9.3.2009 | 21:01
Spurt hefur verið: Hver er þjóðfífl Íslendinga?
![]() |
Svör við efnahagsvandanum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.3.2009 | 13:19
Féllu eigendurnir á tíma?
![]() |
Gylfi: Fleira kom til hjá Straumi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.3.2009 | 12:52
Ríkið yfirtaki Actavis hið fyrsta!
![]() |
Ríkið tekur Straum yfir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
9.3.2009 | 12:07
Sjálfstæðisstefnan. Græðgi er góð!
Nú er farið að rigna innum lúguna allskyns áróðri frá einhverjum helvítis fíflum sem segjast taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins. Mér er gersamlega ómögulegt að bera virðingu fyrir fólki sem hefur þá stefnu að skara eld að köku fámenns hóps samfélagsins á kostnað annarra! Til að fóðra þjófastarfsemina setja þeir fram hina fáránlegu brauðmolakenningu (hluti og réttlæting nýfrjálshyggjunnar), en á henni byggðist einkavinavæðing ríkisbankanna á sínum tíma. Og nú segir þetta lið að stefnan hafi ekki brugðist, heldur fólk. Það er sem sagt verið að bjóða kjósendum uppá sömu stefnuna, sem leiddi til hruns íslensks efnahagslífs; nýfrjálshyggjuna. Röksemdafærsla "endurreisnarnefndar" Sjálfstæðisflokksins virðist vera fengin að láni hjá amríska byssueigendafélaginu. "Byssur drepa ekki fólk." Sem sagt, það er forysta Sjálfstæðisflokksins sem ber ábyrgð á hruninu ekki stefna flokksins! Þá vitum við það! Einhverja stefnu hefur forystan stuðst við, ekki satt? Nema Geir og co. hafi annað hvort misskilið stefnu Sjálfstæðisflokksins eða farið eftir einhverri annarri stefnu. Varla stefnu Kinverska Kommúnistaflokksins, en kannski Repúblikanaflokksins a la USA?
Græðgin og spillingin, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur leitt til öndvegis í íslensku samfélagi, orsakaði hrunið. Stefnan sem Geir H. Haarde, Davíð o.fl. fylgdu er ástæðan. Og þeir bera ábyrgðina, sem stefnunni fylgdu, Sjálfstæðisstefnunni. Nú er búið að gefa það út að sömu stefnu eigi að fylgja áfram; stefnan brást ekki heldur fólk! Og þetta ætla ca. 30% þjóðarinnar að láta bjóða sér í næstu kosningum, geriði svo vel!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 13:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)