Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Vissu fleiri en þögðu þó!

Að framkvæmdavaldið væri bundið af ákvörðunum Alþingis.  Það breyttist að vísu svolítið í síðustu stjórnartíð Sjálfstæðisflokksins.  Þá var nefnilega Alþingi gjarnan bundið af ákvörðunum formanna stjórnarflokkanna.

Það er einsog mig minni, að alltaf hafi staðið til að upplýsa stjórnarandstöðuna um stöðu mála.  Bjarni fellst á nauðsyn þess að halda sig við leyndina þrátt fyrir stóryrði um annað!  Í gær var það skylda stjórnarinnar að upplýsa stjórnarandstöðuna og þjóðina!

Hvað vill Bjarni Ben uppá dekk?


mbl.is Fundi um Icesave lokið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hin alþekkta undirgefni...

...Morgunblaðsins við útlenda auðhringi brýtur hér af sér allar flóðgáttir.  "Stórtækir auðlindaskattar" hljóðar fyrirsögnin og viðmælendurnir eru alkunnur hægrimaður og talsmaður atvinnurekenda, sem hafa búið hér í bómullarvöggu skattaparadísar auðmanna og fyrirtækja þeirra, og svo talsmaður einhvers víðfrægasta umhverfissóða sem alþjóðavæðingin og kapítalisminn hafa getið af sér. 

Hin undirgefnu stjórnmálaöfl, sem Mogginn er málssvari fyrir, útbjuggu hér skattaparadís fyrir vini sína og umbjóðendur úr stétt auðmanna.  Hinir undirgefnu sömdu við Alcan, og fleiri útlend stórfyrirtæki, um stórfellda skattaafslætti og útsöluverð á raforku, en gleymdu umhverfissköttunum.  Það er reyndar einsog þeir þekki ekki nógu vel eigin hugmyndafræði, því það voru einmitt skoðanabræður þeirra sem uppdiktuðu umhverfisskatta á sínum tíma.  Sérstaka skatta á orkunotkun og umhverfissóðaskap.  Hinir undirgefnu lækkuðu líka skatta á hinum margfræga þennslutíma Kárahnjúkahamfaranna þvert ofaní alla hugmyndafræði, bæði sína eigin og annarra.  Að maður tali nú ekki um hagfræðina.  Að lækka skatta í þenslu hagkerfis er hugmynd sem er óþekkt sem hagfræðilegt stjórntæki annarsstaðar í heiminum.  Undirgefnin var slík, að sagt var:  Ef við lækkum ekki skattana fara bara fyrirtækin úr landi og auðmennirnir fara með fé sitt til útlanda.  Og ef við lækkum ekki skattana og seljum ekki orkuna fyrir nánast ekki neitt kemur ekkert stórfyrirtæki til landsins. 

Skattarnir voru lækkaðir og orkan auglýst á útsölu.  Hvað skeði?  Stóðu forstjórar erlendra auðhringa í biðröð einhversstaðar ólmir að koma til landsins.  Nei, það upphófst allskyns barningur við að væla í forstjórunum að koma nú til landsins.  Sveitarfélög og fyrirtæki steyptu sér í stórskuldir við undirbúning að dýrðinni.  Og ekkert gerðist.  Enginn kom.  Þrátt fyrir skattastefnu hinna undirgefnu   Auðmennirnir, sem hinir undirgefnu vildu fyrir allan mun halda í, fóru með fé sitt til útlanda.  Fé sem þeir reyndar áttu ekkert í.  Þeir rúðu samfélagið inn að skinni, og voru svo farnir.  Bless!  Þrátt fyrir skattastefnu hinna undirgefnu.  Eða kannski vegna hennar.

Nú á að leggja á einhverja smáaura í orku- og umhverfisskatt, og þó upphefst væl hinna undirgefnu.  Það kemur enginn og það fara allir!

Kannski er einmitt ástæðan fyrir hvernig fór með stefnu hinna undirgefnu, að menn vilja frekar eiga samskipti, og þar með viðskipti, við stjórnvöld með sjálfsvirðingu. 

 


mbl.is Stórtækir auðlindaskattar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sóun á almannafé!

Þó lítið sé!  Einsog í heimilisbókhaldinu eru það einmitt litlu upphæðirnar sem telja.  Margt smátt gerir eitt stórt!

Ætli samgönguráðherra væri ekki til í að styrkja mig í að halda úti þessu blogg-rugli mínu?


mbl.is Brussel skrifstofa styrkt áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það var og!

Jafn illa og mér líst á norska lánið sem Höski og Simmi drösluðu með sér í stjórnarráðið? 

 


mbl.is Líst illa á fjárlögin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Viðskiptaráð Íslands.

Við höfum ekkert að sækja til Viðskiptaráðs Íslands, enda standa flestir þeim svo mikið framar á flestum svið!  Eða var það ekki einhvernvegin þannig sem þessir frjálshyggjupappírar orðuðu það sjálfir á sínum tíma?

Hélt kannski einhver hluti Íslendinga að það kostaði okkur ekki neitt að komast útúr hrunarústum frjálshyggjutilraunar Sjálfstæðisflokksins og Viðskiptaráðs? 


mbl.is Skattastefnu stjórnvalda harðlega mótmælt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sekir endurskoðendur?

Hafi þeir skrifað uppá sannanlega fals-bókhaldið eru þeir væntanlega sekir líka!


mbl.is Grunur um fjölda brota
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Reynum að misskilja ekki forsetann!

Eða þannig!

 

Herra Misskilinn.Bandit


mbl.is Viðbúnaður vegna þingsetningar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veruleiki Evrópusambandsins einsog blautur sjóvettlingur!

Það væri kannski ráð að þingmaðurinn kynnti sér hvernig, og fyrir hverja, Evrópusambandið starfar.  Hún hefur sjálfsagt lesið sáttmála og yfirlýsingar, en veruleikinn er allur annar.  Hafi einhver haldið að Evrópusambandið væri góðviljaður samstarfsvettvangur aðildarríkjanna, þá er það rangt.  Evrópusambandið er valdaapparat gamalla nýlenduvelda og auðhringja þeirra.  Það eru hagsmunir þeirra og aungvra annarra, sem þar ráða för.
mbl.is „Þá eruð þið bara vandamál fyrir framkvæmdastjórnina“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki alveg rétt! Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn eru í hlutverki klósettvarðarins og sturta niður!

Frá mínum bæjardyrum séð er það nú frekar alþjóðasamfélagið sem er að sturta íslenskri þjóð niður.  Auðmennirnir gengu hart til verks með hjálp alþjóðaauðvaldins og frjálshyggjusinnaðra stjórnvalda og valdastofnanna þeirra.  Evrópusambandið og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn klára svo verkið með því að skella ábyrgðinni á alþýðu Íslands í innheimtuaðgerðum sínum. 

Furðulegt að Lilja Mósesdóttir sé hissa eftir fund sinn með þingmönnum frá Evrópusambandsríkjunum.  Hafði hún ekki kynnt sér hvernig, og fyrir hverja, Evrópusambandið starfar.  Hafði hún aðeins lesið sáttmála og opinberar yfirlýsingar Evrópusambandsins.  Fékk hún veruleikann í andlitið einsog blautan sjóvettling.  Evrópusambandið lítur nefnilega óskaplega vel út á pappírnum, en veruleikinn er annar.


mbl.is Heilli þjóð sturtað niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meint kaup ríkisins á Glitni fyrir ári.

Fréttamenn endurtaka sömu sögufölsunina aftur og aftur, að íslenska ríkið hafi keypt Glitni fyrir ári.  Hið rétta er að Fjármálaeftirlitið yfirtök bankann í óþökk fyrrum eigenda hans.  Þetta hefur verið gagnrýnt æ síðan.   Hér frétt rúv af málinu á sínum tíma.  Ekki beint samhljóða fréttaflutningi rúv á ársafmæli hrunsins:

 

Fjármálaeftirlitið yfirtekur Glitni

Fjármálaeftirlitið hefur tekið yfir rekstur Glitnis og skipað sérstaka skilanefnd um rekstur bankans. Kaupþing hefur rætt við Fjármálaeftirlitið um aðkomu Kaupþings að uppstokkun Glitnis. Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Glitnis, telur að samningur um 84 milljarða hlutafjáraukningu í Glitni standi enn.

Fjármálaeftirlitið hafi hinsvegar ekki svarað erindinu og hluthafafundur hefur ekki verið boðaður. 

Davíð Oddsson, seðlabankastjóri, sagði í Kastljósi í gærkvöld að Glitnir þyrfti að vera starfhæfur banki ef ríkið ætti að standa við hlutafjárloforðið. 

Nú hefur Fjármálaeftirlitið tekið yfir bankann og því liggur í augum uppi að bankinn er í greiðsluþroti.  Þorsteinn Már stendur hinsvegar enn í þeirri trú að ríkið standi við sinn hlut. Hann telur að hluthafafundur verði haldinn og ríkið sé skuldbundið til að borga þessa peninga inn í bankann.

Þorsteinn Már segir inngrip Seðlabankans í Glitni hafa veikt stöðu íslenska fjármálakerfisins og haft bein áhrif til hins verra.  Hann gagnrýnir Davíð Oddsson Seðlabankastjóra, sem hann segir hafa komið gengisvísitölunni úr 115 í 220 á nokkrum mánuðum hafi ekki betra eftirlit með peningamálastefnunni sen svo að nú séu tveir bankar gjaldþrota. Það segir dálítið um stjórnunarhæfileika þeirra í Seðlabankanum. Þegar hann er spurður um stjórnunarhæfileika stjórnenda í Glitni sem hafi fjárfest og skuldsett bankann gríðarlega þegar lalt lék í lyndi, og hvort þeir hefðu ekki átt að sjá þetta fyruir segir Þorsteinn það ljóst að bankinn hafi verið skuldsettur en hann hafi líka átt miklar eignir sem hefði verið hægt að vinna úr á annan hátt en var gert.

Skjótt skipast veður í lofti í bankaheiminum þessa dagana. Nú vinna fornir fjendur úr eignum Glitnis að næturlagi að því er virðist.  Kaupþing greindi frá því í morgun að viðræður hefðu átt sér stað í nótt milli Kaupþings og fjármálaeftirlitsins um aðkomu Kaupþings að uppstokkun eigna og skulda Glitnis, eins og Kaupþingsmenn orða það.   Már Mássson, upplýsingafulltrúi Glitnis, segir að skýrt hafi komið fram hjá skilanefnd fjármálaeftirlitsins að engin breyting yrði á starfsemi Glitnis hérlendis, starfsmenn bankans og yfirmenn myndu starfa áfram hjá bankanum. 

 

frettir@ruv.is


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband