Hóað saman á fund á fund ofan. Allt fyrir völdin!

ljoskan

Þorgerður Katrín reynir að berja í brestina og þjappa liðinu saman.  Hóar saman á fund.  Nú er nýbúið að berja borgarstjórnarflokkinn saman til hlýðni á ný með miklum fundarhöldum.  Styrmir Gunnarsson skammar þingsflokksformann flokksins opinberlega.  Þingmenn eru óánægðir og með uppisteyt, segir Mogginn.  Þetta er nú meiri martröðin.  Flokkur sem einn flokka á vesturhveli jarðar hefur haldið uppi Lenínískum flokksaga nötrar allur og skelfur vegna innbyrðis flokkadrátta og flokksmenn láta ekki almennilega að stjórn lengur.  Hlaupa út og suður einsog sauðir.  Það verður nóg að gera hjá Þorgerði Katrínu á næstunni, að hóa saman liðinu! Hlýðið eða hafið verra af!


mbl.is Fundað í Valhöll
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband