31.1.2009 | 21:26
Auðmenn Íslands bjóða sig fram til áframhaldandi valda !

![]() |
Bjarni staðfestir framboð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.1.2009 | 16:52
Sómi moggabloggsins. Óhróður látinn óáreittur. Í þágu Flokksins?
"Allt bendir nú til þess að ný ríkisstjórn á Íslandi hafi eina alveg pottþétta áætlun, sem hrint verður í framkvæmd innan skamms: Áframhald helfararinnar. (skýr. Gyðinga).
Ekki er við öðru að búast í landi, þar sem hægt er að brjóta hegningarlög með því að ráðast á gyðinga, eða þar sem Hamas-talsmönnum er leyft að halda því fram ÓÁREITT, að það hafi ávallt verið ásetningur Ísraelsmanna að útrýma Palestínumönnum. Á Íslandi er hægt að svívirða trú og uppruna gyðinga án þess að yfirvöld geri nokkuð í málinu. Moggabloggið má nú eiga það, að það hefur verið að reyna að vinsa út verstu hatursbullurnar, en það er mikið verk, enda margar slíkar til." postdoc
Í þessari bloggfærslu sinni leggur, Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, stjórnmálaslit að jöfnu við Helförina. Það er náttúruleg helvítis lítilsvirðing við minningu fórnarlamba helfararinnar. Reyndar eru skrif hans um Ísraelsríki móðgun við þær manneskjur sem léti lífið í helför þýsku þjóðarinnar gegn umheiminum!
"Amma mín dó ekki til að skaffa ísraelskum hermönnum skálkaskjól til að drepa palestínskar ömmur" sagði breski Gyðingurinn og þingmaðurinn Gerald Kaufmann á minningardegi helfararinnar!
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.1.2009 | 16:32
Fyrirsögn Moggans í engu samræmi við innihald fréttarinnar!
![]() |
Samfylking beitti klækjabrögðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.1.2009 | 16:27
Mistök fyrri ríkisstjórnar voru af óþekktri stærðargráðu! Nú á fyrri ríkisstjórn að halda sig til hlés og gera siðferðileg reikniskil!
Geir segir glapræði að kjósa í vor
Það væri mikið glapræði" að efna til kosninga nú, að mati Geirs H. Haarde forsætisráðherra. Þingflokkur Sjálfstæðisflokksins fundaði í Valhöll í gær. Að sögn Geirs var um hefðbundinn þingflokksfund að ræða en ekki viðbrögð við atburðum síðustu daga. Við erum að vinna okkar störf eins og gert er ráð fyrir."Spurður hvort ríkisstjórnarsamstarfið væri í hættu sagði Geir svo ekki vera, það hefðu þau Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, formaður Samfylkingarinnar, staðfest í samtali fyrr um daginn.
Geir telur það ábyrgðarleysi að boða til kosninga eins og sakir standa. Það væri gríðarlegt ólán fyrir allan almenning í landinu, fyrir þá sem hugsanlega eru að missa vinnuna, fyrirtækin sem eru að berjast í bökkum, því það væri ekki hægt að klára stóru málin sem snúa að bönkunum, erlendum lánardrottnum og öllum þeim verkefnum sem fram undan eru. Að hlaupa frá því núna til að kalla á kosningar í vor væri mikið glapræði."
Um mótmælin í gær og í fyrradag sagði Geir að hann teldi ekki ástæðu til að grípa til sérstakra aðgerða til að koma á ró; fólk hafi fullan rétt á að mótmæla, en brjóti fólk af sér sjái lögreglan um það. Lögreglan hefur staðið sig afar vel í þessum erfiðu aðstæðum, sýnt mikla þolinmæði og stjórnvisku, finnst mér, og við vonum að hún haldi áfram að ráða við sín verkefni."
Geir gerir lítið úr áhrifum mótmælanna á störf Alþingis; þingið hafi haldið sínu striki á þriðjudag og fundað meðan ástæða þótti til. Fundi hafi hins vegar verið frestað í gær til þess að geta betur undirbúið umræðu um efnahagsmál í dag. Landsfundur Sjálfstæðisflokksins verður haldinn um aðra helgi. Geir segir það óbreytt að hann ætli að gefa kost á sér í formannsembætti. Hann hefur ekki áhyggjur af því að mótmælendur setji strik í reikninginn. Við vitum ekkert hvernig það verður. Ég held að það þurfi allir að reyna að róa sig niður í þessum efnum. Þó að fólk hafi fullan rétt á því að mótmæla þá er það ekki við hæfi að gera aðsúg að valdastofnunum samfélagsins eins og gert hefur verið
![]() |
Þreifingar milli flokkanna byrjuðu fyrir löngu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt 1.2.2009 kl. 17:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.1.2009 | 16:17
Kosningaáróður ríkisvædda Moggans. Tekur tíma að setja saman aðgerðir til að leiðrétta mistök fyrri stjórnar. Mistökin voru af óþekktri stærðargráður!
Morgunblaðið hefur kostað ríkisbankann Glitni 150 milljónir á mánuði nú um nokkurt skeið. Á endanum lendir þessir konaður á ríkissjóði=skattgreiðendum! Nú eru stuðningsmenn sjálfgræðisflokksins að reyna að semja um niðurfellingu skulda, meðal annars niðurfellinga skulda Moggans við ríkisbankann. Og þeir ganga lengra. Þeir eru að reyna að véla almenning til að leggja fram sparifé sitt sem hlutafé í bankanum. Það er ástæða til að vara almenning við að leggja sparnað sinn í fyrirtæki sem hefur verið rekið með 150 milljóna króna tapi á mánuði og telja má vonlaust að reka öðruvísi en með halla!
Nú er það spurning, hvort það geti talist siðlegt að Mogginn reki áróður fyrir sjálfgræðisflokkinn undir þessum kringumstæðum?
![]() |
Ósætti um aðgerðirnar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.1.2009 | 15:59
Ríkisvæddur Moggi með kosningaáróður fyrir Dé-listann!
Rekstur Morgunblaðsins hefur kostað ríkisbankann Glitni 150 milljónir á mánuði nú um nokkurt skeið. Á endanum lendir þessir kosnaður á ríkissjóði=skattgreiðendum! Nú eru stuðningsmenn sjálfgræðisflokksins að reyna að semja um niðurfellingu skulda, meðal annars niðurfellinga skulda Moggans við ríkisbankann. Og þeir ganga lengra. Þeir eru að reyna að véla almenning til að leggja fram sparifé sitt sem hlutafé í bankanum. Það er ástæða til að vara almenning við að leggja sparnað sinn í fyrirtæki sem hefur verið rekið með 150 milljóna króna tapi á mánuði og telja má vonlaust að reka öðruvísi en með halla!
Nú er það spurning, hvort það geti talist siðlegt að Mogginn reki áróður fyrir sjálfgræðisflokkinn undir þessum kringumstæðum?
![]() |
„Sjálfstraust í litlu hófi“ |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 16:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
31.1.2009 | 13:14
Kærleikssiðfræði eða lögmálssiðfræði?
Hvað oft frelsarinn sniðgekk þær reglur og þau lögmál sem ríktu í samfélagi Gyðinga á hans tíma vitum við ekki, en um nokkur slík dæmi má lesa í Guðspjöllunum. Þetta gerði hann til að undirstrika boðskap sinn. Mér er alveg óskiljanlegt, að við kristnir eigum að lifa í skugga lögmáls Gyðinga. Ætli færi þá ekki að fara um marga. Á að lífláta fólk í samræmi við lögmálið, þar sem það á við samkvæmt lögmálinu? Eiga konur að þola að undirgangast þær reglur, og framkomu, sem viðhafðar voru skv. Gamla Testamentinu? Eða eigum við að týna til eitthvað sem hentar okkur í það og það skiptið? Má nefna afstöðina til mála eins og stofnfrumurannsókna, afstöðuna til samkynhneigðra, prestsþjónustu kvenna o.s.frv. Kannski má eiga von á sömu afstöðu til þeirra sem uppvísir verða af hórdómi, til réttinda kvenna, til mágaskyldunnar, til sjúkra og fatlaðra (þeir eru taldir syndarar, þessvegna eru þeir sjúkir eða fatlaðir). Sjálfsagt mætti halda áfram til eilífðarnóns, en mig brestur þekkingu til að telja upp allar þær reglur og lög sem gamla lögmálið býður mönnum að búa við. Mér skilst að lögmálsþrælkunin leggi á menn að fylgja nær 600 reglum og lögum í sínu daglega lífi, og þá er ekki verið að tala um mannanna lög, heldur lög og afleiddar reglur gamla lögmálsins. Kristnir lögmálsdýrkendur leggja mikla áherslu á gamla lögmálið, en virðast gleyma nýja lögmálinu sem Jesú færði okkur, að minnsta kosti er þeim ekki jafn tíðrætt um það sumum. "Kjarni kenningarinnar um guðsríkið, að það væri komið í Jesú og með honum, varð til þess að Jesú hafnaði lögmáli gyðinga, eða uppfyllti það eins og hann sjálfur sagði.......Eina boðorðið sem einhverju skipti að dómi Jesú, var að elska guð og náungann eins og sjálfan sig, hið tvöfalda kærleiksboðorð. Í stað lögmálssiðfræði kom kærleikssiðfræði. Áður hafði maðurinn þurft að fylgja lögmáli til að frelsast. Nú skyldi kærleikurinn settur í öndvegi" (Þórhallur Heimisson, Hin mörgu andlit trúarbragðanna).
Hatur vekur illdeilur, en kærleikurinn breiðir yfir alla bresti. Viska er á vörum hyggins manns, en á baki hins óvitra hvín vöndurinn. (Orðkviðirnir 10, 12-13). Þó ekki vöndur lögmálsins eða hvað?
31.1.2009 | 12:02
Ríkisvæddur Moggi í kosningabaráttu?
Morgunblaðið hefur kostað ríkisbankann Glitni 150 milljónir á mánuði nú um nokkurt skeið. Á endanum lendir þessir konaður á ríkissjóði=skattgreiðendum! Nú eru stuðningsmenn sjálfgræðisflokksins að reyna að semja um niðurfellingu skulda, meðal annars niðurfellinga skulda Moggans við ríkisbankann. Og þeir ganga lengra. Þeir eru að reyna að véla almenning til að leggja fram sparifé sitt sem hlutafé í bankanum. Það er ástæða til að vara almenning við að leggja sparnað sinn í fyrirtæki sem hefur verið rekið með 150 milljóna króna tapi á mánuði og telja má vonlaust að reka öðruvísi en með halla!
Nú er það spurning, hvort það geti talist siðlegt að Mogginn reki áróður fyrir sjálfgræðisflokkinn undir þessum kringumstæðum?
![]() |
Dýr kosningabarátta er ekki í spilunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
30.1.2009 | 11:41
Yfirkvalarinn í Guantanamo á Íslandi í boði Ingibjargar Sólrúnar!

30.1.2009 | 10:09
Skattamálaumræða Sjálfstæðismanna: Skrattinn hvítþvær sjálfan sig!
Þessi ræða úr alþingi frá 1980 er fróðleg lesning. Þegar maður les pistla délistamanna um skatta mál í dag og núning þeirra útí andstæðinga og fullyrðingar um að þessi eða hinn sé eyðslukló og vilji hækka skatta. Eitthvað myndi Lárus Jónsson segja um framistöðu sinna manna í skattamálum. Hann fárast yfir að skattar til ríksins séu að verða 29% af vergri landsframleiðslu. Hvað er prósentan komin í nú eftir 18 ára samfelda setu sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn. Jú hún er komin langt uppfyrir 40%. Hverjir hafa staðið að mestu skattahækkunum Íslandssögunnar. Jú, sjálfstæðismenn. Og vinsamlega sleppið þessum tuggum ykkar um skatta og skattahækkanir. Og að þessi eða hinn muni hækka skatt eða eyða skattpeningunum. Lítið í eigin barm kæru óvinir þjóðarinnar í sjálfstæðisflokksins. Það er kominn tími til! Þið eigið að skammast ykkar og halda kjafti, svo ég vitni í virta blaðamann á ríkismogganum!
"Frsm. 2. minni hl. (Lárus Jónsson): Herra forseti. Hæstv. viðskrh. hélt hér mikla ræðu fyrir hvítasunnu um skattamál. Hann lagði ekkert minna undir en öll OECD-löndin og næstum hálfa heimsbyggðina og fór mörgum orðum um það, hversu skattheimta væri lítil á Íslandi í hlutfalli við það sem hún væri í öðrum löndum. Hæstv. ráðh. las hér upp úr nýútkominni skýrslu frá OECD tölur um það sem heitir á enskunni current expenditure" í prósentum af national product". Þetta er nú, svona til upplýsingar fyrir hæstv. ráðh., ekki alveg réttar tölur um það hvað skattheimta er mikil í þessum löndum. (Gripið fram í.) Það er ekki það sem skiptir máli, hæstv. ráðh. Þetta eru opinber heildarútgjöld og er þar náttúrlega um að ræða líka það sem viðkomandi ríki tekur að láni til að framkvæma fyrir. Hins vegar eru hér tölur um skatta. Þær eru allmiklu lægri en þær tölur sem hæstv. ráðh. las. En það skiptir kannske máli í þessu sambandi, að þessar tölur segja ekki nema hálfan sannleikann. Ég get ekki alveg fullyrt það, en ég held að þessar tölur séu bæði um ríki og sveitarfélög, um heildarútgjöld opinberra aðila og heildarskattlagningu opinberra aðila í þessum löndum.
En það, sem ég vildi gera hér að umræðuefni, og ég skal ekki lengja þetta mál, er sú þróun sem orðið hefur hér á landi að undanförnu í þessum efnum. Hæstv. ráðh. nefndi að nú væru skattar til ríkisins sem hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu 28.3% samkv. gildandi fjárlögum. Rétt er að undirstrika að hér er um að ræða áætlunartölu sem á eftir að breytast. Reynslan sýnir að þegar fjárlög eru gerð upp á þann hátt sem þau hafa verið gerð núna hækkar þessi tala þegar upp er staðið. Það er, held ég, flestra manna mál, sem gleggst þekkja til þessara mála, að skattar til ríkisins í ár verði sem hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu nálægt 29%. Reynslan hefur orðið sú að undanförnu, að það er hægt að gera fremur ráð fyrir því en að hin talan standist, 28,3%.
Það er athyglisvert að gera sér grein fyrir því, hver þróunin í þessum efnum hefur orðið á undanförnum árum. Hér er sem sagt um að ræða langhæsta hlutfall sem þekkst hefur hér á landi. Árið 1961 var þetta hlutfall t. d. 20.6%, en er orðið núna tæplega 29%, þ. e. ríkisskattar af þjóðarframleiðslu. Á þeim áratug, sem liðinn er og hefur stundum verið kallaður framsóknaráratugurinn --- ekki veit ég af hverju, --- var þetta hlutfall lægst 1977, 25%, en er á þessu ári (1980) að nálgast 29%. Þetta kunna kannske ekki að þykja mjög háar tölur eða mikil hækkun, en 4% aukning skatta af þjóðarframleiðslu síðan 1977 þýðir hvorki meira né minna en 50 milljarða kr. Þjóðarframleiðslan er í ár metin á 1240 milljarða og 4% af því eru um 50 milljarðar kr. Hæstv. ráðh., bæði sem núv. viðskhr. og fyrrv. fjmrh., hefur því verið iðinn við kolann í þeim efnum, að þoka skattheimtu í þá átt að hún er nú hærri en hún hefur verið á undanförnum tveimur áratugum. "
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 10:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.1.2009 | 09:10
Ný framsókn eða gömul framsókn? Leiðir framsókn Dé-listann til valda á ný? Og hvenær?
30.1.2009 | 00:26
ZERO FRAMSÓKN! EKKERT HEFUR BREYST. ZERO!
29.1.2009 | 23:14
Kosning Sigmundar í ljósi dagsins í dag. Er Sigmundur hlaupatík flokkseigendafélagsins?
Átök á fjölmennum fundi framsóknarmanna. Stuðningsmenn Sigmundar með fjölda nýrra félaga
Mikil átök hafa orðið í kvöld á sameiginlegum félagsfundi Framsóknarfélags Reykjavíkur og Félags framsóknarkvenna, þar sem verið er að velja fulltrúa Reykvíkinga á þing Framsóknarflokksins 16. til 18. janúar næstkomandi. Fundurinn var boðaður í húsakynnum flokksins á Hverfisgötu en vegna mikillar þátttöku varð að flytja hann yfir í Þjóðleikhúskjallarann þar sem hann stendur enn yfir.
Helsta mál flokksþingsins verður kjör nýs formanns.
Þótt samþykktir flokksins banni að smalað sé á fundi þar sem kosið er til flokksþings virðist sem stuðningsmenn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar hafi mætt óvenju öflugir til leiks og komið keppinautum hans um formannsembættið á óvart. Rétt áður en flokksskrifstofan lokaði síðdegis mun Stefán Þór Björnsson, starfsmaður Fjármálaeftirlitsins, sem sagður er reyndur kosningasmali, hafa lagt fram inntökubeiðni 68 nýrra félaga, þar af á fjórða tug útlendinga.
Fullyrt var á fundinum í kvöld að sumir þessara útlendinga hefðu hvorki íslenska kennitölu né lögheimili hérlendis.
Stuðningsmenn Sigmundar undir forystu Kolbrúnar Ólafsdóttur, fyrrverandi aðstoðarmanns Sivjar Friðleifsdóttur, settu fram þá kröfu á fundinum, að nýju félagarnir fengju kosningarétt á fundinum.
Laganefnd félagsins tók málið fyrir og samþykkti að allir hinir nýju flokksfélagar fengju atkvæðisrétt.
Svo virðist sem stuðningsmenn Sigmundar geti ráðið mestu um það hverjir verða valdir á flokksþingið. Hafa þeir lagt fram sjálfstæða tillögu þess efnis, sem er önnur en fyrirliggjandi tillaga stjórna framsóknarfélaganna.
Heitar umræður hafa verið á fundinum og mikil spenna í lofti.
Gert hefur verið fundarhlé og voru menn að ráða ráðum sínum þegar síðast fréttist.
Viðbót:
Um miðnætti fréttist að setja ætti á fót fimm manna nefnd til gera tillögu um fulltrúa framsóknarfélaganna á flokksþingið.
29.1.2009 | 22:46
Það er ljótt að stela!
Það fer að verða öllum ljóst að Sigmundur Davíð er slægur og varasamur í samskiptum. Áður, en hann komst í þá pólitísku aðstöðu, sem hann nú er í, virtist hann heiðarlegur, opinn og hreinskiptinn. Í viðtölum í dag og í gær er hann farinn að minna á höggorm, sem reynir að tæla fórnarlamb sitt í færi við eiturbit sitt. Slægðin skín í gegnum undanbrögðin, og það, sem Sigmundur virðist teljast klókt útspil, lítur frekar út fyrir að vera undirbúningur að banvænu biti.
Útspil Framsóknar í dag, kjördag fyrir apríl lok og krafan um stjórnlagaþingið, er eftirákrafa, sem lyktar af tilraun til að finna út, hversu langt hann getur komist með SF. Spurning, hvort Sigmundur er að reyna að koma á erfiðleikum milli Vg og SF. Hann stelur kjördagshugmyndinni frá Vg og frumvarpinu frá Jóhönnu, sem lagði nánast samskonar fumvarp um stjórnlagaþing fram 1996. Eftir því sem ég best veit var SF sátt við 9. maí. Haldlagning eigna auðmanna er svo mál sem Sigmundur virðist ekki vilja snert á með töngum, hvað þá meir. Eru auðmennirnir á bak við Framsókn farnir að kippa í taumana. Finnur Ingólfsson og einkum Ólafur Ólafsson koma uppí hugann. Finnur er að sumum álitinn valdamesti maður Framsóknar að Alfreð don Fredo undanskildum. Þessir menn sleppa ekki taumunum þó nýr formaður setjist í stólinn!
Óttast Sigmundur Davíð grasrótarhreyfingarnar? Neyðarstjórn kvenna undirbýr framboð. Samtök sem berjast fyrir endurreisn lýðræðisins undirbúa framboð. Því er grunsamlegt, að vilja endilega flýta kosningum sem mest. Einnig kemur það Sjálfstæðisflokknum illa að kjósa snemma. Vegna landsfundar, undirbúnings framboðslista og, að ógleymdu, formannskjörinu. Óttast Sigmundur að Sjálfstæðisflokkurinn nái vopnum sínum?
Það er að mínu mati mótsögn fólgin í því að vilja flýta kjördegi og að segjast vilja endurreisa lýðræðið með nýrri stjórnarskrá. Það virðist alla vega ekki sýna mikla lýðræðisást að vilja bregða fæti fyrir framboð grasrótarhreyfinganna. Eða að gera öðrum flokkum erfiðara fyrir í eðlilegri vinnu við að takast á við framtíð sína. Minnir meira á gamlar aðferðir stjórnmálastéttarinnar í pókerspil sínu um völdin! Og lítið á endurnýjun í stjórnmálum, sem Framsókn þykist nú vera fulltrúi fyrir! Ég tek fram, að ég hef litla sem enga samúð með Sjálfstæðisflokknum, en því meiri með grasrótarhreyfingunum . Ég á ekki hlut að máli í þessum hreyfingum eða flokkum. En á tímum sem þessum þurfum við síst á því að halda að notaðar séu aðferðir sem vekja togstreitu og úlfúð. Við þurfum hreinskiptni og heiðarleika. Skýr svör og skýran vilja. Ekki undirhyggju.
Ég legg til að allar stjórnmálaheyfingar, sem hyggjast bjóða fram í vor, líka grasrótin, setjist niður og semju um kjördag með ofangreint í huga. Hreinskiptni og heiðarleika. Skýr svör og skýran vilja. Fyrir framtíðina og lýðræðið.
![]() |
Ekki óskaríkisstjórn Sigmundar Davíðs |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 22:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
International Holocaust Remembrance Day 2009
How does the city sit solitary, that was full of people! How is she become as a widow!...
She weeps sore into the night, and her tears are on her cheeks:
among all who loved her she has none to comfort her.
(Book of Lamentations)
Last week, after murdering 1400 people - of whom 400 were children - after bombing hospitals and mosques, schools, universities and humanitarian supplies, and tens of thousand of homes, Israel declared a cease-fire. A shameful parade of European leaders immediately went to Jerusalem to embrace the mass murderers and to pledge their support for the continuing siege of Gaza.
The primary purpose of this massacre was to break the spirit of the Palestinian people until they surrender and accept their fate as lesser human beings. As former Chief of Staff Moshe Yaalon said in 2002, "The Palestinians must be made to understand in the deepest recesses of their consciousness that they are a defeated people." European leaders support this goal, as did previous U.S. administrations, as do the ruling elites of Egypt, Jordan and Saudi-Arabia, despite the fury of their peoples. We wait to see if the freshly inaugurated Obama Administration will break with sixty long years of attack on the Palestinian people armed and financed by the U.S. and Europe.
We grieve with the people of Gaza. We see the faces of the children, of the women and the men; we hear their voices. We also hear the silence of the leaders of Western countries, intermittently broken by evasive platitudes. And we are reminded of the time when the world turned a blind eye while our forebears, our families, were slaughtered.
100,000 Palestinians were made homeless in Gaza this month. Most of them became refugees in 1948 when they were expelled at gunpoint from their towns and villages. Now they are homeless again, even in their land of exile, and at risk of being driven out from Palestine altogether.
Yet on January 27, Holocaust Remembrance Day, the leaders of the U.S. and Europe will be joined in honoring the memory of our dead. Even as we seek to remember and to honor the immensity of that loss, we struggle to find words to convey the hypocrisy of these ceremonies, in which those who are silent today pay homage to the victims of yesterday's silence.
The radical Jewish writer Walter Benjamin, who died while fleeing the Nazis, wrote, "not even the dead will be safe from the enemy, if he is victorious. And this enemy has not ceased to be victorious." The Third Reich was defeated, and yet, "the enemy has not ceased to be victorious." Racism, mass murder, and genocide continue to be accepted tools of statecraft. Even our dead are not safe. They have been called up, disturbed, dredged from their mass graves and forced to testify against their fellow human beings in pain, to confess a hatred that was alien to them and to offer themselves up as justification for a new cycle of suffering in Palestine. Their ghosts have been enlisted to help displace fellow Jews from Arab homelands, and to bequeath to them that same alien hatred, conscripting those of us descending from Arab lands to become enemies of our own memory and past.
The Jewish British MP Gerald Kaufman spoke in anguish while the massacres in Gaza were taking place: "My grandmother did not die to provide cover for Israeli soldiers murdering Palestinian grandmothers in Gaza." We share and echo that refusal. Let not the memory of Jews murdered by the Nazi regime serve as cover for the attempted destruction of the Palestinian people!
Although the guns are relatively silent, this genocidal assault on the Palestinian people isn't over. The siege, the lack of food and fresh water, the disease-threatening broken sewage system, and economic collapse and humanitarian crisis persist in Gaza with the full support of the U.S., Europe and the Egyptian government. As the siege of Gaza continues, so does the slow ethnic cleansing of the West Bank and East Jerusalem, the home demolitions, the building of the apartheid wall, the settlement build-up, the economic devastation of the towns and villages strangled by checkpoints, the assault on Palestinian neighborhoods in Jaffa, Akka, Lydda, the Galilee and the Negev, the mass imprisonment of Palestinians (over 11,000), and all the large and small ways by which Israel is seeking to crush the spirit and erase the presence of the Palestinian people in their homeland.
Faced with the threat of annihilation in Europe, Jews resisted. From ghettos to concentration camps and within countries under occupation, Jews led resistance to the Nazi regime. Today, from the ghetto of Gaza to the Bantustans of the West Bank and from the neighborhoods of Jaffa and Akka to cities across the globe, Palestinians resist Israel's attempt to destroy them as a people. On January 27th, honoring the memory of our dead is for us inseparable from honoring more than sixty years of Palestinian survival and resistance. Only when the Palestinian people regain their freedom will the dead rest safely. Then we will all celebrate another victory for life.
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 21:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2009 | 15:30
"Áframhald helfararinnar."
28.1.2009 | 17:46
Er Ásta Möller algert fífl?
Heldur hún virkilega að Vg setji flokkshagsmuni sína fram fyrir hagsmuni þjóðarinnar? Margur heldur mig sig!
Það má svo minna á, að þetta er konan, sem skrifaði, fyrir síðustu kosningar, grein þar sem hún fullyrti ,að forseti lýðveldisins væri "ógnun við lýðræðið." Ástæðan, sem frau Möller taldi sig hafa, var sú að forsetinn myndi hugsanlega afhenda stjórnarmyndunarumboðið öðrum er foringja Sjálfgræðisflokksins, herr Haarde. Þar með væri forsetinn að ógna lýðræðinu! Gaman væri að fréttamenn ríkisfjölmiðilsins Morgunblaðsins spyrðu frau Möller um skoðun hennar á því! Kannski óli óvinur hafi brotið stjórnarskránna, þegar hann veitti SF og Vg umboðið?
![]() |
Ásta: VG hræðist að grasrótin leiti annað |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Stjórnmál og samfélag | Breytt s.d. kl. 17:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.1.2009 | 17:34
Alvarleg afglöp í starfi næg ástæða fyrir að reka þennan:
28.1.2009 | 12:05
Forsetinn og Sjálfgræðisflokkurinn.
SJÁLFGRÆÐISFLOKKURINN, STJÓRNARMYNDUNARUMBOÐIÐ OG FORSETINN.
Nú eru sjálfgræðismenn farnir að atast í forsetanum enn á ný. Á sínum tíma héldu þeir því fram að forsetinn gæti ekki skotið málum til þjóðarinnar. Neitunarvald forsetans og málskot var viðurkennt í öllu skólakerfinu og fræðimenn voru fram að þessu sammála um þennan rétt forsetans. Enda getur víst orðalag ekki orðið skýrara en stjórnarskráin um þennan rétt forsetans. En sjálfgræðisflokkurinn hélt öðru fram og kenndi í stjórnmálaskóla flokksins. Og þess vegna hlýtur það að vera rétt.
Svo gerist það rétt fyrir síðustu kosningar, að þingmaður flokksins, Ásta möller, skrifar grein, þar sem hún heldur því fram, að forsetinn sé ógnun við lýðræðið í landinu. Þarna mun Ásta hafa endurómað og afhjúpað umræður, sem áttu sér stað í innstu hringjum flokksins og á skrifstofu ritstjóra Morgunblaðsins. Ástæðan var sú hætta að sjálfstæðisflokkurinn missti stjórnarmyndunarumboð sitt, ef stjórnin missti meirihluta sinn á þingi. Þá skapaðist, sem sagt, sú hætta að flokkurinn yrði að skila umboðinu til forseta og hann gæti þá veitt hverjum sem verða vildi af flokkunum stjórnarmyndunarumboðið. Þannig yrði forsetinn ógnun við lýðræðið, skv. innstu koppum í búri sjálfgræðisflokksins. Með því að fela öðrum en formanni flokksins umboð til stjórnarmyndunar. Sjálfgræðisflokkurinn, að minnsta kosti innstu koppar, líta svo á að forsætisráðuneytið eigi að vera í þeirra höndum og engra annara. Allt annað ógni tilveru þjóðarinnar og lýðræðinu í landinu! Þetta hefur komið berlega fram í dag og í gær. Það er alveg af og frá, að flokkurinn láti forsætisráðuneytið af hendi. Þrátt fyrir að Geir H Haarde hafi hreinlega flækst fyrir með verkstjórn sinni. Fyrirtækin og heimilin í landinu sjá þess engin merki, að björgunaraðgerðir þeim til handa séu komnar í framkvæmd eða séu á döfinni. Samt telja sjálfgræðismenn af og frá að láta af forsæti í ríkisstjórninni. Þeirra er stóllinn. Allt annað er ógnun við lýðræðið.
Nú eru gammarnir farnir að atast í forsetanum eina ferðina enn. Og það vegna þess að hann benti á þá augljósu staðreynd að vald forsætisráðherra, sem sagt hefur af sér fyrir sig og ráðuneyti sitt, er takmarkaðaðra en annars, þrátt fyrir að stjórnin sitji sem starfstjórn. Við það flyst þingrofsrétturinn frá forsætisráðherra til forsetans, og sitjandi forsætisráðherra hefur einnig misst stjórnarmyndunarumboð sitt til foretans til ráðstöfunnar til annarra flokka eða formanna þeirra.Þetta er einkennileg staða. Sjálfgræðisflokkurinn telur sig eiga forsætisráðuneytið. Ef forsetinn veitir einhverjum öðrum umboð til stjórnarmyndunar, þá er það ógnun við lýðræðið.Og forsætisráðherra starfsstjórnar hefur rétt til að rjúfa þing, bjóði honum svo við að horfa. Þrátt fyrir fyrrgreinda takmörkun.
Annað sem gammarnir eru vitlausir yfir er að forsetinn gerði sig sekan um að tjá skoðanir sínar um hvað þyrfti að gerast í landinu til þess að sátt næðist með þjóðinni og ráðamönnum hennar. Samt er þetta öllum ljóst jafnt almenningi, sem forsetanum. Öllum nema gömmunum í sjálfstæðisflokknum..Sáttmáli samfélagsins hefur verið rofinn. Friðurinn rofinn. Og lögin. Og þeir sem rufu samfélagssáttmálann voru innstu koppar sjálfgræðisflokksins og gulldrengirnir þeirra.
Þennan sáttmála þarf að endurnýja, gera nýjan. Forsetinn gerði sig sekan um að benda á þessa augljósu staðreynd. Þess vegna eru gammarnir brjálaðir27.1.2009 | 22:38
Guðbjörn Guðbjörnsson Sjálfstæðismaður bloggar og GAGNRÝNIR (svíkur?) flokkinn og foringjann!
þETTA ER ATHYGLISVERÐ LESNING OG Í HÆSTA MÁTA ÓVENJULEG. Sjálfstæðismaður sem gagnrýnir flokkinn er einsog dýr í útrýmingarhættu!
Stjórnmál og samfélag | Breytt 28.1.2009 kl. 20:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)