Færsluflokkur: Stjórnmál og samfélag

Skítt með endurreisn efnahagslífsins!

Trúverðugleiki aðstoðarbankastjórans eykst ekki við þessa yfirlýsingu.  Hann sat í SÍ þegar Ísland brunaði fram af brúninni 2008.  Og SÍ hafðist ekki að, heldur hellti olíu á eldinn, sem hann kveikti ásamt þáverandi ríkisstjórn, og ríkisstjórnum DO!

Við hrunið féll traust íslenska ríkisins enn meir en verið hafði.  Eina leiðin til að endurreisa traustið var að leita til AGS, því miður.  Meðan endurskoðun á efnahafsáætlunarinnar fer ekki fram, heldur seinkar og seinkar, dregst endurreisn efnahagslífsins til tjóns fyrir land og þjóð.  Atvinnuleysið eykst og verður langvinnara.  Kreppan dýpkar!  Og það bitnar fyrst og fremst á alþýðunni, launþegum og lífeyrisþegum!

Deila má um aðkomu AGS, en miðað við þá leið sem valin var, og núverandi ríkisstjórn ákvað að  fylgja áfram, var hún nauðsynleg.  Leiðin án AGS er líka fær, en þá verður að endurskoða allar áætlanir og sú leið er seinfarnari.  Miðað við stöðuna nú, töf á afgreiðslu Icesave og seinkun á endurskoðuninni, má segja, að sú áætlun sem valið var að fara eftir sé óvirk og engin raunveruleg áætlun virk!

Aðstoðarbankastjórinn gefur því íslenskum launþegum langt nef með þessum orðum sínum!


mbl.is Ekki þörf á AGS lánunum fyrr en á næsta ári
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýjar skýrslur daglega!

Mín tillaga til Sérstaks er, að hann opni sérstaka síðu, þar sem hann getur birt daglega allar skýrslur, sem verða til þann daginn.  Bara svo að þjóðin hafi eitthvað til að tala um og, það er enn mikilvægara, eitthvað til að hlæja , sbr. yfirheyrsluna yfir Þór Sigfússyni og félögum. 

Efni í fína revíu og farsa með endalausum misskilningi, heimsku og fávitahætti!


mbl.is Hafnar því að rannsóknargögnum sé lekið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skiptir þjóðaratkvæðagreiðsla á Íslandi sköpum fyrir heimsbyggðina?

Sýn okkar Íslendinga á okkur sjálf er oft í undarlegri kantinum.  Ef aðeins er litið til síðustu ára koma nokkur tilvik uppi hugann, þar sem þetta sýnir sig.

Fyrsta skal nefna stuðningsyfirlýsingu Davíðs Oddssonar við forseta Bandaríkjanna í beinni útsendingu, þegar sá síðari var að leggja í stríð við svokallaða hryðjuverkamenn í Írak:  You have our full support,Mr. President, sagði hann, og fréttaþulir Sky urðu ansi langleitir og örlítið furðu- og efasemdabros færðist yfir andlit þeirra. 

Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson fengu þá flugu í höfuðið að Sameinuðu þjóðirnar mættu ekki við því, að Ísland væri ekki í Öryggisráðinu.  Það kom svo í hlut Ingibjargar Sólrúnar að spandera 18 mánaða ferli sínum sem utanríkisráðherra í að agítera fyrir því og smala saman atkvæðum (milli þess sem hún ferðaðist um og laug til um efnahagsástandið á Íslandi).  Nær daglega sagði hún af því fréttir í fjölmiðlum, hversu vel gengi.  Þessi þjóðin og hin myndi örugglega kjósa "stóra" Ísland.  Ekki komumst við í Öryggisráðið og Sameinuðu Þjóðirnar eru enn starfandi!

Í hinu svokallaða góðæri trúðu flestir Íslendingar, að hér væri risið einhverskonar efnahagsundur, íslenska undrið!  Íslenskir fjármálamenn stæðu öðrum framar.  Talað var um íslenska viðskiptamótelið og hversu undrasnöggir Íslendingar væru að landa stórviðskiptum.  Svo hrundi efnahagsundrið og fjármálaséníin reyndust flestir fjárglæframenn, svindlarar og bófar!

Og nú trúa víst ýmsir því, að þjóðaratkvæðagreiðslan á laugardaginn muni skipta sköpum.  Ekki bara fyrir þjóðina!  Nei, líka fyrir gervalla heimsbyggðina!

 Og til að bæta gráu ofan á svart er rétt að segja frá því,að komið hefur í ljós að íslendingar eru nánast sambandslausir við alþjóðasamfélagið eftir allan bægslaganginn.  Utanríkisþjónustan hefur ekki unnið sín verk, sem eru að afla og viðhalda tengslum við umheiminn!


mbl.is Kann að frestast um viku
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Buchheit að spila með Sigmund?

Buchheit er snjall.  Hann segir við Sigmund það sem hann vill heyra!  Vonandi að Sigmundur Davíð fari að átta sig á því, að hann situr ekki í ríkisstjórn.  Alþingi fól ríkisstjórn að semja um málið.  Ekki einstökum þingmönnum. 
mbl.is Án samráðs við stjórnarandstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tíu manns sem spáðu fyrir um fjármálahrunið.

Nei, Davíð er ekki þar á meðal!

http://timesbusiness.typepad.com/money_weblog/2008/10/10-people-who-p.html


Eðlilegt!

Ritskoðunin tekur tímann sinn!
mbl.is Skýrslunni enn frestað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað varð um hinn pólitíska "level"? Og lagalegu fyrirvarana?

Bjarni Ben. og Sigmundur Davíð töluðu hátt og digurbarkalega um að færa þyrfti málið uppá hinn pólitíska level.  Nú virðist það allt gleymt!

Þeir töluðu líka, jafn digurbarkalega, um vafa á lagalegum skyldum og ábyrgð Íslendinga í málinu.  Nú er talað um breytingar á vaxtastigi, og fyrir hvað?  Hvað vilja Bretar og Hollendingar í staðinn?  Að fallið verði frá öllum lagalegum fyrirvörum um ábyrgð Íslendinga á Icesave? 

Á að fórna þeim?  Einsog hinum pólitíska level?

Sagt hefur verið, að tafir á afgreiðslu Icesave-svikamyllunnar kosti þjóðarbúið 50-75 Milljarða á mánuði vegna tafa á endurreisn efnahagslífsins!  Hvað eru það margir Milljarðar síðan 1. september?


mbl.is Skýrist á næstu klukkustundum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Misráðið kjaftablaður Viðskiptaráðs!

Ætli Viðskiptaráði væri ekki vænlegra að hafa hljótt um sig eftir það sem á undan er gengið!  Eftir öll Ráðin, sem leiddu meðal annars til Hrunsins.  Stjórnlaus kapítalismi var og er efstur á óskalista Viðskiptaráðs.  Eftir óráðum þess var endalaust hlaupið af fyrri ríkisstjórnum.  Ráð sem leiddu til stjórnleysisins, sem leiddi svo til Hrunsins! 
mbl.is Misráðin skattastefna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Siðlaus aðför á hendur öryrkjum og lífeyrisþegum. - Harkalegar innheimtuaðgerðir!‏

Siðlaus aðför á hendur öryrkjum og lífeyrisþegum. - Harkalegar innheimtuaðgerðir!‏ 
Sæl, vinsamlega komið eftirfarandi á framfæri við þá sem eiga um sárt að binda vegna niðurskurðar sem hart hefur bitnað á öryrkjum, lífeyrisþegum og aðstandendum þeirra eða þá sem vilja réttlæti og jöfnuð í samfélaginu.
 - Því miður er það svo að sjálfsvíg og vanlíðan tengjast óhjákvæmilega niðurskurði og harkalegum innheimtuagerðum sem fylgja of oft,  í kjölfarið.-
  • Mótmælastaða fyrir framan Tryggingastofnun, Laugavegi 114,  fimmtudaginn 18. febrúar kl. 14.30. -
  • (Skáhallt á móti). - Við sláum tvær flugur í einu höggi!
  • Mótmælastaða fyrir framan Intrum/Lögheimtuna Laugavegi 99, 18. febrúar kl. 15:15. -
Ólafía Ragnarsdóttir, Háttvirtur Formaður Aðgerðarhóps Háttvirtra Öryrkja.
Helga Björk Magnúsd. Grétudóttir, Aðgerðarhóp Háttvirtra Öryrkja.

Í lýðveldi lyginnar. Um dómstólaleiðina. Bjarni Ben. opnar sig! Já, nei, já, já, nei, nei?

Bjarni Ben. 10. ágúst 2009:   “Ef forsætisráðherra treystir sér ekki til að leiða málið með þessum hætti eða sé enginn vilji hjá viðmælendum okkar til að finna nýja og sanngjarna lausn með samningi sem tekur mið af efnahagslegri stöðu Íslands og tillit til málavaxta í heild sinni, þar með talið hins gallaða regluverks Evrópusambandsins og beitingar hryðjuverkalaga gegn Íslandi, verður einfaldlega að fá úr því skorið fyrir hlutlausum dómstóli hverjar lagalegu skuldbindingar okkar eru í raun."

***

136. löggjafarþing — 38. fundur,  28. nóv. 2008.
samningar um ábyrgð ríkissjóðs vegna innstæðna í útibúum íslenskra viðskiptabanka á EES-svæðinu.
177. mál
[01:38]
Hlusta - Horfa
Bjarni Benediktsson (S):

Virðulegi forseti. Mér sýnist að nú sé að ljúka umræðu um þessa þingsályktunartillögu og málið sé á leiðinni til utanríkismálanefndar til frekari skoðunar. Hér er óskað heimildar til þess að leiða til lykta samningaviðræður á grundvelli hinna sameiginlegu viðmiða sem liggja til grundvallar samningaviðræðum sem fara síðan af stað í kjölfarið. Þær voru, eins og fram hefur komið í umræðunni hér í dag og reyndar áður, grundvöllur fyrir því að greiða fyrir afgreiðslu lánsins frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.

Það er mjög áberandi hér í umræðunni að þátttakendur í henni telja sig sjá það fyrir eftir á að hægt hefði verið að fara aðrar og skynsamlegri leiðir sem hefðu verið líklegri til að valda íslenskum skattgreiðendum minni byrðum en sú leið sem málið hefur ratað í. Það er vísað til að mynda í lögfræðileg álit í því samhengi.

Ég held að það sé afskaplega mikil einföldun á þessu máli öllu saman að telja í raun og veru að það hafi verið valkostur fyrir íslensk stjórnvöld að standa stíf á lögfræðilegri túlkun og halda henni til streitu, jafnvel fyrir dómstólum, hvort sem það væri á alþjóðlegum vettvangi eða hér heima fyrir íslenskum dómstólum. Ef menn ætla að fara að taka þann slag verða menn líka að vera tilbúnir til að tapa því máli ef á það mundi reyna. Þeir sem tala fyrir því að þá leið hefði átt að velja eru auðvitað tilbúnir til að gera það eftir á vegna þess að þeir geta gefið sér það í umræðunni að við hefðum sigrað þá lagaþrætu. Það er fínt að gera það í dag vegna þess að það liggur fyrir að sú leið verður ekki farin, en eru þeir hinir sömu þá tilbúnir til að fallast á að við mundum taka herkostnaðinn af þeirri ákvörðun ef niðurstaðan yrði okkur í óhag? Það er alveg ljóst að sú leið sem valin var og sá farvegur sem málið er í núna mun alveg örugglega skila okkur hagstæðari niðurstöðu en við hefðum fengið með því að láta reyna á rétt okkar og ef við hefðum síðan mögulega tapað þeirri þrætu fyrir dómstólum. Það er alveg öruggt.

Þess utan er líka afar líklegt, eins og m.a. hefur komið fram í máli hæstv. utanríkisráðherra, að á meðan málið væri í slíkum farvegi hefðum við ekki fengið fyrirgreiðslu hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, það liggur fyrir, og auk þess eru verulegar líkur á því að Bretarnir hefðu ekki dregið úr aðgerðum sínum á grundvelli hryðjuverkalaganna eins og þeir hafa reyndar þegar gert þó að ekki hafi þeir látið af öllum aðgerðum sínum á grundvelli laganna, þ.e. enn þá eru eignir Landsbankans kyrrsettar í Bretlandi. Þar til viðbótar má leiða líkum að því að á vettvangi samstarfsins um Evrópska efnahagssvæðið hafi verið látið reyna á það hvort hægt hefði verið að hindra eða stöðva eða þvælast fyrir með einhverjum hætti frjálsum viðskiptum okkar inn á svæðið á grundvelli öryggishagsmuna. Allt eru þetta atriði sem þarf að taka með í reikninginn þegar menn eru að gera upp á milli þeirra valkosta sem við stóðum frammi fyrir í þessu máli.

Enn þá hefur engu verið lokað og ég hef ekki heyrt í sjálfu sér í umræðunni í dag mikla gagnrýni á hin sameiginlegu viðmið vegna þess að þau eru tiltölulega opin, það er hægt að fella meira eða minna allt það sem nefnt er hér í umræðunni í dag undir orðalagið í þessum sameiginlegu viðmiðum, þ.e. að fullt tillit verði tekið til þeirra efnahagslegu erfiðleika sem eru hér á landi og jafnframt að okkur verði gert kleift að endurreisa hér fjármálakerfið. Hugmyndir sem fram koma í umræðunni í dag um að við þurfum að setja þak á mögulegar árlegar greiðslur okkar til endurgreiðslu á lánum sem taka þarf til að standa undir þessum skuldbindingum rúmast alveg innan þessa orðalags sem er að finna í sameiginlegu viðmiðunum. Hið sama gildir um það að vera með sérstaklega langan lánstíma eða reyna að koma inn samkomulagi í þessu sambandi um mögulega endurskoðun á kerfinu.

Það er auðvitað alveg augljóst, bæði af því sem kommissjónin hefur sagt nú þegar, þ.e. framkvæmdastjórn Evrópusambandsins — þeir eru nú þegar komnir fram með tillögur um að breyta innstæðutryggingarkerfinu í Evrópusambandinu, hækka tryggingarnar verulega, taka úr sambandi það sem maður getur kannski kallað ákveðna sjálfsábyrgð og ná fram meiri einsleitni í kerfinu á öllu svæðinu. Einnig hefur komið fram mjög rík gagnrýni frá breska fjármálaráðherranum, Alistair Darling, þar sem hann gagnrýnir það að bresk stjórnvöld og þar af leiðandi breskir skattgreiðendur þurfi að sitja uppi með kostnaðinn af því að tryggja innstæður vegna dótturfélaga erlendra banka sem starfa með dótturfélög í Bretlandi. Það er mikil óánægja með þetta.

Við skulum hafa í huga í þessari umræðu að íslensku bankarnir störfuðu ekki eingöngu í gegnum útibú á erlendum vettvangi. Sumir íslensku bankanna sóttu innlán í gegnum dótturfélög. Hvað hefur gerst í tilfellum þessara dótturfélaga? Það hefur lent á innstæðutryggingarsjóðum í Sviss, í Bretlandi, í Þýskalandi og víðar þar sem íslensku bankarnir störfuðu, það hefur lent á ríkisstjórnunum í viðkomandi löndum að fjármagna innstæður tryggingarsjóðanna til að þeir gætu staðið undir endurgreiðslu lágmarkstryggingarinnar þar. Hún hefur ekkert alltaf verið 20.000 evrur, í sumum tilfellum miklu hærri upphæð. Þær ríkisstjórnir sem við höfum verið í viðræðum við hafa tekið á sig gríðarlega miklar skuldbindingar og örugglega í einhverjum tilvikum skuldsett sig til að geta risið undir endurgreiðslum út af innstæðum til dótturfélaga íslensku bankanna. Þetta held ég að menn þurfi að hafa í huga í þessari umræðu, vandanum er ekki að öllu leyti velt hingað heim vegna þessa kerfis.

Þegar heildarmyndin er skoðuð tel ég að ekki sé hægt að komast að annarri niðurstöðu en að vel hafi verið haldið á íslenskum hagsmunum í þessu máli. Sannarlega hefur verið í mörg horn að líta, það hefur verið úr mjög vöndu að ráða, hagsmunum hefur verið þvælt saman. Auðvitað erum við ósátt við það og höfum kvartað undan því opinberlega, og það er að mínu áliti starfsemi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins til minnkunar að lánsbeiðni okkar þar skyldi hálfpartinn hafa verið tekin í gíslingu vegna óskyldra mála. Það finnst mér til minnkunar fyrir sjóðinn og það sem hann stendur fyrir, og ekki síst á það við vegna þess ástands sem hér ríkti og það var til mikils tjóns fyrir okkur að málið skyldi dragast svo vikum skipti vegna þessa.

Ég held að það sé augljóst að í framtíðinni muni Evrópusambandið, ekki bara vegna þeirra tillagna sem nú þegar eru komnar fram heldur vegna þess augljósa galla sem er á innstæðutryggingarkerfinu, taka það til gagngerrar endurskoðunar. Þess vegna er skynsamlegt fyrir okkur að halda öllum fyrirvörum varðandi réttarstöðu okkar þegar til slíkrar endurskoðunar kemur í framtíðinni. Eina vitræna leiðin fyrir Evrópusambandið og þar með allt Evrópska efnahagssvæðið er að tengja innstæðutryggingarsjóðina saman vegna þess að þegar það hefur verið gert er fall þriggja til fjögurra banka, þó að þeir séu allir í sama landinu, ekkert vandamál fyrir kerfið í heild sinni. Þetta er 500 milljóna svæði sem getur vel greitt úr slíku en einstök ríki geta ekki risið undir hruni bankakerfisins."

***
137. löggjafarþing — 55. fundur,  20. ág. 2009.
ríkisábyrgð á lántöku Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta.
136. mál
[15:10]
Hlusta - Horfa
Bjarni Benediktsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Í fyrsta lagi um dómstólaleiðina. Ég tel að við höfum enn ekki gefið frá okkur þann rétt að leita dómstólaleiðarinnar í málinu. Ég er þeirrar skoðunar að ef Bretar og Hollendingar ætla að þráast við og vilji ekki hlusta á skilaboð þingsins, ef á að setja okkur pólitíska afarkosti í þessu máli þá eigum við einfaldlega að segja við viðkomandi ríki: Við skulum leggja þetta mál fyrir hlutlausan þriðja aðila. Það er okkar tilboð fyrst ekki á að standa við hin sameiginlegu viðmið. Alveg tvímælalaust eigum við að fara dómstólaleiðina ef aðrir samningar standa ekki til boða en þeir sem ríkisstjórnin gekk frá og lagði til við þingið að samþykkja.

Varðandi kæru á beitingu hryðjuverkalaganna þá er rétt að ákveðinn frestur rann út fyrir íslenska ríkið til að kæra þá stjórnsýsluákvörðun og fyrrverandi forsætisráðherra gerði ítarlega grein fyrir þeirri niðurstöðu þingsins í þingsal á fyrra þingi. Ég ætla ekki að endurtaka það sem þar kom fram en sú ákvörðun ríkisstjórnar þess tíma byggði á lögfræðilegri ráðgjöf. En það eru enn uppi allir möguleikar fyrir skilanefnd Landsbankans til að fara í dómsmál vegna beitingar hryðjuverkalaganna og ég tel að skilanefnd Landsbankans eigi að gera það.

Um það að ekki hafi verið lofað ábyrgð og vísað var í samkomulagið við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, þá vil ég leyfa mér að lesa upp úr áliti 1. minni hluta fjárlaganefndar. Þar er einmitt rakið hvað segir í þessu samkomulagi, með leyfi forseta:

„Íslendingar hyggjast virða allar lagalega réttarlagalegar skyldur sínar. Sé ekki samkomulag um það hverjar þær séu sé réttast að vísa slíkum ágreiningi til dómstóla eins og fram hefur komið á öðrum vettvangi.“

Þetta sagði í samkomulaginu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og sá sem heldur því fram að við höfum lofað ríkisábyrgð á þessum skuldbindingum vinsamlegast komi fram með þá yfirlýsingu." 


 



« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband