Ykkur kemur "bankaránið" ekkert við! Þið þurfið að borga tjónið en samt: Ykkur kemur þetta ekkert við!

Yfirlýsing vegna umfjöllunar RÚV um lántakendur Kaupþings

Nýja Kaupþing og skilanefnd Kaupþings vekja athygli á að upplýsingar um lántakendur hjá
gamla Kaupþingi sem birtar voru á erlendri vefsíðu og fjallað var um í sjónvarpsfréttum RÚV
eru trúnaðarupplýsingar. Birting þeirra er í andstöðu við ákvæði um þagnarskyldu í lögum um
fjármálafyrirtæki.

Verið er rannsaka uppruna birtingarinnar. Nýja Kaupþing og skilanefnd Kaupþings ber skylda
til að halda trúnaði við viðskiptavini sína og koma í veg fyrir að óviðkomandi hafi aðgang að
viðskiptaupplýsingum þeirra. Því var ákveðið að fara fram á að upplýsingarnar yrðu
fjarlægðar af síðunni. Fjármálaeftirlitinu hefur þegar verið gert viðvart um málið.
!
Nýja Kaupþing og skilanefnd Kaupþings telja að upplýsingar um viðskiptavini Kaupþings
eigi ekki erindi til almennings
og sé brot á þeirri vernd sem bankaleynd á að veita
viðskiptamönnum. Mikilvægt er að traust og trúnaður ríki milli fjármálastofnana og
viðskiptavina. Með birtingu slíkra upplýsinga er því sambandi ógnað.
 

(þetta eru nú ekki nein venjuleg viðskipti sem fóru fram rétt fyrir hrunið.  Almenningur á að borga brúsann með auknum sköttum og niðurskurði á almannaþjónustu.  Og skilnefndin segir , að okkur komi þetta ekki við!  Er þetta gersamlega vanhæft siferðislega þetta lið í skilanefndinni?)
Í lögum um fjármálafyrirtæki segir um þagnarskyldu:
athugasemd Skarfsins!

Stjórnarmenn fjármálafyrirtækis, framkvæmdastjórar, endurskoðendur, starfsmenn og hverjir
þeir sem taka að sér verk í þágu fyrirtækisins eru bundnir þagnarskyldu um allt það sem þeir
fá vitneskju um við framkvæmd starfa síns og varðar viðskipta- eða einkamálefni
viðskiptamanna þess, nema skylt sé að veita upplýsingar samkvæmt lögum. Þagnarskyldan
helst þótt látið sé af starfi.

Sá sem veitir viðtöku upplýsingum af því tagi sem um getur í 1. mgr. er bundinn þagnarskyldu
með sama hætti og þar greinir. Sá aðili sem veitir upplýsingar skal áminna viðtakanda um
þagnarskylduna.

Krafan hlýtur að vera, að skilanefndin í fyrsta lagi hætti rannsókninni og í öðru lagi skilanefndin finni sér aðra vinnu.  Hvernig er það með FME, getur það ekki rekið svona fífl?

Sjá bréfaskrif skilanefndar Kaupthings: http://wikileaks.org/wiki/Icelandic_bank_Kaupthing_threat_to_WikiLeaks_over_confidential_large_exposure_report%2C_31_Jul_2009

"Ætla ekki að þvo óhreinatauið þeirra."


Varnarmálastofnun brýtur fánalög!

Sjá frétt:

http://www.visir.is/article/20090731/LIFID01/395773331


Ég á ekki krónu!

Hvernig í ósköpunum er þetta hægt! 

Ég á ekki heldur orð!  Segi því ekkert meira!

Nema:  Er þetta ekki byrjunin á einhverjum farsa þar sem "auðmenn" láta lýsa sig gjaldþrota á Íslandi, en eiga svo úttroðna bankareikninga útí heimi?


mbl.is Björgólfur gjaldþrota
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Icesave frá nýju sjónarhorni." e. Gunnar Tómasson.

http://www.vald.org/greinar/090728.html

http://www.vald.org/greinar/090729.html


Rekum IMF/AGS.

Við getum án þessarar innheimtustofnun heimskapítalismans verið.  Fellið Icesave-frumvarpið!  Eins og lesa má í settlement agreement skjalinu yfirtók FSCS Icesave skuldbindinguna 4. nóvember.  Þeir geta stefnt ríkissjóði vegna greiðslunnar.  Þá kemur ýmislegt óhreint uppá yfirborðið.  Og síðast en ekki síst:  Drögum til baka EU umsóknina!

Stöndum nú í lappirnar!  Það er orðið ansi langt síðan það gerðist síðast!

Dagur eitt:  Rekum IMF/AGS! 

Á því hefst raunveruleg endurreisn, ekki endurreisn 2007 þjóðfélagsins, þess kasínó-kapítalisma sem verið er að endurreisa nú!


mbl.is Stjórnvöld halda í vonina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 31. júlí 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband