30.4.2007 | 16:31
Grænt svæði?
![]() |
Öryggissvæðið að verða tilbúið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.4.2007 | 16:14
Dögg Pálsdóttir og niðurskurðarminnið!
Dögg Pálsdóttir rifjar upp fyrir okkur kjósendum með gullfiskaminnið, að Sighvatur Björgvinsson nokkur, alþýðuflokksmaður, var heilbrigðisráðherrra í ríkisstjórn Davíðs Oddssonar. Sighvatur mun skv. niðurskurðarminni Daggar hafa hækkað greiðsluþátttöku foreldra í tannlæknakostnaði í 25% úr 12%. Glaður vildi ég, sem foreldri, greiða 25% af tannlækniskostnaði/eftirliti dóttur minnar. Málið er ekki svona einfalt. Tryggingastofnun er með einhvern afgamlan taxta sem endurgreiðslan er miðuð við, þannig að þessi regla um 25% greiðsluþátttöku er ekki við líði. Ætli sé ekki nær að greiðsluþátttaka foreldra sé á bilinu 40-60%. Og svo er ekki greitt fyrir allar heimsóknir barna til tannlækna og þá er greiðsluþátttakan 100%. Það getur verið ágætt að hafa gott minni, en enn betra er að eigi smávegis sannleiksást í pokahorninu.
Í ríkisstjórnartíð Davíðs Oddssonar hófst nýtt tímabil í íslenskum stjórnmálum. Áður höfðu ráðherrar varið málaflokka sína og reynt að gera veg þeirra sem mesta og bestan. Nú hófu ráðherrar að skera niður í málaflokkum sínum sem mest þeir máttu eða fá bágt fyrir ella. Ríkisstjórn Davíðs Oddssonar hóf stórfelldar árásir á velferðarkerfið með niðurskurði og sultarólaaðhaldi. Eðli málsins skv. voru það forsætisráðherrann Davíð Oddsson og Friðrik Sófusson fjármálaráðherra, sem mótuðu stefnuna í ríkisfjármálum þessarar ríkisstjórnar.
Vonandi hefjast þeir tímar einhvern tíma aftur, að ráðherrar gegni stöðum sínum þannig, að þeir verji málefni ráðuneyta sinna og stöðu, en séu ekki hlaupatíkur sparibauka fjármálaráðuneytisins, eins og ráðherrar velferðarmálanna og menntamálanna hafa verið síðan 1991!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.4.2007 | 14:14
Því minna því betra!
29.4.2007 | 14:06
Guðjón A.
29.4.2007 | 13:18
Kostuleg umræða um öryggismál Íslands!
29.4.2007 | 12:41
"Ekkiaðdáendaklúbbur" Ólafs Ragnars!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.4.2007 | 16:32
"Ísland fyrir Íslendinga"
28.4.2007 | 16:07
°Mál að linni.

Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.4.2007 | 15:33
Laugardagur.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.4.2007 | 18:51
Öflugt atvinnulíf-undirstaða velferðar?
![]() |
48 manns sagt upp störfum hjá Bakkavík í Bolungarvík |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.4.2007 | 16:54
Auglýsingar ríkisstjórnarflokka ójafnaðarins!
MEIRI VELFERÐIN !
Það er greinilegt að kjósendur "kaupa" ekki kosningaauglýsingar framsóknar: Áfram árangur-ekkert stopp/öflugt atvinnulíf-undirstaða velferðar. Það vill svo til, að kjósendur eru með fullu viti, þess vegna taka þeir ekki mark á stoppáróðri framsóknar. Við vitum sem er að það er líf eftir framsókn; lífið mun hafa sinn gang og svo mun atvinnulífið einnig. Talandi um kröftugt atvinnulíf. Ætli Jón stopp hafi ekkert heyrt frá Vestfjörðum og Norðurlandi-Vestra. Í því kjördæmi hefur hagvöxtur verið neikvæður um árabil, sem þýðir að þar hefur ríkt samdráttur. Og framsóknarmenn eru seinheppnir á öllum sviðum: öflugt atvinnulíf-undirstaða velferðar. Miðað við ástand velferðarkerfisins hlýtur atvinnulífið að vera í lamasessi. Veruleikinn er sá að í öllu góðærinu hefur allt velferðarkerfið drabbast niður og er því í hinum mesta ólestri! Landspítalann vantar meira en milljarð á ári til að geta sinnt verkefnum sínum og öll vitum við um ástandið í málefnum geðfatlaðra. Stjórnin hefur lækkað barnabætur og haft þannig 10 milljarða af barnafjölskyldum landsins. Stjórnin hefur lækkað raunvirði persónuafsláttar og haft þannig 35 milljarða af skattgreiðendum á 12 árum. Lífeyrir hefur ekki hækkað í takt við launahækkanir og þannig hefur ríkisstjórnin haft 40 milljarða af öldruðum. Samtals eru þetta 85 milljarðar. Það er von að Geir H. Haarde segi að ríkissjóð muni um hverja 1000 krónu hækkun á persónuafslættinum, en einstaklinginn muni ekkert um hann! Kannski eru kjósendur á annari skoðu.
71% landsmanna telur að ójöfnuður hafi aukist í landinu. Kaupmáttur lífeyrisþega hefur aðeins aukist um 20-25% á 12 árum!
TÖLUM SAMAN!
Nú auglýsir hinn ójafnaðarlokkurinn: TÖLUM SAMAN! Og minnir á ofbeldisfullan heimilisföður sem er búinn að níðast á fjölskyldu sinni í 12 ár og vill nú lofa bót og betrun! Á að fara tala kjósendur til útundir húsvegg núna rétt fyrir kosningar! "Ég lofa að vera góður." þVÍ MIÐUR: OF LÍTIÐ, OF SEINT!
Því miður! Ég hef ekkert við ykkur að tala!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.4.2007 | 14:20
Það sem að er stefnt!
![]() |
Pútín segir eldflaugavarnakerfi geta leitt til gagnkvæmrar eyðileggingar" |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.4.2007 | 13:46
Allsherjarnefnd.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 19:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
27.4.2007 | 10:21
Og trúi þeir sem vilja!
27.4.2007 | 10:14
Stórmerkileg niðurstaða!
![]() |
Fólk telur ójöfnuð meiri nú |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.4.2007 | 09:57
Skipta þarf um ríkisstjórn!
![]() |
LSH komist í hóp fimm bestu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.4.2007 | 20:09
Samfélagsþjónusta í molum!
![]() |
Fjárveitingar til LSH í engum takti við þróun eftirspurnar eftir þjónustu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
26.4.2007 | 17:50
Loforðin frá í fyrra!
Þrátt fyrir loforð um að nú yrði tekið til hendinni í borginni okkar, þá hefur hún nú sennlega aldrei verið subbulegri en nú! Það kosningaloforð var sem sagt fyrst til að fjúka með ruslinu. Svona vorhreinsun hefur verið árlegur viðburður í Reykjavík um áratugaskeið! Ekkert sem Villi litli er brautryðjandi í frekar en öðru!
Ein spuring að lokum til borgarstjóra: Hvenær verður spilavítunum við Hlemm lokað? Þú gekkst svo snöfurmannlega fram í að hrekja spilavítið burt úr þínu heimahverfi. Hvenær kemur að mínu hverfi?
![]() |
Vorhreinsun í Reykjavík hefst um helgina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |