3.7.2009 | 13:12
Fjármálaeftirlitið rannsakar DV vegna gruns um brot á bankaleynd!
Fjármálaeftirlitið virðist telja það hlutverk sitt að koma í veg fyrir að fjölmiðlar upplýsi þjóðina um spillingu og hæpnar gjörðir fjármálafyrirtækja. Og hlutdeild einhverskonar sjálfskipaðrar yfirstéttar landsins í spillingunni. Nú rannsakar Fjármálaeftirlitið hvort DV hafi brotið bakaleynd með því að birta upplýsingar úr lánabókum banka. Og jafnframt vill eftirlitið auðvitað hindra að verið sé að upplýsa þjóðina um þátttakendur í spillingunni, kúlulánaliðið. Stjórn Fjármálaeftirlitsins tilheyrir auðvitað sama hópi fólks og tók þátt í spillingunni, bæði sem gerendur og þiggjendur!
Nápotið heldur áfram! Og Fjármálaeftirlitið hefur víst ekki neitt betra að gera en að rannsaka fjölmiðla og hindra þá í að upplýsa þjóðina um spillinguna!
Réttindi spilltra ofar á baugi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Facebook
Athugasemdir
Svei mér þá. Á maður ekki að selja ofanaf sér og fara með þetta litla sem eftir er. Hér er enn verið að ræna þjóðina!
Auðun Gíslason, 3.7.2009 kl. 16:18
Já hun hefur þegar verið rænd. Og það enn verið að ræna hana! Nú er ekki bara verið að selja ofanaf okkur, heldur líka undan okkur!
Auðun Gíslason, 3.7.2009 kl. 17:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.