30.1.2010 | 23:22
Bjarni tekur snúning á Icesave-deiluna! Lóð á vogarskálar sáttar?
Hvað á Bjarni við með þessum orðum: ...allt það sem þeir hafa lagt fram? Hollendingar og Breta lögðu fram 1300 milljarða, þeir hafa viljað 750 milljarða til baka með vöxtum miðað við eftirstöðvar hverju sinni! Fóru þeir fram á alla upphæðina núna, þ.e. 1300 milljarða? Eða heldur Bjarni bara að það hafi alltaf verið þannig? Hvaða meining er í þessu útspili hans? Kannski vill hann ekki sátt stjórnar og minnihluta þingsins? Er þetta enn eitt "dauðaspil" hans í öllu samstöðutalinu?
http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4497888/2010/01/30/5/
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.1.2010 | 16:23
Reglur sveigðar og beygðar, og lögin brotin.
Einhvernvegin hvarflar að manni, að menn hafi ekki tekið lög og reglur mjög alvarlega undanfarin ár. Að menn hafi leyft sér að fara sínu fram. Ýmislegt hafi fengið að viðgangast óátalið af hálfu endurskoðenda og skattstjóra landsins. Litið hafi verið á sumt sem smámál, sem ekki hafi verið vert að fetta fingur útí. Svona einsog hvern annan rófuþjófnað. Mál Ásbjörns hefði aldrei komið uppá yfirborðið, nema vegna (óþarfa?) spurninga blaðamanns.
Hvað eru mörg svona mál undir yfirborðinu?
Eru skattskýrslur fyrirtækja og eigenda þeirra ekki yfirfarnar? Eða ársreikningar fyrirtækjanna?
Eða telst svona nokkuð bara tittlingaskítur, sem óþarfi er að gera veður útaf?
![]() |
Ólögleg arðgreiðsla Ásbjörns rannsökuð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.1.2010 | 02:59
Herra misskilinn! Þetta hlýtur að vera einhver misskilningur!
"Við höfum gleymt því að það eru tvær meginstoðir vestrænnar arfleifðar sem við erum stolt af. Annars vegar er það þróun hins frjálsa markaðar. Hins vegar er það þróun lýðræðis. Það sem ég gerði, þegar ég stóð frammi fyrir þessari ákvörðun, var að velja á milli fjármagnsins og lýðræðisins. Ég ákvað að fylgja lýðræðinu. ÓRG á CNN. (Eitthvað er mikið bogið við þessa röksemdarfærslu).
Ég leyfi mér að gera eftirfarandi athugasemdir: 1. Að þróun hins frjálsa markaðar sé önnur af meginstoðum vestrænnar arfleifðar! 2. Að þróun hins frjálsa markaðar sé eitthvað til að vera stoltur af!
Svipaðar efasemdir má hafa um þróun lýðræðisins!
30.1.2010 | 02:11
Bjarni Ben við ráðherrana í Haag: Icesave fari fyrir dóm ef þið haldið kröfum til streitu
Þetta kemur fram á vefsíðu Björns Bjarnasonar fyrrverandi dómsmálaráðherra í kvöld. Sjá skrif á Eyjunni: http://eyjan.is/blog/2010/01/30/bjarni-ben-vid-radherrana-i-haag-icesave-fari-fyrir-dom-ef-thid-haldid-krofum-til-streitu/
Sjálfstæðismenn virðast hafa þurrkað haustið 2008 útúr minni sínu. BB velur að muna ekki eftir minnisblaðinu fræga frá 11/10 08, samningnum við ESB 14/11 08 (sjá frétt frá 16/11 08) eða þingsályktuninni um ríkisábyrgð frá í desember 2008! Nei, í samræmi við eðli sitt velur hann skítkast útí þá stjórnmálamenn, sem tóku að sér að þrífa hér upp eftir 18 ára óstjórn X-D í efnahagsmálum! Ómerkilegri verða stjórnmálamenn ekki en Björn Bjarnasons! Burgeisabarnið Bjarni Ben talar að venju svo digurbarkalega, að efast má um veruleikatengsl hans. Ætli honum væri ekki nær að draga sig í hlé frá stjórnmálum. Nú þegar allt stefnir í að yfirvöld snúi sér að rannsókn á hinu meinta peningahvarfi úr Sjóvá; 10 Milljarðar+ munu hafa verið sogaðir úr fyrirtækinu af hinnu eðlu ætt Bjarna Ben, skv fréttum.
Og innan tíðar má reikna með, að ekki færri en 5 þingmenn Sjálfstæðisflokksins verði teknir til rannsóknar af Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra eða Sérstökum Saksóknara!
Að lokum um ferðina miklu: Enn eitt floppið á ferli lýðskrumaranna Bjarna og Sigmundar Davíðs. Ráðherrarnir, sá breski og sá hollenski, eru ekki fæddir í gær. Þeir vita uppá hár hver pólitísk staða drengjanna er, og reynsla. Sennilega átta þeir sig betur á Bjarna og Sigmundi, en þeir sjálfir. Halda Bjarni og Sigmundur að það dugi að tala digurbarkalega við sjóaða stjórnmálamenn? Einsog á flokksfundum? Og við íslenska blaðamenn? Bjarni og Sigmundur eiga ekkert undir sér. það gera allir sér ljóst, nema þeir sjálfir og auðsveipnustu flokksmenn þeirra! Þetta eru bara látalæti í pabbadrengnum Birni Bjarnasyni, þessi skrif hans um pabbadrengina ferðaglöðu!
![]() |
Bjartsýnir eftir fund í Haag |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2010 | 23:33
Ástir samlyndra flokkssbræðra! Þessir eru sko í sama liði!
"Mér til sárrar raunar eru til menn, sem kosið hafa að afflytja ræðu mína á flokksráðsfundinum sem einhvers konar ádeilu á Davíð Oddsson seðlabankastjóra. En sem betur fer er eindreginn stuðningur við Geir H. Haarde ekki andstaða við Davíð Oddsson. Þeir hafa verið samherjar í stjórnmálum, vinir og samverkamenn í nær fjörutíu ár. Það er þjóðinni mikil gæfa, að svo reyndur og hygginn forystumaður sem Davíð skuli hafa valist í stöðu seðlabankastjóra við þessar erfiðu aðstæður. Hann er eins og Geir hafinn yfir sérhagsmuni. Í frábærum sjónvarpsþætti síðastliðið þriðjudagskvöld skýrði Davíð út, hvað hefur gerst og hver leiðin út úr ógöngunum er. Þar nutu bestu kostir hans sín. Hann er ekki aðeins vígfimur, heldur manna úrræðabestur og kjarkaðastur, heilsteyptur og hreinskilinn. Svik eru ekki til í hans munni, eins og ég get borið vitni um eftir löng og góð kynni af honum. Þeir Geir og Davíð hafa staðið þétt saman síðustu daga og vikur og munu gera það áfram. Þeir hafa hvergi látið bilbug á sér finna.
Ef við njótum áfram forystu og starfskrafta þessara tveggja manna, er ég ekki í neinum vafa um, að okkur tekst að komast klakklaust úr aðsteðjandi erfiðleikum."
Mér er ekki grunlaust um að ýmsir sakni þessara tveggja höfðingja, sem Kjartan Gunnarsson mærir hér. En hvort jafnvægi kæmist á í sálarlífi hinna sömu, kæmust þeir til hinna opinberu valda á ný, efast ég um!
28.1.2010 | 18:21
Háttvirtur þingamaður, Ásbjörn Óttarsson!
Ég þakka þér fyrir! Þetta vekur með mér trú og von á framtíðina! Þetta sýnir, að þú hefur talsvert betri siðferðiskennd en formaður þinn, Bjarni Benediktsson, og reyndar margir fleiri þingmenn, sem ég hirði ekki um að nefna! En sem sagt, gott hjá þér!
Margir þingmenn þurfa nú að fara að huga að stöðu sinni! það er varla við hæfi, að þeir sitji á þingi meðan Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra og Sérstakur Saksóknari rannsaka mál þeim tengd. Einsog allt bendir til að sé í uppsiglingu. Ef allt er með felldu, það er að segja! Margur hefur reyndar efasemdir þar um!
![]() |
Segir sig úr þingmannanefnd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2010 | 17:44
Þjóð í pattstöðu! Íslendingar eru sjálfum sér verstir!
Hér skrifa menn að landið sé stjórnlaust barbarí. Er það furða? það er nefnilega þannig hjá venjulegu fólki, að á erfiðleika- og krísutímum þjappa þjóðir sér saman og standa við bakið á stjórnvöldum. Ekki á Íslandi! Það hlýtur að vekja fleiri en mig til umhugsunar, að Sjálfstæðismenn berjast einsog óðir hundar gegn Icesave-samkomulaginu með Framsóknarmönnum. Samt er það talsvert mikið betra en samkomulagið sem þeir voru með í undirbúningi. Meginatriði þess undirbúnings má lesa í Memorandum of understanding 11/10 08, sem Árni Matthíasson skrifaði undir með samþykki þáverandi ríkisstjórnar. Drögin, þó minnisblað sé, segja klárlega hvað var í undirbúningi. Sjálfstæðismenn og Framsóknarmenn hafa blásið hér til ófriðar gegn þessum samningi, sem þeir þó unnu að í sumar, en hlupu svo frá! Indefence-hópur Framsóknarflokksins hefur tekist að tromma upp ófriðinn gegn ríkisstjórninni, sem kosin var af meirihluta þjóðarinnar síðastliðið vor. Íslendingar standa ekki saman í erfiðleikunum, hér stofna menn til ófriðar í nafni þjóðarinnar. Undarlegur andskoti. Takist X-D og Framsókn að koma stjórninni frá munu þeir ganga frá Icesave málinu með síst betri niðurstöðu, það er ljóst! Við Íslendingar þurfa ekki óvini. Við erum okkar versti óvinur! Er þjóðin búin að gleyma, hver stefna stjórnarandstöðuflokkanna er? Stefnan sem leiddi þjóðina fram af bjargbrúninni! Stefnan sem leiddi til hrunsins? Kannski er það stefnan sem þjóðin vill að þjóðin fylgi. Skv frjálshyggju hrunflokkanna er eina leiðin útúr kreppu að skera niður, aðeins að skera niður. Skera allt niður við trog. Má benda á málflutning fulltrúa Framsóknar í Seðlabankanum, skoðanabróður Sigmundar. Ekki taka nein lán, skera niður, skera niður. Engar fjárfestingar og engin uppbygging! Stjórnarandstaðan hefur nú komið stefnu sinni á í landinu með ófriðarfagnaði sínum. Meðan Icesave-málið er óafgreitt verður hér engin uppbygging og engar fjárfestingar. Aðeins meiri niðurskurður. Menn mega mín vegna kalla staðreyndir hræðsluáróður. þannig er það bara! Hér stofna menn til ófriðarfagnaðar til að svala valdafíkn sinni. Sundra þjóðinni, ekki með hagsmuni þjóðarinnar í huga. Nei, aðeins til að svala valdafíkn sinni. Meðan þjóðir þjappa sér saman á erfiðleikatímum, þá blása Íslendingar til innbyrðis ófriðar og bræðravíga. Merkilegur andskoti! En kannski eiga Íslendingar ekki betra skilið!
![]() |
Utan til funda vegna Icesave |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.1.2010 | 23:36
Kreppan dýpkar og skuldir þjóðarinnar hækka! Axlar stjórnarandstaðan ábyrgð á gerðum sínum?
Afleiðingar af hinu harða áróðursstríði stjórnarandstöðunnar og fylgisveina hennar voru þær að forsetinn vísaði Icesave2-lögunum til þjóðarinnar. Þar ber Indefence-hópur Framsóknarflokksins mikla ábyrg. Með þjóðrembuáróðri og blekkingum fengu þeir fólk til að skrifa undir áskorun til forsetans. Í raun er þessi Indefence hópur ekkert annað en vel skipulögð undirróðursmaskína fyrir formann Framsóknarflokksins; framvarðarsveit hópsins eru vinir og kunningjar Sigmundar Davíðs! Þeim tókst að fá um 60.000 nytsama sakleysingja til að setja nafn sitt á undirskriftalistann fyrir formann Framsóknarflokksins!
Nú eru afleiðingarnar smátt og smátt að koma í ljós. Skuldatryggingaálag Íslands er á leið uppúr þakinu. Lokast hefur á alla lánamöguleika. Framkvæmdir hefjast ekki meðan svoleiðis er! Eina leiðin útúr kreppu eru framkvæmdir og fjárfestingar.
Ef áfram verður lokað fyrir aðgang að fjármunum og ekki verður hægt að endurfjármagna lán, fara í framkvæmdir og fjárfestingar, þá hlýtur kreppan að dýpka og lengjast. Skera þarf meira niður og hækka skatta meira en gert hefur verið. Hallinn á ríkissjóði gæti orðið meiri. Hallinn á ríkissjóði ber vexti og þeir hlaðast upp. Þar af leiðir að eftir því sem kreppan dýpkar og lengist hækka skuldir ríkissjóðs vegna vaxtakostnaðar.
Niðurrifsstarfsemi huglausrar stjórnarandstöðu hefur nú stórskaðað þjóðin. Tilgangurinn var að grafa undan ríkisstjórninni. Stjórnarandstaðan gróf í leiðinni undan möguleikum þjóðarinnar til að vinna sig hratt útúr kreppunni. En tilgangurinn virðist helga meðalið!
Meðan Icesave-málið er óklárað gerist ekki annað en það að kreppan dýpkar og dýpkar. Í boði stjórnarandstöðunnar, Indefence-hóps Framsóknarflokksins, forseta Íslands, nytsamra sakleysingja og þjóðrembukverulanta.
![]() |
Eðlilegt að undirbúa viðræður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
21.1.2010 | 10:51
Skaðinn er löngu skeður!
Ég verð að segja , að mér finnst heilög Jóka taka skrýtinn pól á hæðina! Skaðinn er löngu orðinn! Mér er slétt sama um þetta AGS og helvítis Evrópusambandið, enda bæði valda- og kúgunartæki gírugra alþjóðlegra kapítalista. Evrópusambandið hefur samt orðið sér úti um fallegri sauðargæru!
Ég hef meiri áhyggjur af að almennt er orðspor Íslendinga orðið þannig, að orð okkar og gerðir, s.s. undirskriftir, eru að engu hafandi. Þjóð, sem umgengst aðra með slíku virðingarleysi og hroka sem þessir útrásarbófar gerðu, og svo íslensk stjórnmálastétt/elíta fyrir og eftir hrun, er ekki treyst! Og með réttu! Stjórnmálaelítan hefur síðan haustið 2008 farið um lönd skrifandi undir samninga og yfirlýsingar, sem eftir heimkomu er kallað að séu minnismiðar! Svona einsog gulu miðarnir, sem hægt er að smella á rammann á tölvuskjánum eða á ísskápinn! "Jóna frænka á afmæli á sunnudaginn...kaupa mjólk og rúgbrauð..." o.s.frv. Að maður tali nú ekki um reisur forystumanna þjóðarinnar rétt fyrir hrun. Þegar þau lugu því uppá gátt, að hér væri sko allt í lukkunnar velstandi, bankakerfið traust einsog jarðarkringlan, ríkissjóður skuldlaus gæti sko hlaupið undir bagga vildi svo ólíklega til að "hin alþjóðlega fjármálamiðstöð" (jú, það fyrirbæri finnst í stjórnarsáttmála Geirs og Ingibjargar) klikkaði á því! Og Seðlabankastjórinn bætti aldeilis álitið, þegar hann talaði einsog sauðdrukkinn sveitadurgur í réttunum í afdalnum: Við borgum sko ekki...! Hélt maðurinn að enginn væri að hlusta nema heiladofinn söfnuðurinn í Valhöll?
Treystir einhver svona fólki? Ég segi NEI! Og þessvegna mun ég segja JÁ í þjóðaratkvæðagreiðslunni!
![]() |
Icesave skaði ekki alþjóðleg tengsl |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 14:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
21.1.2010 | 00:19
Hinn ógeðfelldi umskiptingur og málsvari Óvinarins Jón Valur Jensson...
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 00:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
20.1.2010 | 17:41
Gamla jólaskrautið tekið niður í Valhöll.
16.1.2010 | 23:35
Það er víst alveg sama...
![]() |
Flokksráð ítrekar andstöðu VG við inngöngu í Evrópusambandið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.1.2010 | 23:33
Það er fínt!
![]() |
Segist ráða yfir Actavis |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
16.1.2010 | 22:05
Memorandum of understanding 11. október 2008.
Linkur á frægasta minnisblað Íslandssögunnar Memorandum of undarstanding 11.október 2008.
http://www.island.is/media/frettir/11.pdf
16.1.2010 | 21:07
Þingsályktunartillaga ríkisstjórnarinnar nóvember 2008.
Úr þingsályktunartillögu ríkisstjórnar Geirs H. Haarde í nóvember 2008:
"Aðilar komu sér saman um að tilskipunin um innistæðutryggingar hafi verið felld inn í löggjöfina um Evrópska efnahagssvæðið í samræmi við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið og gildi því á Íslandi með sama hætti og hún gildir í aðilarríkjum Evrópusambandsins. Viðurkenning allra aðila á þessari lagalegu stöðu greiðir fyrir skjótri niðurstöðu samningaviðræðna þeirra sem nú standa yfir um fjárhagsaðstoð við Ísland."
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.1.2010 | 21:11
Niðurstöður frá 2008 sem Bjarni Ben studdi ásamt öllum öðrum þingmönnum Sjálfstæðisflokksins!
Flokksformennirnir semja og semja hver við annan! Og segjast sumir þeirra hafa góða trú á, að Hollendingar og Bretar fáist að samningaborðinu. Stjórnarandstöðunni tókst með lýðskrumi að þvinga ríkisstjórnina í viðræður við sig. Að þeim takist hið sama með Breta og Hollendinga má með réttu efast um. Hollendingar og Bretar hafa enga þörf fyrir að semja við Íslendinga uppá nýtt. En Íslendingar verða í mikilli klemmu verði enginn samningur um málið gildur!
...en ég hef alla tíð verið þeirrar skoðunar að Evrópusambandið hefði átt að standa miklu nær viðræðuferlinu," sagði Bjarni. Bjarna má benda á samning sem ríkisstjórn Geirs H. Haarde gerði 16. nóvember 2008 við ESB. Þar voru lagðar línurnar um samningana, hin umsömdu viðmið. Ríkjunum var svo látið eftir að semja um smáatriðin. Í Viljayfirlýsingu Íslands og AGS 9. grein kemur einnig fram sama afstað. Bjarni Ben hefur endurtekið í sífellu, að samningurinn frá í haust sé ósanngjarn og að engin ríkisábyrgð gildi um innistæðutryggingar. Samt greiddi Bjarni einmitt atkvæði sitt tillögu um ríkisábyrg á innistæðum í íslenskum bönkum á Evrópska efnahagssvæðinu haustið 2008.
AGS hefur verið gagnrýndur fyrir þá afstöðu sem hann tók til endurskoðunar áætlunarinnar um endurreisnina eftir að ÓRG vísaði lögunum til þjóðarinnar.
Árni Mathiesen þáverandi fjármálaráðherra og Davíð Oddsson þáverandi seðlabankastjóri undirrituðu Viljayfirlýsingu íslenskra stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Í níundu grein þeirrar yfirlýsingar stendur orðrétt:
Ísland hefur heitið því að virða skuldbindingar á grundvelli innstæðutryggingakerfisins gagnvart öllum tryggðum innlánshöfum. Þetta byggist á þeim skilningi að unnt verði að forfjármagna þessar kröfur fyrir tilstyrk viðkomandi erlendra ríkja og að jafnt Ísland sem þessi ríki séu staðráðin í að efna til viðræðna á næstu dögum með það að markmiði að ná samkomulagi um nánari skilmála vegna þessarar forfjármögnunar." (15. nóvember 2008).
Hin umsömdu viðmið í samningi ríkisstjórnar Geirs H. Haarde við ESB.
- Ríkisstjórn Íslands hefur átt viðræðufundi með stofnunum Evrópusambandsins og hlutaðeigandi aðildarríkjum þess um skuldbindingar Íslands samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið að því er tekur til tilskipunar um innstæðutryggingar 94/19/EB. Aðilar komu sér saman um að tilskipunin um innstæðutryggingar hafi verið felld inn í löggjöfina um Evrópska efnahagssvæðið í samræmi við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið og gildi því á Íslandi með sama hætti og hún gildir í aðildarríkjum Evrópusambandsins.
- Viðurkenning allra aðila á þessari lagalegu stöðu greiðir fyrir skjótri niðurstöðu samningaviðræðna þeirra sem nú standa yfir um fjárhagsaðstoð við Ísland, þ.m.t. við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Þessar samningaviðræður skulu fara fram með samhæfðum og samræmdum hætti og skal þar tekið tillit til hinna erfiðu og fordæmislausu aðstæðna sem Ísland er í og knýjandi nauðsynjar þess að ákveða ráðstafanir sem gera Íslandi kleift að endurreisa fjármála- og efnahagskerfi sitt.
- Stofnanir Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins munu taka áframhaldandi þátt í þessu ferli sem fer fram í samráði við þær. (16. nóvember 2008).
![]() |
Ekki formleg niðurstaða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
15.1.2010 | 11:20
Orðhengilsháttur Íslendinga Dönum að kenna? Jasso?
![]() |
Íslensk þrjóska vegna nýlendustefnu Dana? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.1.2010 | 23:28
Það er nú gott!
Ýmislegt getur áunnist með þessum viðræðum stjórnar og stjórnarandstöðu. Það er fyrst samstaða innanlands í stað þess þrákelknilega óróa sem hér hefur ríkt. Kannski fást Hollendingar og Bretar að samningaborðinu. En fyrst þarf að nást samstaða og hún þarf að halda, þannig að menn hlaupist ekki undan merkjum, þegar þeim þykir henta. Það sést vel á tættri umræðunni hér á blogginu hversu sundruð þjóðin er. Þessu rugli verður að linna. Hlutverk stjórnmálamannanna nú hlýtur að vera, að sameina þjóðina og lægja öldurnar. Hvort sem tekst að draga Hollendinga og Breta að samningaborðinu. Og hvort sem betri samningur næst. Aðalatriðið er að þjóðin standi saman. Þá má ná ýmsu fram, bæði innan lands og utan!
![]() |
Forsætisráðherra bjartsýnn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.1.2010 | 20:54
Hvenær gerði Pat Robertson samning við þann í neðra?
![]() |
Haíti-búar sömdu við djöfulinn" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
14.1.2010 | 17:57
Samstaða þjóðarinnar væri til bóta! Það eru skætingur og hrokafullar yfirlýsingar stjórnarandstöðunnar hinsvegar ekki!
Hér hefur verið blásin upp umræða, sem helst lýsir sér í skætingi og misvísandi yfirlýsingum. Stjórnarandstaðan, hrunflokkarnir sérstaklega, töluðu fagurlega um nauðsyn samstöðu stjórnmálamanna. Það hefur ekki bólað á þessari samstöðu síðan í sumar. Þessa dagana senda þingmenn stjórnarandstöðunnar frá sér allskyns misvísandi yfirlýsingar. Þessar yfirlýsingar hafa einkennst af hroka og yfirlæti. Reynslu litlir forystumenn stjórnarandstöðunnar virðast telja, að samstaðan eigi að vera á þeirra forsendum eingöngu. Það er misskilningur. Samstaðan hlýtur í þessu máli að hafa stefnu stjórnarinnar sem upphafspunkt. Og síðan að vinna saman í samtölum, ekki í fjölmiðlum, að því að komast að samkomulagi um breytingar á þessari stefnu. Ef það er mögulegt!
Ríkisstjórnin fékk Icesave-málið í hendurnar frá ríkisstjórn Geirs H. Haarde. Sú ríkisstjórn hafði reynt sitt besta vil ég segja til að leysa málið við ómögulegar aðstæður. Undir pressu höfðu ráðherrar, í samráði við ríkisstjórn, undirritað samkomulag og samning. Þessir samningar hafa í raun verið útgangspunktar viðsemjenda Íslendinga síðan. Hin umsömdu viðmið (feitletrað hér að neðan) eru holan, sem málið hefur verið í. (Þrasið um vaxtamálin ætla ég að láta liggja milli hluta, enda hafa menn jafnvel vísað í stýrivexti í ESB til að sanna hversu óheyrilega háa vexti við eigum að borga, skv. Icesave1 og Icesave2).
Fáránlegar yfirlýsingar í anda Ketils Skræks hafa enga þýðingu. Menn geta verið kokhraustir í lýðskrumi sínu, þegar það á við. Núna eru ekki tímar fyrir slík stórmennskulæti. Við erum smáþjóð í slæmri stöðu. Viðsemjendur okkar eru valdamiklar þjóðir með ESB á bak við sig. Við skulum líka muna, hvað afl og hvað vald, er að baki ESB. Það er hið alþjóðlega auðvald, sem ræður allri framgöngu mála. Af efnahagslegu valdi sprettur hið stjórnmálalega vald!
Samkomulag milli Hollands og Íslands um IceSave
Að loknum uppbyggilegum viðræðum hafa hollensk og íslensk stjórnvöld náð samkomulagi um lausn mála hollenskra eigenda innstæðna á IceSave-reikningum Landsbankans.
Fjármálaráðherra Hollands, Wouter J. Bos, og fjármálaráðherra Íslands, Árni M. Mathiesen, tilkynntu þetta.
Ráðherrarnir fagna því að lausn hafi fundist á málinu. Wouter J. Bos kvaðst einkum ánægður með að staða hollenskra innstæðueigenda væri nú skýr. Árni M. Mathiesen bætti við að aðalatriðið væri að málið væri nú leyst.
Samkomulagið kveður á um að íslenska ríkið muni bæta hverjum og einum hollenskum innstæðueiganda innstæður að hámarksfjárhæð 20.887 evrur. Hollenska ríkisstjórnin mun veita Íslandi lán til að standa undir þessum greiðslum og hollenski seðlabankinn mun annast afgreiðslu krafna innstæðueigendanna.
Samkomulag næst við Evrópusambandið fyrir hönd Hollendinga og Breta - Greiðir fyrir láni frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (IMF)
Mikilvægur áfangi hefur náðst til lausnar deilunnar um innstæðutryggingar vegna íslenskra bankaútibúa á Evrópska efnahagssvæðinu og stöðu sparifjáreigenda í þeim. Viðræður Íslands við nokkur Evrópusambandsríki, sem komust á fyrir tilstilli Frakklands sem nú fer með formennsku í Evrópusambandinu, leiddu til samkomulags um viðmið sem lögð verða til grundvallar frekari samningaviðræðum.
Samkomulagið felur í sér að íslensk stjórnvöld ábyrgjast lágmarkstryggingu þá sem EES-reglur mæla fyrir um til innstæðueigenda í útibúum bankanna erlendis. Endanlegur kostnaður ríkissjóðs vegna þessa mun ráðast af því hvað greiðist upp í innstæðutryggingar af eignum bankanna. Einnig er kveðið á um að Evrópusambandið, undir forystu Frakklands, taki áframhaldandi þátt í að finna lausnir sem gera Íslandi kleift að endurreisa fjármálakerfi og efnahag.
Aðilar eru ásáttir um að hraða fjárhagslegri aðstoð við Ísland, þar með talið samþykkt lánafyrirgreiðslu sem beðið hefur samþykktar stjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) undanfarnar vikur. Erindi Íslands hjá IMF verður tekið til afgreiðslu hjá sjóðnum miðvikudaginn 19. nóvember.
Umsamin viðmið
- Ríkisstjórn Íslands hefur átt viðræðufundi með stofnunum Evrópusambandsins og hlutaðeigandi aðildarríkjum þess um skuldbindingar Íslands samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið að því er tekur til tilskipunar um innstæðutryggingar 94/19/EB. Aðilar komu sér saman um að tilskipunin um innstæðutryggingar hafi verið felld inn í löggjöfina um Evrópska efnahagssvæðið í samræmi við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið og gildi því á Íslandi með sama hætti og hún gildir í aðildarríkjum Evrópusambandsins.
- Viðurkenning allra aðila á þessari lagalegu stöðu greiðir fyrir skjótri niðurstöðu samningaviðræðna þeirra sem nú standa yfir um fjárhagsaðstoð við Ísland, þ.m.t. við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Þessar samningaviðræður skulu fara fram með samhæfðum og samræmdum hætti og skal þar tekið tillit til hinna erfiðu og fordæmislausu aðstæðna sem Ísland er í og knýjandi nauðsynjar þess að ákveða ráðstafanir sem gera Íslandi kleift að endurreisa fjármála- og efnahagskerfi sitt.
- Stofnanir Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins munu taka áframhaldandi þátt í þessu ferli sem fer fram í samráði við þær.
Reykjavík 16. nóvember 2008
![]() |
Jóhanna skilur reiði almennings |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)