24.1.2009 | 20:21
Nýfrjálshyggjusinna í formannsstólinn. Kutarnir brýndir.
Mikið líst mér vel á þennan lista nýfrjálshyggjusinna:
Bjarni Benediktsson. Aðaleigandi okursjobbunnar N1.
Guðlaugur Þór Þórðarson. Ráðherrann sem berst fyrir einkavæðingu heilbrigðiskerfisins. Wessmann sagði, nei takk!
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Hluthafi í Kaupþingi og lánþegi sama banka. Segi ekki meir!
Hanna Birna borgarstýra. Reyndi að einkavinavæða REI og OR. Einkavinirnir voru Hannes Smárason og Bjarni beibí Ármannnsson. Hóf einkavinavæðingu heilbrigðisþjónustunnar í Reykjavík. Einkavinirnir Í Heilsuverndarstöðinni ehf. fóru rakleiðis á hausinn.
Illugi Gunnarsson, þingmaður. Stjórnarmaður í peningabrallsjóði í Glitni.
Má ég stinga uppá Valla Bíó, Árna johnsen og Lalla Jones?
Það er vel við hæfi á þessum myrku dögum nýfrjálshyggjunnar, að þessir fulltrúar einkaframtaksins og hamfarakapítalismans, séu tilnefndir.
Fjórir þingmenn aðallega nefndir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:23 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.