisráðherra í mars á síðasta ári. Þessir tölvupóstar væru til og hún sagðist ekki trúa öðrum en að þeir verði birtir, nema það sé eitthvað í þeim sem stjórnvöld vilja ekki að koma fyrir almenningssjónir.

Ólöf sagði að það ætti ekki að vera neitt því til fyrirstöðu að ljúka Icesave-umræðunni þegar búið væri að birta þessi gögn."  Mbl.

Ekki virðist nú ástæðan fyrir þessu brölti hrunflokkanna mikil hafi Ólöf rétt fyrir sér!  Ekki önnur en spunalist lýðskrumara!


mbl.is Vilja sjá tölvupóstana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Lýðskrum á lýðskrum ofan!

Enn halda lýðskrumarar áfram.  Þessir innræktuðu aumingjar, sem aldrei vilja taka afleiðingum gerða sinna.  Hlaupa svo í vinsældarkeppnir með ábyrgðarlausum gerðum og hjali!
mbl.is Önnur tillaga um þjóðaratkvæði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband