Sjálfstæðisstefnan. Græðgi er góð!

Nú er farið að rigna innum lúguna allskyns áróðri frá einhverjum helvítis fíflum sem segjast taka þátt í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins.  Mér er gersamlega ómögulegt að bera virðingu fyrir fólki sem hefur þá stefnu að skara eld að köku fámenns hóps samfélagsins á kostnað annarra!  Til að fóðra þjófastarfsemina setja þeir fram hina fáránlegu brauðmolakenningu (hluti og réttlæting nýfrjálshyggjunnar), en á henni byggðist einkavinavæðing ríkisbankanna á sínum tíma.  Og nú segir þetta lið að stefnan hafi ekki brugðist, heldur fólk.  Það er sem sagt verið að bjóða kjósendum uppá sömu stefnuna, sem leiddi til hruns íslensks efnahagslífs;  nýfrjálshyggjuna.  Röksemdafærsla "endurreisnarnefndar"  Sjálfstæðisflokksins virðist vera fengin að láni hjá amríska byssueigendafélaginu.  "Byssur drepa ekki fólk."  Sem sagt,  það er forysta Sjálfstæðisflokksins sem ber ábyrgð á hruninu ekki stefna flokksins!  Þá vitum við það!  Einhverja stefnu hefur forystan stuðst við, ekki satt?  Nema Geir og co. hafi annað hvort misskilið stefnu Sjálfstæðisflokksins eða farið eftir einhverri annarri stefnu.  Varla stefnu Kinverska Kommúnistaflokksins, en kannski Repúblikanaflokksins a la USA?

Græðgin og spillingin, sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur leitt til öndvegis í íslensku samfélagi, orsakaði hrunið.  Stefnan sem Geir H. Haarde, Davíð o.fl. fylgdu er ástæðan.  Og þeir bera ábyrgðina, sem stefnunni fylgdu, Sjálfstæðisstefnunni.  Nú er búið að gefa það út að sömu stefnu eigi að fylgja áfram; stefnan brást ekki heldur fólk!  Og þetta ætla ca. 30% þjóðarinnar að láta bjóða sér í næstu kosningum, geriði svo vel!

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árni Gunnarsson

Ég er hlynntur því að töluð sé íslenska á Íslandi og helst góð íslenska. Yfirdrep og orðhengilsháttur er eina tungutakið sem talað er af póitíkusum sem eru flestir ákaflega ómerkilegt fólk og nota þetta nýja tungumál til að breiða yfir eigin vanburði. Þegar fífl hafa sig í frammi þá er skylt að nefna þá fífl og segja þeim að þegja. Með sömu rökum vil ég kalla alla þjófa þjófa vegna þess að þjófur er gott og gilt íslenskt nafnorð sem á hverjum degi fær sterkari skírskotun inn í fréttir fjölmiðla.

Ég er hættur að kalla mannbjálfa sem tekur Range Rover jeppa traustataki og kemur honum úr landi með brögðum þjóf. Hann er sniðugur hnuplari í mínum augum í samanburði við drullusokkana sem glotta framan í þjóðina íklæddir hvítum skyrtum fráhnepptum eftir að hafa ryksugað innstæður gamalmenna og komið þeim fyrir á fjarlægum eyjum með tortulalegum nöfnum.

Ómerkilegir þjófar og skítmenni; þjóðníðingar og andstyggð hverjum heiðarlegum þjófi.

Árni Gunnarsson, 9.3.2009 kl. 13:53

2 Smámynd: Auðun Gíslason

Það er rétt!  Þjófur er þjófur!  Sama hvort hann er klæddur í jakkaföt og með hvítt um hálsinn!  Verst er með þessi helvíti, sem eru bullandi meðsekir en sleppa eilíflega: Merkilegt hvað stjórnarskráin ver einkaeignarétt þeirra  sem hafa ryksugað hér alla sjóði!

Auðun Gíslason, 9.3.2009 kl. 19:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband