6.2.2010 | 16:03
Eyþór Arnalds stendur sig vel í þessu!
Það er ástæða til að fagna árangri af allri vinnu, sem miðar að því að auka fjölbreytni í íslensku atvinnulífi. Sérstök ástæða er til þess, þegar stjórnmálamaður á hægrivængnum sér eitthvað annað en álbræðslu. En það eru fleiri en þeir sem það gera. Um jólin átti ég stutt samtal við Íslending, sem starfar í Kanada við hönnun Helguvíkur-bræðslunnar. Hann sagði aðspurður, að koltrefjar ætt litla framtíð fyrir sér. Álið yrði tekið framfyrir það. Hann hafði skrifað lokaritgerð í doktorsnámi sínu um koltrefjar. Ég hef nú alltaf varann á mér gagnvart fullyrðingum í þessum dúr.
Eyþór Arnalds hefur verið öflugur við að ná sambandi við fyrirtæki allskyns iðnaði til að fá þau til að setja hér upp rekstur í samvinnu við heimamenn.
Það er aðeins eitt, sem ástæða er til að benda á í þessu sambandi. Það er sú hætta sem óhjákvæmilega skapast, þegar til heilu byggðirnar reiða sig á aðkomumenn og utan að komandi aðila til atvinnusköpunar, og verða síðan algerlega háðir henni. Suðurnesjamenn lentu í þessu. Áratugum saman gátu þeir reitt sig á herinn, sem var, ásamt sjávarútvegi, aðalatvinnurekandinn á svæðinu. Lítið annað var í boði. Samdráttur varð í sjávarútvegi og svo fór herinn. Atvinnuleysi hafði alltaf verið nokkuð á Suðurnesjum. Samdráttur í sjávarútvegi jók á vandann. Og svo fór herinn. Og enn biðla Suðurnesjamenn til utanaðkomandi með atvinnusköpun. Þannig virðist hafa skapast andvaraleysi, sem svo leiðir til skorts á frumkvæði heimamanna.
Austfirðingar eiga svipaða reynslu. Á síldarárunum var það þannig, að flestir síldarkóngarnir komu að sunnan. Þegar síldin brást sátu heimamenn eftir með sárt ennið. Síldarkóngarnir farnir suður, þangað sem gróði síldaráranna hafði streymt. Austfirðingar biðluðu til utanaðkomandi um atvinnuuppbygginu. Nú hafa þeir fengið Kárahnjúkvirkjun og álver á Reyðafjörð. Enn hvað svo. Enn virðast þeir í vandræðum.
Segja má, að ríkisvaldið hafi brugðist. Lítill sem enginn stuðningur er við uppbyggingu smáfyrirtækja og einstaklingsframtaks. Engin hvatning. Menn ganga á veggi reglugerðafargans. Litlir sem engir styrkir. Lánsfé er dýrt. Leggja verður allt að veði. Hús, og aðrar eignir, fjölskyldna, jafnvel ættingja og vina. Og svo öll skilyrðin og reglufarganið. Bæði dýrt og flókið, og óvinsamlegt í meiralagi. Venjulegu fólki er nánast gert ókleyft að bjarga sér! Þetta þarf að breytast, svo við getum hætt að reiða okkur á aðra um atvinnu og lífsviðurværi! Framtíðin er ekki í stóriðju!
Koltrefjaverksmiðjur undirbúnar á tveimur stöðum norðanlands | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
5.2.2010 | 13:56
Óþarfa snúningur!
Ég hefði viljað, að fyrri eigendur eigendur Haga, þar á meðal feðgarnir, hefðu einfaldlega fengið fyrirtækið aftur með afskriftum og alles. Á silfurfati!
Ástæðan: Þeir fara svo rosalega í taugarnar á Náhirðinni og öllum "grúpíunum" hennar! Grillgróðapungarnir og Brjálsemishyggjusinnarnir hefðu tapað sér. Með tilheyrandi hasar hér á moggablogginu, þar sem lægsta mögulega meðaltal Íslendinga, hægrimenn af ýmsum gerðum og stærðum, lætur gamminn geysa! Þá hefði sko orðið fjör!
Óvissu um framtíð Haga eytt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.2.2010 | 13:32
Tilætlunarsemi er þetta!
Þingmenn hafa aldrei borið ábyrgð á einu né neinu, hvorki fyrr né síðar. Það er helvítis frekja í starfsmönnum RÚV að ætlast til að þingmenn fari að axla ábyrgð á gerðum sínum.
Sýn flestra stjórnmálamanna er þessi: Fyrst ÉG, svo flokkurinn og þjóðin síðust! Þannig er hagsmunamat þingmanna!
Ég sé, að stuttbuxnadeild Grillgróðapunganna, Brjálsemishyggjufélagið, setur fram ósk sína um að einkavæða RÚV. Það var og! Enda hljóðar ein kenning Grillgróðapunganna svona: Þjóðin getur ekki átt neitt!
Segja alþingismenn bera ábyrgð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
3.2.2010 | 16:52
Eru Bjarni og Sigmundur Davíð "yfir" og "aðal" ?
Það er engu líkara en að dekurdrengirnir haldi það!
Bjarni: "Ég líð þetta ekki." Bjarni í ræðustól Alþingis um ríkisstjórnina.
Bjarni: "ÉG er alveg að missa þolinmæðina gagnvart ríkisstjórninni." Bjarni í viðtali eftir fund um samstarf stjórnarandstöðunnar og ríkisstjórnarinnar.
Ég legg til að Bjarni og Sigmundur Davíð setjist niður og skoði stöðu sína! Það getur vel verið að þeir séu "yfir" og "aðal" á fundum flokka sinna, en á þessu sviði eru þeir það EKKI. Þeir eru einfaldlega í minnihluta á þingi og hafa vægi samkvæmt því!
Þannig er veruleikinn!
Þessi vinna Sósíalíska vinstriflokksins í Noregi kemur í kjölfarið á heimsókn Steingríms J. til þeirra. Mannsins sem hefur verið ásakaður um, hér á moggablogginu m.a. (af lægsta mögulega meðaltali Íslendinga), að ganga erinda annarra en þjóðarinnar! Gegn hagsmunum Íslendinga!
Beiti sér innan sjóðsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.2.2010 | 22:03
En mest undrast Sigmundur og...
...Bjarni, að samstarf ríkisstjórnarinnar við þá eigi ekki að vera á þeirra forsendum eingöngu.
Þetta eru allt saman tekin ráð, strákar mínir! Steingrímur og Jóhanna vilja líka fá að leggja smá til málanna; mega þau það?
Lítið kom út úr fundinum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
2.2.2010 | 21:10
Verða málefni HSS rædd á fundinum? Eða...
...Er ekki búið að sameina viðskiptanefnd og heilbrigðisnefnd, einsog stefnt var að í tíð Gulla litla sem heilbrigðisráðherra?
Hver er munurinn á að ljúga og að gefa rangar upplýsingar? Vitandi vits eða í óviti?
Hvernig áttu 20-30 starfsmenn FME að hafa eftirlit með risavöxnu bankakerfi, sem gaf upp rangar upplýsingar og ársskýrslur sem lítið mark var takandi á? Auk annarra verkefna.
Vill fund í viðskiptanefnd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.2.2010 | 20:57
Ástæða til að fagna!
Fagna úrskurði umhverfisráðherra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.2.2010 | 20:51
Lélegasta viðtal ríkissjónvarpsins í sögu þess!
Viðtalið var skandall frá upphafi til enda! Það verður að vera krafa að viðmælendur sjónvarpsþulanna fái tækifæri til svara þó ekki nema einni spurningu! Þó þula sjónvarpsins sé með hið rétta flokksskýrteini uppá vasann (þó hún neiti því)! Þulan hefði sjálfsagt ekki þorað að beita svona vinnubrögðum við Steingrím J. eða aðra slíka!
Skynsamlegt að fá erlendan samningamann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 20:52 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Jurshevski, sem er hagfræðingur að mennt, vann á síðasta áratug við endurskipulagningu skulda fyrir stjórnvöld á Nýja-Sjálandi, auk þess að koma að sambærilegum verkefnum í öðrum ríkjum og fyrir hönd stórfyrirtækja víða um heim.
Alex Jurshevski
(CEO and Portfolio Manager)
Alex is the founder of Recovery Partners and has more than 20 years of experience in investment management, M&A and advisory work. Alex was formerly a Managing Director of Bankers Trust and prior to that he was with Nomura's Investment Banking Division, a member of the European Management Committee at NIplc and Chair of the Emerging Markets Trading Committee. In the early 90's Alex was recruited to turn around the portfolio management operations for the government of New Zealand. He was a member of the Advisory Panel on Government Debt Management and the World Bank's Government Borrowers Forum. He has been involved in over USD 40 billion of financial restructurings and over USD 20 Billion of primary transactions. Mr. Jurshevski is a current board member of the Toronto Chapter of the Turnaround Management Association and a director of a publicly traded (TSX) high-yield bond fund. His language skills include English, French, and German.
Eitthvers ósamræmis sýnist mér gæta í frásögn mogga af ferli RP og ferilskránni, sem ég fann á netinu! Eitthvað virðist vera látið í veðri vaka á mogga að aðkoma RP að málefnum Nýja Sjálands hafi verið merkilegri en raun ber vitni! Og heldur dregur það úr, að Mr. Jurshevski er sagður tengdur Alþjóðabankanum. En hann og Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafa gjarnan unnið saman við að knésetja ríki og gera þau ósjálfstæð í fjármálalegu tilliti! Að öðru leiti virðist þetta fyrirtæki vera venjulegt fjármálaráðgjafar- og eignaumsýslufyrirtæki, sem hefur aðstoðað hina og þessa við allskyns brask. RP hefur sjálfsagt séð einhverja gróðavon hér í því að "aðstoða"
Kröfurnar verði stórlækkaðar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.2.2010 | 23:26
Enn er logið í Hádegismóum; ekki bara í Dimmuloftum! Google-þýðingar úr hollenska blaðinu!
'IJsland heeft ons voorgelogen'
De IJslandse centrale bank heeft De Nederlandsche Bank 'voorgelogen' over de toestand van Landsbanki, het moederbedrijf van de IJslandse internetspaarbank Icesave waar veel Nederlanders hun geld verloren.
'Ik kan niet anders zeggen dan dat de IJslandse collega's ons hebben voorgelogen', zei Schilder. Samen met DNB-president Wellink trok hij met zorgen over Landsbanki keer op keer aan de bel bij de IJslandse centrale bank. 'Het was steeds een halleluja-verhaal', zei Schilder over het antwoord van de IJslanders. In oktober 2008 gingen Landsbanki en Icesave toch failliet.
Bekijk ook alle videoverslagen over de commissie-De Wit
Schilder zei dat ook andere centrale banken niet altijd volledig waren in het verschaffen van informatie. Maar IJsland was in omvang wel een uitzondering. 'Het was de enige keer dat we echt voor de gek zijn gehouden
Íslenska Central Bank De Nederlandsche banki "logið" um stöðu Landsbankans, móðurfélag Íslenska sparisjóðs Icesave internetinu þar sem margir Hollenska fólk misst peningana sína.
Þetta sagði Arnold Schilder, 2008 framkvæmdastjóri Eftirlit hjá DNB Mánudagur gegn nefndin-De Wit. Þessi nefnd rannsóknir á orsök af inneign kreppu.
"Ég get aðeins sagt að íslenska starfsfélaga hafi logið að okkur," sagði Painter. Ásamt DNB Wellink forseti brá áhyggjur Landsbankans í hvert skipti sem bjalla á Seðlabanka Íslands. "Það var alltaf Hallelujah-sögu," Painter sagði um viðbrögð við Íslendinga. Í október 2008 Icesave og Landsbankinn fór gjaldþrota engu að síður.
Sjá allar vídeó skýrslur um nefnd-De Wit
Painter sagði að aðrir seðlabankar voru ekki alltaf að fullu í að veita upplýsingar. En Ísland er eina undantekningin var í stærð. "Það var eini tíminn sem við haldið raunverulega að brjálaður."
"Iceland has lied to us"
The Icelandic central bank, De Nederlandsche Bank "lied" about the state of Landsbanki, the parent company of Icelandic savings bank Icesave internet where many Dutch people lost their money.
"I can only say that the Icelandic colleagues have lied to us," said Painter. Together with DNB Wellink President drew concerns about Landsbanki every time the bell at the Icelandic central bank. "It was always a hallelujah-story," Painter said about the response of the Icelanders. In October 2008 Icesave and Landsbanki went bankrupt anyway.
See all video reports on the committee-De Wit
Painter said that other central banks were not always fully in providing information. But Iceland is one exception was in size. "It was the only time we really kept the crazy."
Íslendingar lugu að okkur
Arnold Schilder, yfirmaður innra eftirlits hjá hollenska seðlabankanum, segir starfsbræður sína á Íslandi hafa logið til um Icesave reikningana að starfsmönnum hollenska seðlabankans.
Schilder stýrði innra eftirliti hollenska seðlabankans allt til ársins 2008 og í dag lýsti hann fyrir rannsóknarnefnd hollenska þingsins, hvernig íslenskir kollegar hefðu farið með rangt mál um Icesave. Við vorum hafðir að fíflum" sagði hann. Þetta kom fram þegar Schilder bar vitni fyrir þingnefnd í dag.
Íslenskir starfsbræður okkar, ég get ekki lýst því öðruvísi en að þeir hafi logið að okkur" sagði Schilder við De Wit rannsóknarnefndina, sem kannar aðdraganda bankahrunsins í Hollandi. Rannsóknin fer fram fyrir opnum tjöldum og framburður vitna er í beinni útsendingu.
Schilder sagði að ítrekað hefði verið haft samband við íslenska seðlabankann en svörin hefðu ávallt verið á sömu leið, jafnvel eftir fall Lehman Brothers. Engin vandamál væru með Icesave og ekki nokkur ástæða til að hafa áhyggjur. Schilder sagðist sjálfur hafa tekið málið upp við yfirmenn íslenska seðlabankans og Nout Wellink seðlabankastjóri hefði gert slíkt hið sama. Svörin hefðu verið lofsöngur um Landsbankann.
Schilder sagði að oft tæki dágóða stund að fá skýr svör frá erlendum seðlabönkum en Ísland væri algjörlega sér á báti: Þeir voru þeir einu sem höfðu okkur að fíflum" sagði Arnold Schilder.
http://ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item323420/
Talaði ekki um Seðlabankann | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 2.2.2010 kl. 00:02 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.2.2010 | 16:06
Tímanum eytt í röfl og þras! Skítt mað hagsmuni þjóðarinnar!
Lýðskrumararnir vilja frekar nota tímann í þras og málalengingar í stað þess að vinna vinnuna sína! Það er ekki nema von að lítið mjakast af málum í gegnum þingið, þegar vinnubrögðin eru svona!
Síðan hvenær var verkstjórn þingsins á hendi minnihlutans? Og hvenær ætlar stjórnarandstaðan að vakna til veruleikans? Eða er málið, að fella stjórnina? Skítt með hagsmuni þjóðarinnar!
Tekist á um dagskrá þingsins | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
1.2.2010 | 15:33
“You ain’t seen nothing yet”. Ræða Ólafs Ragnar Grímssonar 2005: HOW TO SUCCEED IN MODERN BUSINESS. LESSONS FROM THE ICELANDIC VOYAGE.
HOW TO SUCCEED IN MODERN BUSINESS:
LESSONS FROM THE ICELANDIC VOYAGE
A speech
by
the President of Iceland
Ólafur Ragnar Grímsson
at the Walbrook Club
London
3rd May 2005
Ræðuna í heild má lesa á Silfri Egils. Í ræðunni fjallar Ólafur um hina stórfenglegu útrásarvíkinga, m.a. hrappana sem sköpuðu Icesave-mylluna. Og líkur ræðunni á hinum fleygu orðum:You aint seen nothing yet. Eru það svo sannarlega orða að sönnu fyrir íslenska þjóð! Nú talar Ólafur þvert á stefnu íslenskra stjórnvalda, sem eru þó að reyna að bjarga því sem bjargað verður eftir hina glæsilegu sigurgöngu útrásarbófanna um heiminn; hrundu efnahagskerfi með himinháar skuldir á bakinu! Svar mitt við síðustu orðum ræðunnar er: Oh, yes, we are starting to see it! Í niðurskurði, hærri sköttum, atvinnuleysi, fjöldagjaldþrotum, þjóðarsundrung, etc.etc.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 15:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
1.2.2010 | 14:43
Kannað hvort lög hafi verið brotin. Athyglisverð mynd með frétt RÚV.
Kannað hvort lög hafi verið brotin
Ríkissaksóknara kannar nú hvort einhverjir kunni að hafa brotið lög þegar Jón Gerald Sullenberger kom í Landsbanka Íslands í ágúst 2006 með 30 milljarða króna ríkisskuldabréf frá Venesúela en málið var ekki tilkynnt til lögreglu á sínum tíma. http://ruv.is/heim/frettir/innlendar/
1.2.2010 | 12:35
Ekki vinnufriður vegna ruglsins í stjórnarandstöðunni!
Menn ættu kannski að hugsa um, hversu mikinn vinnufrið ríkisstjórnin hafur fengið. Stjórnarandstaðan hefur gert allt til að tefja og eyðileggja mál í þinginu. Málþóf og allskyns rugl þingmanna X-D og Framsóknar hefur sýnt svo ekki verður um villst, að þingmenn þessara flokka gera sér enga grein fyrir, að nú er ekki venjulegir tímar. Ísland á mestu erfiðleikum, sem því hefur mætt á seinni tímum, vegna stjórnarstefnu 18 ára valdatíðar X-D. En þingmenn stjórnarandstöðunnar láta sem ekkert sé, engin kreppa, engir óvenjulegir tímar, stundar málþóf og allskyns rugl, sem mest þeir mega!
Má nefna sem dæmi Icesave-mylluna. Lítið er nú eftir af öllu talinu "Við borgum ekki. Við eigum ekki að borga. Við eigum að fara dómstólaleiðina. Norðmenn bjarga okkur." Indefence-hópur Framsóknarflokksins laug því að fólki, að Icesave gufaði upp, ef nógu margir skrifuðu undir áskorun til forsetans. Formenn stjórnarandstöðunnar hafa talað einsog Steingrímur J. hafi uppdiktað Icesave-myllunna af illmennsku einni og mannsvonsku. Sannleikurinn er sá, að Icesave er skilgetið afkvæmi grillgróðapungastefnu Sjálfstæðisflokksins, frjálshyggjunnar. Sem lýsir sér í eftirfarandi bulli: Græðgi er góð! Sjálfstæðismenn eru þannig fólk, að þeir vilja græða á daginn og grilla á kvöldin! Ekki veit ég, hvað stór hluti svokallaðra Sjálfstæðismanna samsama sig svona bulli! En þetta eru orð flokkshugmyndafræðingsins!
Mörg stórmál óleyst á ársafmæli stjórnar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 12:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.1.2010 | 23:22
Bjarni tekur snúning á Icesave-deiluna! Lóð á vogarskálar sáttar?
Hvað á Bjarni við með þessum orðum: ...allt það sem þeir hafa lagt fram? Hollendingar og Breta lögðu fram 1300 milljarða, þeir hafa viljað 750 milljarða til baka með vöxtum miðað við eftirstöðvar hverju sinni! Fóru þeir fram á alla upphæðina núna, þ.e. 1300 milljarða? Eða heldur Bjarni bara að það hafi alltaf verið þannig? Hvaða meining er í þessu útspili hans? Kannski vill hann ekki sátt stjórnar og minnihluta þingsins? Er þetta enn eitt "dauðaspil" hans í öllu samstöðutalinu?
http://dagskra.ruv.is/sjonvarpid/4497888/2010/01/30/5/
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 23:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.1.2010 | 16:23
Reglur sveigðar og beygðar, og lögin brotin.
Einhvernvegin hvarflar að manni, að menn hafi ekki tekið lög og reglur mjög alvarlega undanfarin ár. Að menn hafi leyft sér að fara sínu fram. Ýmislegt hafi fengið að viðgangast óátalið af hálfu endurskoðenda og skattstjóra landsins. Litið hafi verið á sumt sem smámál, sem ekki hafi verið vert að fetta fingur útí. Svona einsog hvern annan rófuþjófnað. Mál Ásbjörns hefði aldrei komið uppá yfirborðið, nema vegna (óþarfa?) spurninga blaðamanns.
Hvað eru mörg svona mál undir yfirborðinu?
Eru skattskýrslur fyrirtækja og eigenda þeirra ekki yfirfarnar? Eða ársreikningar fyrirtækjanna?
Eða telst svona nokkuð bara tittlingaskítur, sem óþarfi er að gera veður útaf?
Ólögleg arðgreiðsla Ásbjörns rannsökuð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.1.2010 | 02:59
Herra misskilinn! Þetta hlýtur að vera einhver misskilningur!
"Við höfum gleymt því að það eru tvær meginstoðir vestrænnar arfleifðar sem við erum stolt af. Annars vegar er það þróun hins frjálsa markaðar. Hins vegar er það þróun lýðræðis. Það sem ég gerði, þegar ég stóð frammi fyrir þessari ákvörðun, var að velja á milli fjármagnsins og lýðræðisins. Ég ákvað að fylgja lýðræðinu. ÓRG á CNN. (Eitthvað er mikið bogið við þessa röksemdarfærslu).
Ég leyfi mér að gera eftirfarandi athugasemdir: 1. Að þróun hins frjálsa markaðar sé önnur af meginstoðum vestrænnar arfleifðar! 2. Að þróun hins frjálsa markaðar sé eitthvað til að vera stoltur af!
Svipaðar efasemdir má hafa um þróun lýðræðisins!
30.1.2010 | 02:11
Bjarni Ben við ráðherrana í Haag: Icesave fari fyrir dóm ef þið haldið kröfum til streitu
Þetta kemur fram á vefsíðu Björns Bjarnasonar fyrrverandi dómsmálaráðherra í kvöld. Sjá skrif á Eyjunni: http://eyjan.is/blog/2010/01/30/bjarni-ben-vid-radherrana-i-haag-icesave-fari-fyrir-dom-ef-thid-haldid-krofum-til-streitu/
Sjálfstæðismenn virðast hafa þurrkað haustið 2008 útúr minni sínu. BB velur að muna ekki eftir minnisblaðinu fræga frá 11/10 08, samningnum við ESB 14/11 08 (sjá frétt frá 16/11 08) eða þingsályktuninni um ríkisábyrgð frá í desember 2008! Nei, í samræmi við eðli sitt velur hann skítkast útí þá stjórnmálamenn, sem tóku að sér að þrífa hér upp eftir 18 ára óstjórn X-D í efnahagsmálum! Ómerkilegri verða stjórnmálamenn ekki en Björn Bjarnasons! Burgeisabarnið Bjarni Ben talar að venju svo digurbarkalega, að efast má um veruleikatengsl hans. Ætli honum væri ekki nær að draga sig í hlé frá stjórnmálum. Nú þegar allt stefnir í að yfirvöld snúi sér að rannsókn á hinu meinta peningahvarfi úr Sjóvá; 10 Milljarðar+ munu hafa verið sogaðir úr fyrirtækinu af hinnu eðlu ætt Bjarna Ben, skv fréttum.
Og innan tíðar má reikna með, að ekki færri en 5 þingmenn Sjálfstæðisflokksins verði teknir til rannsóknar af Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra eða Sérstökum Saksóknara!
Að lokum um ferðina miklu: Enn eitt floppið á ferli lýðskrumaranna Bjarna og Sigmundar Davíðs. Ráðherrarnir, sá breski og sá hollenski, eru ekki fæddir í gær. Þeir vita uppá hár hver pólitísk staða drengjanna er, og reynsla. Sennilega átta þeir sig betur á Bjarna og Sigmundi, en þeir sjálfir. Halda Bjarni og Sigmundur að það dugi að tala digurbarkalega við sjóaða stjórnmálamenn? Einsog á flokksfundum? Og við íslenska blaðamenn? Bjarni og Sigmundur eiga ekkert undir sér. það gera allir sér ljóst, nema þeir sjálfir og auðsveipnustu flokksmenn þeirra! Þetta eru bara látalæti í pabbadrengnum Birni Bjarnasyni, þessi skrif hans um pabbadrengina ferðaglöðu!
Bjartsýnir eftir fund í Haag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 02:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2010 | 23:33
Ástir samlyndra flokkssbræðra! Þessir eru sko í sama liði!
"Mér til sárrar raunar eru til menn, sem kosið hafa að afflytja ræðu mína á flokksráðsfundinum sem einhvers konar ádeilu á Davíð Oddsson seðlabankastjóra. En sem betur fer er eindreginn stuðningur við Geir H. Haarde ekki andstaða við Davíð Oddsson. Þeir hafa verið samherjar í stjórnmálum, vinir og samverkamenn í nær fjörutíu ár. Það er þjóðinni mikil gæfa, að svo reyndur og hygginn forystumaður sem Davíð skuli hafa valist í stöðu seðlabankastjóra við þessar erfiðu aðstæður. Hann er eins og Geir hafinn yfir sérhagsmuni. Í frábærum sjónvarpsþætti síðastliðið þriðjudagskvöld skýrði Davíð út, hvað hefur gerst og hver leiðin út úr ógöngunum er. Þar nutu bestu kostir hans sín. Hann er ekki aðeins vígfimur, heldur manna úrræðabestur og kjarkaðastur, heilsteyptur og hreinskilinn. Svik eru ekki til í hans munni, eins og ég get borið vitni um eftir löng og góð kynni af honum. Þeir Geir og Davíð hafa staðið þétt saman síðustu daga og vikur og munu gera það áfram. Þeir hafa hvergi látið bilbug á sér finna.
Ef við njótum áfram forystu og starfskrafta þessara tveggja manna, er ég ekki í neinum vafa um, að okkur tekst að komast klakklaust úr aðsteðjandi erfiðleikum."
Mér er ekki grunlaust um að ýmsir sakni þessara tveggja höfðingja, sem Kjartan Gunnarsson mærir hér. En hvort jafnvægi kæmist á í sálarlífi hinna sömu, kæmust þeir til hinna opinberu valda á ný, efast ég um!
28.1.2010 | 18:21
Háttvirtur þingamaður, Ásbjörn Óttarsson!
Ég þakka þér fyrir! Þetta vekur með mér trú og von á framtíðina! Þetta sýnir, að þú hefur talsvert betri siðferðiskennd en formaður þinn, Bjarni Benediktsson, og reyndar margir fleiri þingmenn, sem ég hirði ekki um að nefna! En sem sagt, gott hjá þér!
Margir þingmenn þurfa nú að fara að huga að stöðu sinni! það er varla við hæfi, að þeir sitji á þingi meðan Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra og Sérstakur Saksóknari rannsaka mál þeim tengd. Einsog allt bendir til að sé í uppsiglingu. Ef allt er með felldu, það er að segja! Margur hefur reyndar efasemdir þar um!
Segir sig úr þingmannanefnd | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 18:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)