Kapítalisminn á brauðfótum!

Þeir sem keyptu hlutabréf í þessu fyrirtæki hér á landi sjá seint peningana sína.  Sumir töpuðu aleigu sinni í einhverri undarlegri myllu sem sett var af stað af verðbréfamiðlurum.  Nokkrir ónefndir stjórnmálamenn  tóku þátt í að markaðssetja fyrirtækið og hlutabréfin.  Miðlararnir græddu, kaupendurnir töpuðu.  Nú er féð að verða uppurið í taprekstrinum.  Til stendur að "selja" þann hluta fyrirtækisins sem líklegastur er til að skila hagnaði í framtíðinni.  Hvort Kári verður meðal kaupenda er ekki vitað.  Útilokað má teljast að takist í framtíðinni að fjármagna fyrirtækið og rekstur þess með lánum (hver á að borga og með hverju).  Nú á fyrirtækið einhvern sjóð eftir til að fjármagna áframhaldandi taprekstur, en hvað tekur svo við veit enginn.  Verður fyrirtækið gjaldþrota eða þjóðnýtt?  Hverfur Kári á braut til útlanda með fullar hendur fjár? Hvað verður um starfsfólkið sem missir vinnuna nú, og hvað um þá sem missa vinnuna í framtíðinni.  Hvað sem segja má um þetta allt, þá er erfitt að tengja það við ábyrga hegðun!
mbl.is Fjöldauppsagnir hjá deCode
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimskulegustu ummæli stjórnmálamanns!

Þetta er ekki einkavæðing, segir Þorgerður Katrín menntamálaráðherra, ríkið borgar reksturinn!  Hvað kemur það málinu við hver borgar brúsann?  Hver á og sér um reksturinn?  Er það ekki einkafyrirtæki?  Kemur það málinu við hver borgar?  Ekki breytist einkafyrirtæki í eitthvað annað þó ríkið borgi fyrir vöru sem það selur!  Er hún eitthvað treg þessi kona?

Íslenskir bankamenn tregir!

Eftir að hafa viðhaft stöðugar viðskiptahindranir á banka- og tryggingamarkaði gagnvart útlendingum eru bankamennirnir hissa á að erlendir fjárfestar eru ekki tilbúnir að koma hlaupandi með peningana sína til landsins.  Eru menn eitthvað tregir?  Hverjir eru þessir erlendu fjárfestar?  Jú, það eru bankar og tryggingafélög, og þeir sem eiga hlutafé í þeim!  Ég spyr aftur:  Eru menn eitthvað tregir?
mbl.is Vandi hve illa gengur að laða að erlenda fjárfesta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einkavinavæðing?

 

klassekamp 

Getur Þorgerður Katrín ráðstafað eigum ríkisins að vild sinni.  Þarf ekki Alþingi að samþykkja svona gjörning.  Þarf engin umræða að fara fram um það þegar stærsti framhaldsskóli landsins er afhentur til einkarekstrar.  Þetta finnst mér slæmar fréttir og stríða gegn þeirri stefnu sem á að tryggja öllum jafna möguleika til náms.  Efast um að gróðafíkinn einkarekstur hafi áhuga á að tryggja svoleiðis hugsjónir.  Það tók áratuga baráttu.  Það vill oft gleymast að það var eitt af baráttumálum verkalýðshreyfingarinnar á fyrrihluta síðustu aldar. Og hafðist ekki átakalaust. Nú er því tekið sem sjálfsögðum hlut.  Og þá er hættan sú að árangurinn glutrist niður, ef við stöndum ekki vörð um þessi sjálfsögðu mannréttindi.  Að langskólamenntun verði áfram sjálfsagður réttur allra, ekki bara þeirra sem "eiga" peninga.

Í þessu samhengi er vert að minnast á lífeyrissjóðakerfið.  Því var komið á að kröfu verkalýðshreyfingarinnar í kjarasamningum.  Líkt og almennri skólaskyldu og jöfnum möguleikum allra til náms.  Þetta voru baráttumál verkalýðshreyfingarinnar og kostaði mikla baráttu og ströggl við borgarastéttina, sem var þessum málum öllum andsnúin.  Það var lenska hér um árabil að agnúast útí lífeyrissjóðakerfið (sú umræða lognaðist útaf, sem betur fer, enda full af bulli) og vildu margir leggja niður þetta kerfi og einkavæða og tengja einkaeign, s.s. breyta úr sameign.  Nú, í  ólgusjó hinnar alþjóðlegu fjármálakreppu kapítalismans, er þetta kerfi okkar sterkasta vopn.  Lífeyrissjóðakerfið er eitt af því sem kemur í veg fyrir á íslenskt efnahagslíf hrapi niður alla alþjóðlega lista, sem virðist vera svo mikilvægt í hinum alþjóðlega kapítalisma.  Nú þykjast margir Lilju kveðið hafa, einkum þeir sem hafa allt haft á hornum sér gagnvart þessum réttindamálum verkalýðsins.

Nýjasta atlagan að réttindamálum alþýðunnar er sú hugsjón hægrimanna að leggja niður Íbúðalánasjóð og afhenda bönkunum eignir hans og rekstur til fullrar nýtingar.  Bankakerfi sem stendur á brauðfótum.  Það er athyglisverð fréttamennska, þegar sagt er frá því að bankakerfið og Seðlabankinn eigi eignir uppá 10.000 milljarða.  Ekki er minnst einu orði á að þetta er ekki hrein eign.  Á móti koma nefnilega skuldir.  Sem dæmi má nefna KB-banka.  Hrein eign hans er ekki nema nokkur hundruð milljarðar, þó eignir hans séu talsvert meiri.  Eignir-Skuldir=Hreinar eignir.  Hvernig verða svo vaxtakjörin hjá fasteignakaupendum þegar Íbúðalánasjóður verður úr sögunni?  Nóg eru vaxtakjörin undarleg hjá einkabankakerfinu í dag.  Okurlánastarfsemin er svo afsökuð með stýrivöxtum Seðlabankans, sem koma málinu ekkert við.  En bankarnir hafa ekki tekið lán hjá Seðlabankanum, heldur í útlöndum.  Tekið lán á lágum vöxtum og endurlánað þá innanlands á okurvöxtum.  Síðan hafa bankarnir beitt viðskiptahindrunum til að koma í veg fyrir samkeppni á markaðnum.  Svona svipað og tryggingafélögin, en það er svo eitt enn dæmið um villimennskuna, sem íslenskir kapítalistar hafa komist upp með í skjóli hægrisinnaðar stjórnmálamanna.  Stjórnmálamennirnir hafa samþykkt þetta allt með þögn og aðgerðarleysi og nú er komið að Íbúðalánasjóði.  Nú ætla þessir sömu stjórnmálamenn, þessir vikadrengir auðvaldsins, að afhenda bönkunum starfsemi íbúðalánasjóðs.

Það er verið að skerða mannréttindi alþýðu landsins og árangur margra áratuga baráttu er fyrir borð borinn!  Þessu fagna að sjálfsögðu hægrimenn og einkavinavæðingarsinnarnir.  Og Alþingi heldur kjafti!  Enda ekki von á öðru.


mbl.is Menntafélagið yfirtekur rekstur skóla
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Glúmur áfrýjar!

mótmælendur Þetta fólk kallaði ómar skríl! Allir sem eru greinanlegir á myndinni geta hugsanlega farið í mál við hann og hirt af honum ca, 800.000 krónur hver!  Ef það sama á yfir alla að ganga.  En það skiptir kannski máli að vera "frægur."  Þó ekki sé nema pínulítið!

Glúmur áfrýjar.

Gott að vita það. Vonandi að Hæstiréttur snúi við þessum dómi héraðsdóms í máli ómars r. valdimarssonar gegn Glúmi Úlfarssyni.  Spurning hvort það skipti máli í svona dómsmáli að vera "frægur", en það er einmitt spurning sem ómar varpaði á bloggi sínu fram vegna dóms yfir Kalla Bjarna á sínum tíma.

Talandi um blogg ómars r..  Hvað ætli séu margir sem hugsanlega gætu farið meiðyrðamál við ómar vegna bloggfærslna hans.  Mætti þar telja ýmis fyrirtæki og einstaklinga mismunandi "fræga." Ýmsir Femínistar eiga hugsanlega harma að hefna. Ekki ólíklegt að jafnvel Fjárlaganefnd Alþingis gæti hugsanlega kært ómar fyrir meiðandi ummæli.  VinstriGræn sem flokkur, einstöku þingmenn Vg,  Birkir j. Jónsson, etc.  Það er að segja, ef Hæstiréttur snýr ekki við þessum nýfallna dómi.

P.s. Vona að þessi skrif kosti mig ekki 800.000 krónur.  Hræsnarar eru til als líklegir!


Vefjahöttur?

both_sides_of_story 

Sérkennilegt mál!  ómar þessi telur ekkert eftir sér og sparar ekki stóru orðin um ýmsa á bloggi sínu.  M.a. má þar finna ummæli einsog "skríll" um mótmælendur á pöllum í Ráðhúsinu, "ræningjar" um birgja og "glæpamenn" um veitingamenn (reyndar eru nöfn birgjanna og veitingahúsanna tilgreind á tengli, en að baki þeim eru trúlega einstaklingar).  Nöfn sumra þessara fyrirtækja eru á bloggsíðunni sjálfri.  Einhverntíma hefði verið talað um róg af minna tilefni.  Kannski finnst ómari þessi orð léttvægari en þau sem Glúmur lét falla um hann sjálfan.  Ég velti því hinsvegar fyrir mér hverskonar innræti liggur að baki skrifunum um frambjóðandann og líka ummælunum um Pólsku verkamennina, sem veiktust á Kárahnjúkum!  Það getur vel verið að það þyki sniðugt á sumum bæjum að tala með fyrirlitningu og hroka um Pólverja og frambjóðendur Vg, en það er bara á sumum bæjum.  Kannski ómar hafi einhvern tilgang með því annan og meir en að tala/skrifa illa um viðkomandi?  Þetta fellur örygglega í kramið, þar sem því er ætlað!

  Tilefni bloggs Glúms um ómar voru mjög rætin skrif ómars um frambjóðenda VinstriGrænna.  Þar var meðal annars dróttað um að frambjóðandinn vildi að einhver tiltekinn einstaklingur rotnaði í fangelsi um aldur og ævi.  Lak mannhatrið af bloggi þessu.  Sjálfsagt hefur ómari verið klappað og strokið af einhverjum fyrir, enda sjálfsagt tilgangurinn með mannorðsníðinu? 

Hvað eiga Islamistar og ómar r. valdimarsson sameiginlegt?

P.s. Vona að þessi skrif kosti mig ekki 800.000 krónur.  Maður veit aldrei uppá hverju hræsnarar taka!


mbl.is Sekur um meiðyrði á bloggi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kapítalisminn á brauðfótum!

 

marx-karl 

Öðru vísi mér áður brá.  Hvað eru margar vikur síðan Geir og nær öll þjóðin fékk stjörnur í augun, ef minnst var á bankaburgeisana og allt hitt "útrásarliðið"?  Máttu varla vatni halda.  En um leið og á móti blæs ætlar allt að kikna af áhyggjum.  Kreppa, kreppa. 

Kannski við eigum eftir að fá umræður um þjóðnýtingu?  Fá ríkisbanka á ný?  Verður þá Baugur Group, FL group og GROUPGROUP etc. þjóðnýtt líka?  Viðskiptamódel hvað?  Það er ekkert að viðskiptamódelinu.  Kapítalisminn stendur einfaldlega á braufótum, nú sem áður!  Og óþarfi að kenna sparisjóðsstjórum í dreifbýli BNA um ástandið.

Og óþarfi að fá hland fyrir hjartað.  Horfumst í augun við sannleikann.  Kapítalisminn stendur á brauðfótum og hefur alltaf gert.  Þetta vita Bretar.  Þeir taka fram löngutilbúnar áætlanir um þjóðnýtingu til að bjarga kapítalistum í klípu.  Vanir menn.  Hér á landi grípa menn varla til slíkra ráða, heldur munu ráðamenn sitja tárvotir í hlandpollinum meðan allt fer til fjandans.  Ef það fer þá til fjandans.  Sem ég er reyndar að vona.  Nú sé komið að svanasöng kapítalismans. 

 


mbl.is Menn hafa verið djarfir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slæmur í fótunum?

ríkið 

 "Ríkið það er ég". 

En fer ekki allt í bál og brand í stóra flokknum ef Villi stígur niður?  Hvað er nú orðið af "glundroða" kenningu Sjálfstæðismanna.  Ýmislegt hefur gengið á hjá vinstrimönnum síðustu áratugina, en ég held að dvergarnir sjö toppi það allt.  Þeir eru duglegir, þeir mega eiga það !


mbl.is Vilhjálmur ætlar að sitja áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óþekk(t)ur bloggari!

blogdevel

Skammastu þín Össur!

  x_myndir_-_ur_syningum_lik_i_oskilum_lik_aftur_5_14_332848

Úr sýningu Borgarleikhússins.  Hefur ekkert með blogg Össurar að gera.

Auðvitað á Össur að skammast sín!  Hann er á góðri leið með að redda pólitískri framtíð Gísla Marteins.  Gísli, og fleiri á þeim bæ, var á góðri leið með að plotta sig útí horn í pólitíkinni, en nú fleytir samúðarbylgjan honum á toppinn(?).  Hvað er betra fyrir stjórnmálamann í óvissu ástandi og ólgu heldur en einmitt samúð samfélagsins?

Ekki vissi ég að Sigurður Kári væri dramadrottning.


Umræður á Alþingi.

Þar sem ég sat og fylgdist með umræðum um frumvarp til breytinga Almannatryggingalögum datt mér í hug, hvort þingmenn og ráðherrar geti ekki fetað í fótspor Þorsteins Más núverandi stjórnarformanns Glitnis.  Þannig er að sumir þingmenn virðast sjá ofsjónum yfir því lifibrauði sem þetta þjóðfélag skaffar lífeyrisþegum. Þeir fóðra það reyndar með málflutningi um aukin útgjöld ríkisins.  Það er þannig að  þeir virðast telja að gæta þurfi sérstaks aðhalds í útgjöldum til Almannatrygginga og annarra velferðarmála.  Ef þessir þingmenn meina það sem þeir segja, þegar þeir tjá sig um áhyggjur sínar af útgjöldum ríkissjóðs, þá gætu þeir byrjað á að lækka laun sín.  Til þess þarf ekki nema einfaldar breytingar á lögum!  Pétur Blöndal telur t.d. að það sé ekkert mál að lifa á 130.000 krónum á málinu.  Ég ætla nú ekki að ganga svo langt að halda því fram, að það heyrist þegar hann hristir höfuðið.  En það þarf kannski ekki að borga Pétri meira fyrir að tala og tala og tala...

Félagshyggja? Hvað segja Samfylkingarbloggarar? Þeir verða að gera svo vel og útskýra þetta fyrir oss aumum vinstrimönnum og kommum!

Er þetta einhver ný tegund af félagshyggju- og jafnréttisstefnu hjá ríkisstjórn Íslands.  Var ekki verið að leggja áherslu á að hækka tekjur hinna lægst launuðu.  Forystumönnum ASÍ finnst þetta sjálfsagt "algert aukaatriði", sbr. frétt um stimpilgjöldin hér á mbl.is.  En ef þessi gerningur ríkisstjórnarinnar gengur gegn skoðunum Samfylkingarinnar í velferðarmálum verður hún að minnsta kosti að útskýra málið fyrir kjósendum sínum. Ég hef ekki kosið Samfylkinguna og reikna ekki með að það breytist.  Mér hefur aldrei fundist þessi "jafnaðarstefna" hægrikratanna fýsilegur kostur og reyndar frekar ótrúverðug stjórnmálastefna.  Samsuða af frjálshyggju og socialdemokratisma sem minnir mest á Mússólínífarganið!

En kannski ræður Samfylkingin engu í ríkisstjórninni?  Og skýrir það e.t.v. reiðiköst Össurar á nóttunni í bloggheimum.


mbl.is Bætur hækka um 3 til 4%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gáfnaljósið að vestan?

aparogmenn


mbl.is Síðustu górillunum bjargað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til hvers vildu þeir vita það?

Stóð til að "banka" manninn?  Hvað á maður að halda?

ÖL hvað?

thatcher
mbl.is „Ölum enn með okkur von"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gáfnaljósið að vestan.

En er hann að.  Nú ætlar hann að bjarga síðustu loðnunni.  Einusinni ætlaði hann að bjarga íslensku efnahagslífi með því að leggja niður vaxtabætur.  Það hlustaði enginn á hann þá.  Af hverju að hlusta á hann núna?  Það er vaðandi loðna útum allan sjó og mokveiði.  Þó það sjáist ekki úr fjörunni á Bolungar-eitthvað!


mbl.is Veiðum hætt á hádegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

He had it comin'. Þ.e. Gísli Marteinn klifurmús!

"Það má bara ekkert segja hér lengur."  Svo ég vitni nú í mætan(?) Seðlabankastjóra!
mbl.is Pistill Össurar ræddur á þingflokksfundi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vona bara að...

...þeir skjóti niður rétt "tungl."  Bandaríski flotinn er nefnilega þekktur fyrir að skjóta niður ýmislegt, sem ekki stóð til að skjóta niður.  Einsog farþegaflugvélar fullar af saklausum borgurum á alþjóðlegum flugleiðum.  Kannki verða þeir búnir "að bombardera" niður kallinn í tunglinu, þegar við vöknum í fyrramálið!
mbl.is Njósnahnöttur skotinn niður í nótt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það var og!

Væntanlega þessir með einkaeignaréttinn á heilanum.  Þeir hafa aldrei heyrt eða lesið um almenninga, þessvegna skilja þeir ekki, að ónafngreindur hópur fólks, í þessu tilfelli þjóðin, geti átt eignir í sameiningu!  Kannski eru þeir ekki nógu vel gefnir til að skilja það sem óskólagengnir útpískaðir kotbændur skildu svo vel á öldum áður.  Nema ósveigjanlegri hugsun, en ekki heimsku, sé um að kenna!

einkavæðing


mbl.is Sex þingmenn gera fyrirvara við orkufrumvarp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hækkun til lífeyrisþega /v kjarasamnnganna.

ríkið 

 Að gefnu tilefni.  Sé að einhverjir eru að velta þessu fyrir sér.

"Fjármálaráðuneytið reiknar nú út hækkanir á grundvelli kjaraasamninganna og meðaltalshækkanir verða metnar inní hækkanir bóta almannatrygginga.  Ekki liggur fyrir í dag  hvaða prósentu verður um að ræða en hækkunin mun taka gildi verði samningarnir samþykktir."

Þetta kemur fram í svari við fyrirspurn til Félags- og tryggingamálaráðuneytisins.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband