9.3.2009 | 12:52
Ríkið yfirtaki Actavis hið fyrsta!
Nú er búið að yfir taka þessa peningamaskínu vaðmangaranna. Íslenskir Aðalverktakar e.t.v. næstir. Ég skrifaði nýverið um framferði lyfjafyrirtækisins Actavis á lyfjamarkaðnum. Ef það svona nauðsynlegt að yfirtaka þetta apparat Straum til að bjarga einhverjum krónum, þá held ég að vel mætti réttlæta þjóðnýtingu á Actavis. Það væri til að stöðva meinta markaðsmisnotkun fyrirtækisins og til að vernda sjúklinga fyrir enn frekari skakkaföllum vegna hennar!
Ríkið tekur Straum yfir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Hjartanlega sammála! Við megum heldur ekki við því að missa öll þau verðmætu störf sem eru lyfjaiðnaði hér á landi. Ef í hart fer á komandi krepputímum gæti auk þess komið sér vel fyrir ríkið að eiga lyfjafyrirtæki... á óróatímum er það nauðsynlegt öryggistæki. Það er nú ekki nema tæpur áratugur síðan ég vann á lagernum hjá Lyfjaverslun Íslands sem þá var nýbúið að einkavæða, en framleiðsluhlutinn var einmitt seldur til Delta sem síðar rann inn í Actavis, og heildsöluhlutinn rann saman við Lyfjadreifingu sem í dag heitir Parlogis.
Guðmundur Ásgeirsson, 9.3.2009 kl. 13:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.