Útvarp Saga kl. 07.00. Þunnur þrettándi!

Það má segja að SS og Zerephia hafi endurtakið sig í síbylju á útvarpi Sögu í morgun.  SS er fastur í því að setja alla Múslima, ca. 1 milljarða manna, undir sama hatt!  Skv. Skúla eru þau öll herská, ofbeldisfull og hatursfull; öll hryðjuverkamenn.  Skv. sömu hugsun erum við kristin öll fjölkvænisfólk, barnaníðingar, byssuglöð og hryðjuverkamenn!  Þetta er náttúrulega bilun, einsog bóndinn í Laugardalnum sagði.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég nenni ekki að sækja þennan þátt, var viðbúið hvað Skúli segði.. og svo væntanlega spurningar um hvers vegna ekki er lokað á mig..

DoctorE (IP-tala skráð) 23.4.2008 kl. 13:54

2 Smámynd: Auðun Gíslason

Eitthvað tuðuðu þeir.  Vaknaði reyndar ekki til að hlusta á þáttinn sérstaklega.  Ungdómurinn vakti mig.  Nafnlausir bloggarar komu við sögu í tali þeirra kumpána, en annars var þetta sami söngurinn.  SS skilur ekkert í þessu og telur sig órétti beittann.  Setur sig í stöðu píslarvottarins.

Auðun Gíslason, 23.4.2008 kl. 14:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband