Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Mogginn er samur við sig!

When the banks were put into administration last October, experts believed that Iceland's banks had simply fallen prey to the global credit crisis.

But Dr Jon Danielsson, an Icelander who teaches economics at the London School of Economics, believes that while the timing of the crash was dictated by the global banking crisis, the scandal is unique among European financial institutions.

He believes the root of Iceland's problemsthat have now decimated its economy appear to have started when the government decided to privatise the banks in the early 1990s.

"Iceland got its regulations from the EU, which was basically sound," he says. "But the government had no understanding of the dangers of banks or how to supervise them. They got into the hands of people who took risks to the highest possible degree."

Það er "glæsileg" blaðamennska sem birtist í endursögn moggans á þessari misgóður grein "Símskeytisins".  Mogginn skautar fram hjá mikilvægum hlutum í kaflanum um skoðanir Jóns Daníelssonar á bönkunum og efnahagshruninu. 

1.  Jón er þeirrar skoðunar að meðan tímasetning hrunsins hafi ráðist af heimskreppunni , sé skandallinn einstæður á Evrópskan mælikvarða. 

2.  Hann telji að rætur vandans liggi í þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að einkavæða bankana 1990.

3.  Regluverk bankanna fengu Íslendingar frá EU, en ríkisstjórnin hafði hvorki skilning á þeim hættum sem bönkum fylgir né hvernig ætti að hafa eftirlit og stjórn á þeim.  Þeir lentu í höndunum á mönnum sem færðu áhættu í hæstu hæðir!

Það hefur vafist fyrir hægrimönnum að viðurkenna upphaf vandans sem við er að eiga í dag:  Einkavæðingu banka, annarra fjármálastofnana og einkavinavæðinguna almennt.  Allt frá Síldarverksmiðjum Ríkisins til bankanna.  Einkavæðinguna í stóru sem smáu.  Og trúnni á, að stjórnlaus kapítalismi gæti staðið sig.  Ofan á allt bætist svo algert skilningsleysi á þörf á eftirlit og yfirstjórn á fjármálalífinu.


Bjarni litli EnnEinn.

sjálfsálit
mbl.is Samningnum í rauninni hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Helvíti skítt!

Og varla neitt fleira um það að segja!  Við, almenningur, eigum að sjálfsögðu ekki að borga fyrir glæpsamlega ævintýramennsku auðvaldsins!  Trúverðugleiki VinstriGrænna er fokinn út í veður og vind.  Hvernig hann verður endurreistur er vandséð miðað við frammistöðu forystusveitarinnar.  Forystan dansar eftir flautu stórauðvaldsins og sjálfsagt verður ekkert lát á dansinum á næstunni.  Hinn almenni flokksmaður treystir ekki lengur þessu fólki. 

Hér ganga "auðmennirnir" um óáreittir af yfirvöld, þó einhverjir hafi stöðu grunaðra fyrir eitthvert skiterí.  Almennt gengur líf þeirra, sem ábyrgð bera á efnahagshruninu sinn vanagang, þó lítið sé um aðgang að spilapeningum hjá bönkunum í bili.

Almenningur, þetta fólk sem ekki er þjóðin, einsog frægt er orðið, berst í bökkum.  Lífskjörin skerðast dag frá degi.  Og stjórnmálaelítan hefur ekki miklar áhyggjur af því að séð verður.  Eitthvað var gapað um að þessir málamyndafyrirvarar tryggðu að Icesave-skuldbindingarnar skertu ekki lífskjörin.  Trúi því hver sem vill!  Það verður þá bara einhverjum öðrum skuldbindingum kennt um.  Og þegar á reynir er líklegast að Bretar og Hollendingar geri lítið með þessa fyrirvara annað en að hlægja að þeim.

Milljarðaskuldararnir þurfa sjálfsagt ekki að hafa áhyggjur af hvað þeir eiga að éta á morgun.  Það hafa aðrir.  Mæður og feður vita varla hvernig á að metta börnin næstu dægrin.  Hvernig verður með húsnæði fjölskyldunnar.  Hvernig verður með skólann barnanna; verða til peningar fyrir skólabókum og slíkum.  Skólaföt og aðrar nauðsynjar.

Á meðan lifa hinir ósnertanlegu sínu venjubundna óhófslífi og stjórnmálaelítan deilir frekar kjörum með þeim en almúgafólkinu (þessu fólki sem ekki er þjóðin, muniði), sem á varla til hnífs og skeiðar. 

Er nema von að vantraustið vaxi

og að horft sé til stjórnar og þings með undrun og efa. 

Eitthvað hefur brostið...  


mbl.is „Góð lending fyrir Ísland“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarf nú ekki að fara að breyta lögum? Eða verður bara "bisness as ususal."

Nýlega voru sett lög um eignaupptökur í tengslum við fíkniefnamál.  Þar skilst mér, að heimild hafi verið gefin fyrir upptöku eigna sem séu tilkomnar vegna illa fenginna tekna.  Þarf ekki  samskonar heimild í hinum stórfelldu fjárplógssvikamálum sem almenningur vonar að komist einhverntíma fyrir dómstóla?

Ég verð að játa það, og mér heyrist flestir vera sama sinnis, að ég hef ekki mikla trú á, að fjármálamógúlarnir verði nokkurntíma látnir sæta ábyrgð, eða að þeir verði látnir bæta þjóðinni tjónið, sem hlaust af framferði þeirra, með eignum sínum og leynisjóðum!

Frekar held ég, að þeir muni bara fá að halda sínu striki, "bisness as usual."  Verði  "hreinsaðir" af öllu saman og haldi eignum sínum ósnertum.  Síðan þegar fer að fjúka í slóðina muni þeir halda áfram að gramsa undir sig allan auð samfélagsins, einsog endranær!  Sem þeir reyndar virðast vera gera óáreittir í dag í rústunum af efnahagskerfinu!


mbl.is Nokkrir með stöðu grunaðs hjá Sjóvá
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Láttu ekki vín breyta þér í svín!

svinaflensa

Ef þú ferð útá lífið í kvöld og vaknar svona í fyrramálið, þá skaltu hringja á Vog á mánudagsmorguninn.

Eða....

 

 

 ... þú hefur bara nælt þér í flensuna!  Hvort heldur er, ekki fara á kránna...


Varla mikil eftirspurn.

Þungavigtarlögfræðingar eru flestir, ef ekki allir, vanhæfir til starfans.  Hafa þegar verið á launaskrá þeirra sem þjóðina grunar um að hafa sett hana á hausinn.  Ríkiselítan grunar sennilega engan.  Svo er spurning, hvort ætlast er til að mál sem rannsökuð eru eigi einhverntíma eftir að lenda í dómssölum. Grunur hefur verið uppi meðal þeirra sem ekki eru þjóðin að hér verði enginn ákærður, nema smáþjófarnir sem alltaf er verið að stinga inn hvort eða er!

Útlendingar koma ekki til greina.  Þeir gætu tekið uppá að ákæra!


mbl.is Auglýst eftir saksóknurum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Auknar heimildir? Til hvers? Enn er blekkingavefurinn ofinn!

Það virðist ansi löng símalínan frá þjóðinni, þessari sem er víst ekki þjóðin, til ríkisstjórnarinnar.  Alveg frá hruni hefur þjóðin krafist kyrrsetningar á "eigum" skuldakónganna, sem keyrðu efnahagslíf þjóðarinnar í gjörgæsluástand.  Ekkert hefur gerst.  Nú nýverið virðast hinsvegar Heilög Jóka og hennar lið hafa heyrt óminn af kröfum almúgans.  Og þá á að veita "auknar heimildir til eignaupptök".  Til  hvers?  Heimildir sem hafa verið til í lögum hafa ekki verið notaðar.  Er einhver ástæða til að halda að þessar auknu heimildir breyti einhverju um það.

Það  þarf kannski líka "auknar heimildir" til að menn séu yfirleitt grunaðir um hvítflibbaglæpina sína, því enginn hefur enn fengið stöðu grunaðs hjá hinum mjög svo sérstaka saksóknara.  Hvað þá að einhver hafi verið ákærður eða sitji í gæsluvarðhaldi. 

Það er kannski bara bannað að stela minna en tíuþúsund kalli?  Það er allt sem bendir til þess að enginn verði ákærður hér á landi vegna afbrota í fjármálasvalli síðustu ára, nema þessir venjulegu smábófar.

En kæru samlandar, það er enn von.  Frést hefur að breskt rannsóknarfélag, sérhæft í fjármálaglæpum, rannsaki hér allt þjóðlífið uppúr og niðurúr frá A-Ö.  Má því eiga von á að allt kunningjasamfélag elítunnar sitji saman á sakamannabekk í Bretlandi innan skamms.  Ekki bara einhverjir Hannesar og kjötkaupmenn, heldur líka formenn og hirðmenn náhirðanna bæði nær og fjær.

Kannski er það vegna þessarar rannsóknar, sem einum þræði enn er bætt í blekkingarvefinn?


mbl.is Skatturinn fær að kyrrsetja eignir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigmundur Davíð í kosningaham?

Þingkosningar eru eftir 4 ár og Sigmundur Davíð er byrjaður kosningabaráttuna.  Bar barátta InDefence einhvern árangur í vetur, annan en þann að koma Sigmundi Davíð í formannsstól Framsóknar og svo á þing?
mbl.is Átak til kynningar á málstað Íslands
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þekkir greinilega ekki Íslendinga!

Venjulegt fólk með venjulega mannskosti, einsog t.d. hugrekki og baráttuhug væri fyrir löngu búið að hrista elítuna ofanúr trjánum!  Langlundargeð Íslendinga er að verða þeirri versti ókostur! 

Stjórnmálaelítan er að makka um Icesave málið fyrir luktum dyrum.  Hún þorir ekki að hafa þingið starfandi.  Nefndardagar eru framlengdir aftur og aftur.  Stjórnmálaelítan er í hráskinnaleik með framtíð þjóðarinnar, barna og barnabarna. 68% þjóðarinnar mælist á móti því að við göngumst undir Icesave-okið. 

 Hvað gera þessi 68% þjóðarinnar? Sem eru á móti Icesave-okinu.  Mætir það á Austurvöll til að mótmæla því að þingið samþykki að skerða lífskjör þjóðarinnar með því að fallast á Icesave-okið?  Nei, nei!  Það situr heima og hefur það huggó í von um að stjórnmálamenn taki réttar ákvarðanir!  Jafnvel þó að slíkt megi teljast til meiri háttar viðburða.

Þetta langlundargeð?  Er það ekki bara hugleysi og leti?  Er þjóðin bara ekki upp til hópa lurður og aumingjar?  


mbl.is Hannan bloggar um Ísland og ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Staðreynd um ástæðu lögbannsins! Bankastjórinn tjáði skoðun sína á frelsi fjölmiðla! Þöggum niðri þeim!

Á sínum tíma tjáði Finnur Sveinbjörnsson sig í Viðskiptablaðinu.  Kemur þar fram gleði hans vegna þess árangurs sem náðst hefði í að hefta tjáningarfrelsið með hjálp lögfræðinga!

Af Silfri Egils.

"Að siga lögfræðingum á fjölmiðla

Finnur Sveinbjörnsson, þá ráðgjafi stjórnvalda í efnahagsmálum, um íslenskt efnahagslíf og fjölmiðla, júlí 2008. Viðskiptablaðið:

“Finnur Sveinbjörnsson, fyrrverandi bankastjóri Icebank og ráðgjafi stjórnvalda í efnahagsmálum, segir að öfgakennd og móðursýkisleg umfjöllun um íslenskt efnahagslíf í erlendum fjölmiðlum sé á undanhaldi. Þar hafi samstillt átak skipt máli. Ágætlega hafi tekist að fræða og upplýsa áhrifaríka viðskiptafjölmiðla um íslenskan fjármálamarkað og efnahagslíf.

„Bankarnir sjálfir, Samtök fjármálafyrirtækja og Viðskiptaráð hafa lagt mikið á sig,” segir Finnur, „að ógleymdum forsætisráðherra og utanríkisráðherra sem hafa talað á ráðstefnum og við fjöldann allan af viðskiptafjölmiðlum. Þá hefur Richard Portes, prófessor við London Business School reynst betri en enginn. Einnig tel ég að Kaupþing hafi gert rétt þegar bankinn hóf að siga lögfræðingum á fjölmiðla sem fóru með fleipur um bankann.”"


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband