Kosning um hvað? Ég sit heima! Ástæðan: Niðurstaðan hefur engin áhrif á stöðu málsins, sem kosið er um!

 Ég alveg hjartanlega sammála forseta vorum, "að kjósa er helgasti réttur hins lýðræðislega samfélags og í rauninni grundvöllur þess." 

Þessvegna tek ég ekki þátt í kosningunni.  Hún er móðgun við þennan helgast rétt og jafnframt móðgun við lýðræðislegt samfélag okkar.

Ástæðan:  Niðurstaðan hefur engin áhrif á stöðu málsins, sem kosið er um!

Kosningarétturinn er heilagri en svo, að sjálfsagt mál sé að misnota hann í svona grín!

Lengi lifi lýðveldið Ísland og forseti vor á Bessastöðum!


mbl.is Ólafur Ragnar ætlar að kjósa
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skiptir þjóðaratkvæðagreiðsla á Íslandi sköpum fyrir heimsbyggðina? Lítill áhugi á rökræðum á vef Economist um hvort Íslendingar eigi að greiða Icesave eður ei!

Óþarfi fyrir Sigmund Davíð að látast vera meiri kjáni en hann er!  Stjórnarandstaðan á fulltrúa í samninganefndinni.  Stjórnarandstaðan tafði framlagningu á svari við tilboði um heilan sólarhring!  Sigmundur og Bjarni ofmeta áhrif þessarar atkvæðagreiðslu!  En þjóðin er látin hlaupa Apríl í Marz í boði stjórnarandstöðunnar!

Skiptir þjóðaratkvæðagreiðsla á Íslandi sköpum :

Sýn okkar Íslendinga á okkur sjálf er oft í undarlegri kantinum.  Ef aðeins er litið til síðustu ára koma nokkur tilvik uppi hugann, þar sem þetta sýnir sig.

Fyrsta skal nefna stuðningsyfirlýsingu Davíðs Oddssonar við forseta Bandaríkjanna í beinni útsendingu, þegar sá síðari var að leggja í stríð við svokallaða hryðjuverkamenn í Írak:  You have our full support,Mr. President, sagði hann, og fréttaþulir Sky urðu ansi langleitir og örlítið furðu- og efasemdabros færðist yfir andlit þeirra. 

Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson fengu þá flugu í höfuðið að Sameinuðu þjóðirnar mættu ekki við því, að Ísland væri ekki í Öryggisráðinu.  Það kom svo í hlut Ingibjargar Sólrúnar að spandera 18 mánaða ferli sínum sem utanríkisráðherra í að agítera fyrir því og smala saman atkvæðum (milli þess sem hún ferðaðist um og laug til um efnahagsástandið á Íslandi).  Nær daglega sagði hún af því fréttir í fjölmiðlum, hversu vel gengi.  Þessi þjóðin og hin myndi örugglega kjósa "stóra" Ísland.  Ekki komumst við í Öryggisráðið og Sameinuðu Þjóðirnar eru enn starfandi!

Í hinu svokallaða góðæri trúðu flestir Íslendingar, að hér væri risið einhverskonar efnahagsundur, íslenska undrið!  Íslenskir fjármálamenn stæðu öðrum framar.  Talað var um íslenska viðskiptamótelið og hversu undrasnöggir Íslendingar væru að landa stórviðskiptum.  Svo hrundi efnahagsundrið og fjármálaséníin reyndust flestir fjárglæframenn, svindlarar og bófar!

Og nú trúa víst ýmsir því, að þjóðaratkvæðagreiðslan á laugardaginn muni skipta sköpum.  Ekki bara fyrir þjóðina!  Nei, líka fyrir gervalla heimsbyggðina!

 Og til að bæta gráu ofan á svart er rétt að segja frá því,að komið hefur í ljós að íslendingar eru nánast sambandslausir við alþjóðasamfélagið eftir allan bægslaganginn.  Utanríkisþjónustan hefur ekki unnið sín verk, sem eru að afla og viðhalda tengslum við umheiminn!

Lítill áhugi á rökræðum á vef Economist um hvort Íslendingar eigi að greiða Icesave eður ei

Hvar er allur þessi áhugi á Icesave?  Meira um málið:

http://eyjan.is/blog/2010/03/04/litill-ahugi-a-rokraedum-a-vef-economist-um-hvort-islendingar-eigi-ad-greida-icesave-edur-ei/

http://www.economist.com/node/15603167/comments

http://www.economist.com/world/europe/displaystory.cfm?story_id=15603167


mbl.is „Tek þetta ekki til mín“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einsog að mæta á tónleika, sem búið er að aflýsa!

Einsog að mæta á tónleika, sem búið er að aflýsa!  Og þeir sem mæta eru fyrst og fremst tveir ofbeldisfullir dyraverðir,  boltabullur og "skinheads"! 

Þegar mér blöskrar hrekkur stundum útúr mér:  Aumingja maðurinn og aumingja fólkið!  Og það er einmitt það, sem gerðist þegar ég las fyrirsagnir bloggfærslna við þessa frétt moggans.  Ofstopinn og ofstækið með slíkum ólíkindum að minnir mest á uppgang þjóðrembu-ofstækismanna á 4. áratugnum.  Hvenær má búast við að liðið fari að öskra á götum úti? 

Íslandi Allt!  Ísland fyrir Íslendinga!  Sieg Heil!  Sieg Heil!

Hæ!  Lilli!

http://skarfur.blog.is/blog/skarfur/entry/1025043/


mbl.is Steingrímur: Ólíklegt að ég kjósi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 5. mars 2010

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband