Burt með AGS, stofnun alþjóðakapítalismans!

Losum okkur við AGS áður en það verður of seint  Áður en AGS þvingar ríkisstjórnina til að keyra hér allt niður með niðurskurði.  Þurfum við að svelta okkur gegnum þetta þá verður bara að hafa það.  Förum á danska kúrinn, en hann er skilgreindur þannig:  Maður fer til Danmerkur og þar hefur maður ekki efni á að éta!  Það er danski kúrinn!

Svo þarf forysta Vg að skipta um nafn á flokknum.  U-flokkurinn er réttnefni á flokknum eftir stefnubreytingu forystunnar, flokkseigendafélagsins.  Þessarar forystu sem gerði flokkinn að hjáleigu auðvaldsins.

Ennfremur legg ég til að sósíalistarnir í U-flokknum segi sig úr honum og leggi fram vantraust á ríkisstjórnina!  Þetta er ekki lengur hægt!  Hér veður spillingarliðið uppí í skjóli FME, Seðlabankans og ríkisstjórnarinnar. 


mbl.is Vill að AGS leggi spilin á borðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Útifundur á Austurvelli. Laugardag kl. 15.00.

égvil 

Á morgun verður útifundur á Austurvelli.   

Berjumst fyrir réttlæti!  Gegn Icesave!  Gegn ESB!  Fyrir réttlæti og jafnrétti!  Fyrir sósíalisma!  Gegn Auðvaldi og auðmönnum! 

 Mætum og sýnum samstöðum!  Mæting frá ca. 14.00

Látum ekki Hollendinga og Breta vaða yfir okkur.  Við gáfumst ekki upp fyrir yfirganginum í þorskastríðunum.  Hversvegna að gera það nú?

Rauður Vettvangur.


Birgitta: Það er ljótt að hlæja að aumingjum! Skammastu þín Ólína!

Nei,  í alvöru talað, EINELTI ER ÓLÍÐANDI, hvort heldur á vinnustöðum, skólum eða hvar sem er.  Og því miður má halda því fram að einelti hafi viðgengist á Alþingi um árabil.  Ég held því fram, að að minnsta kosti tveir þingmenn hafi sætt einelti af hálfu annarra þingmanna á fyrri kjörtímabilum.

Ófriðurinn sem skapaðist í kringum skólameistarann Ólinu Þorvarðardóttur hefur kannski verið vegna þess.  Ég veit svo sem ekkert um það en mér dettur það svona í hug í þessu sambandi.  Því miður er það þannig, að stundum heldur maður, að fólk hafi meiri siðferðisþroska en raun ber svo vitni um.  Svo virðist vera í þessu tilviki.

En kannski finnst þeim stöllum í Samfylkingunni, að það sé ekki sama hver er!  Oft er það þannig þegar meðvirkni fer í gang.  Og svo er líklegt, að"stelpurnar" haldi  vænlegt til frama að vera viðhlæjandi FORSÆTISRÁÐHERRA!


Fyrrverandi bankastjóri Werner-bræðra tjáir sig!

Ein spurning til Tryggva Þórs:  Veist þú eitthvað um samkeppni eða samkeppnishæfni?

Eða, eins Davíð heitinn (alltaf gaman að minnast á hann) sagði sællar minningar:  Á maður að taka eitthvað mark á þér?  Manni sem er búinn að reka banka í þrot!

Hann átti sína spretti líka, meðan hann var og hét!


mbl.is Laun forstjóra ríkisbanka ekki samkeppnishæf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vöxtur og vextir og vaxtavextir! Og skortur hagfræðinnar!

Hagvöxtur eykst rétt eftir að kreppunni líkur.  Það er á meðan verið er að koma nauðsynlegri þjónustu í gang og endurreisa fyrirtæki sem auðvelt er að koma í rekstur aftur.  Og síðast, fólk verslar vöru og þjónustu sem það gat verið án og  gat sparað við sig í kreppunni.  Endurnýjar eitt og annað sem gekk úr sér meðan ekki voru til peningar til að endurnýja.  Þetta er hin einfalda hagfræði heimilisins.  Byggð á almennri skynsemi.  Þarf engan langskólagenginn hagfræðing til að segja manni þetta.  Sem sagt vöxturinn tekur smá kipp, yfirskot, en hægir svo snarlega á sér aftur!

Hvað sagði Sverrir:  Guð forði mér frá hagfræðingum?  Eða hvað? 

Skilgreining Skarfsins á hagfræði nútímans:  Hagfræði er frjálshyggjukjaftæði, sem búið er að klæði í algebru-búning!  Helstu stærðir eru klæddar í feluhugtakið "skort" og um þær stærðir snúast dæmin sem hagfræðingur sveitist við að leysa alla daga!

Feluhugtak= hugtak sem tjáir eitthvað allt annað en nafnið sem það ber!  Stöku sinnum er þó beint samband milli nafnsins og inntaksins.


mbl.is Hraður vöxtur eftir kreppu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefðu betur látið það ógert!

Litháar hefðu kannski átt að kanna hvort íslenska þjóðin óskaði eftir svona trakteringum.  Hugsanlega er það nefnilega í óþökk meirihluta Íslendinga að fá svona yfirlýsingar.  Kannski hefur ráðuneyti utanríkismála ekki upplýst þá um sannleikann.  Heldur aðeins óskir Samfylkingarinnar!

Fer Össur um lönd með hálfsannleik,  þ.e.a.s. lygi?  Ef svo er hlýtur hann að vera í einkaerindum!


mbl.is Litháíska þingið styður aðild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú á að selja undan þjóðinni!

Glæpahneigðin brýst fram með misjafnlegum hætti!  Einn brýst inn, annar selur erlendum auðhringum aðgang að orkufyrirtækjum landsins.  Einn brýtur lög, meðan hvítflibbinn fremur samfélagslegan glæp.  Athugið að hinn síðari varðar ekki við lög, og telst því ekki glæpur lögum samkvæmt!
mbl.is Kaupir 11% hlut HS Orku af Geysi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Förum á Austurvöll að mótmæla!

égvil
mbl.is Mótmæli gegn Icesave á Austurvelli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er eftirspurn eftir útbrunnum og gerspilltum íslenskum stjórnmálamönnum í ESB?

Ég hélt að þeir ættu nóga slíka.  Íslensk þjóð er búin að fá nóg af spillingunni og vill siðbót þjóðfélagsins.  Siðbót sækjum við ekki í Evrópusambandið!  Efnahagslífið er í rúst.  Í hruninu töluðu margir um nauðsyn siðbótar og endurreisnar siðferðis í landinu.  Það hefur ekkert gerst í þeim málum og opinber umræða um málið er engin.  Öll umræða hefur snúist um fjármálalífið og nánast einsog fyrirtæki í þeim bransa hafi verið einu fyrirtækin í landinu.  Flestar aðgerðir hafa snúið að fjármálafyrirtækjum.  Hér hafa farið fram samhæfðar björgunaraðgerðir miðaðar við kapítalismann og kapítalistana!  Annað hefur varla verið á dagskránni.  Að endurreisa 2007!  Vonir standa til að aðgerðirnar drepi sjúklinginn!


mbl.is Össur: Ísland hefur margt að bjóða ESB
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

HVAÐA REIÐI? Sárafáir mótmæla á Austurvelli!

égvil          óskólafíamótm                hjolastóllmótm1               Undanfarnar vikur hafa nokkrar alþýðuhetjur mótmælt Icesave og ESB/EU daglega eftir hádegið!  Það eru ekki nema sárafáir sem hafa sýnt áhuga fyrir mótmælum þessum, og þá helst útlendir ferðamenn!  Ég hef komið þarna við stöku sinnum og telst því ekki til þessa alþýðuhetja, svo það sé á hreinu.  Ég skora á alla sem vetlingi geta valdið  að mæta og mótmæla Icesavesamningnum og/eða ESB.  EKKI SITJA EINN/EIN HEIMA MEÐ ÁHYGGJURNAR OG REIÐINA!

                                           andres      bjarni


mbl.is Fjallað um reiði Íslendinga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stefna forystumanna ríkisstjórnarflokkanna: Skjóta fyrst og spyrja svo! EF ÞEIR NENNA ÞVÍ ÞÁ!

  Stefna forystumanna ríkisstjórnarflokkanna í Icesave-málinu og  ESB hefur verið sú að skjóta fyrst og spyrja svo.  Ef hún nennir því þá á annað borð!

   Aðfarir ríkisstjórnarinnar í ESB/EU-málum minnir á þegar menn voru munstraðir í Heimdall í gamla daga.  Fyrst voru þeir skráðir inn og svo voru þeir spurðir.  Oft fréttu þeir utanaðfrá að þeir væru skráðir Heimdellingar.  Þjóðin er munstruð fyrir umsókn um aðild að Evrópusambandinu og svo verður hún spurð hvort hún hafi viljað það; seinna.  Maður nennir varla að hafa það hangandi yfir sér að þurfa að spyrja þjóðina.  Afgreiðum málið bara í hasti fyrir sumarfrí.  Því í sumarfrí þurfum við að komast; í lax og í golf!  Kannski verður þjóðin bara aldrei spurð, enda má efast um að hún sé þjóðin!

  Icesave-málið hefur fengið þvílíka meðhöndlun þeirra sem um hafa vélað, að stórlega má efast um að þeir hafi spurt um eða kynnt sér alla málavexti áður en samið var.  Reyndar má segja, að yfirskyttan í því máli hafi verið allt í senn blind, siðlaus og heyrnarlaus fyrir utan að fyrirlíta þjóðin"Ég nennti bara ekki að hafa þetta hangandi yfir mér lengur."  Var það ekki einhvern veginn svona sem yfirskyttan tjáði sig um skyldur sínar við landið, þjóðina og framtíð hennar. 

Maður verður náttúrulega að skilja, að menn vilji komast í sinn lax og sitt golf! 

 

Hér kemur smáaletrið: Það er kannski búið að semja um ESB/EU?  Sagan segir nefnilega, að samningurinn um Icesave hafi verið tilbúinn fyrir kosningar.


mbl.is Hvorki fyrirvarar né frestun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þingmenn eru misjafnlega merkilegir...

alf

...með sig.  En þessi er með þeim merkilegri, að eigin áliti!  Meðlimur í flokkseigendafélaginu og elítu landsins.  Fyrrverandi róttæklingur, já, einu sinni þótti meira að segja fínt að vera róttækur.  Og þá voru róttæklingar margir!  En ekki lengur...


Óttastjórnun! Óttaslegin...hvað? Hóta hverju?

Að stjórna með hótunum er gamalkunnug aðferð.  Síðan elstu menn muna hefur það verið aðferðin til að fá verkalýðshreyfinguna til að samþykkja vonda kjarasamninga.  Í seinni tíð hefur minna borið á þessu því forystan hefur orðið sílítilþægari.  Og nátengdar SA og ríkisvaldinu í hinum stórvaxna rottukóngi valdsins.

Ef þið samþykkið ekki samninginn fer þjóðfélagið á hliðina!  Hver man ekki eftir þessum málflutningi?  Nú er þessu beitt til að fá þingmenn og þjóðina til að kyngja Icesave-samningnum.  Á nákvæmlega sama hátt og launþegar hafa verið hræddir til að samþykkja kjarasamninga, sem gerðu EKKI ráð fyrir að hægt væri að lifa á afrakstri dagvinnunnar.  Og hvenær hefur það gengið eftir?  Aldrei! Þjóðfélagið hefur aldrei farið á hliðina þó samningar hafi verið felldir.  Þrátt fyrir allar hótanir! 

Ef þið samþykkið ekki... 

Eigum við ekki bara að taka þá áhættu og vita hvort einhver innistæða er fyrir þessum hótunum ?


mbl.is Óttaslegin utanríkismálanefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Samkomulagið við Evrópusambandið 14.11.2008.

      

 

Beint í Leiðarkerfi vefins.

 

Gerast áskrifandi að fréttum forsætisráðuneytis

Fréttir

Samkomulag næst við

 Evrópusambandið fyrir hönd

 Hollendinga og Breta - Greiðir

 fyrir láni frá

Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (IMF)

16.11.2008

Mikilvægur áfangi hefur náðst til lausnar deilunnar um innstæðutryggingar vegna íslenskra bankaútibúa á Evrópska efnahagssvæðinu og stöðu sparifjáreigenda í þeim. Viðræður Íslands við nokkur Evrópusambandsríki, sem komust á fyrir tilstilli Frakklands sem nú fer með formennsku í Evrópusambandinu, leiddu til samkomulags um viðmið sem lögð verða til grundvallar frekari samningaviðræðum.

Samkomulagið felur í sér að íslensk stjórnvöld ábyrgjast lágmarkstryggingu þá sem EES-reglur mæla fyrir um til innstæðueigenda í útibúum bankanna erlendis. Endanlegur kostnaður ríkissjóðs vegna þessa mun ráðast af því hvað greiðist upp í innstæðutryggingar af eignum bankanna. Einnig er kveðið á um að Evrópusambandið, undir forystu Frakklands, taki áframhaldandi þátt í að finna lausnir sem gera Íslandi kleift að endurreisa fjármálakerfi og efnahag.

Aðilar eru ásáttir um að hraða fjárhagslegri aðstoð við Ísland, þar með talið samþykkt lánafyrir­greiðslu sem beðið hefur samþykktar stjórnar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) undanfarnar vikur. Erindi Íslands hjá IMF verður tekið til afgreiðslu hjá sjóðnum miðvikudaginn 19. nóvember.

Umsamin viðmið

  1. Ríkisstjórn Íslands hefur átt viðræðufundi með stofnunum Evrópusambandsins og hlutaðeigandi aðildarríkjum þess um skuldbindingar Íslands samkvæmt samningnum um Evrópska efnahagssvæðið að því er tekur til tilskipunar um innstæðutryggingar 94/19/EB. Aðilar komu sér saman um að tilskipunin um innstæðutryggingar hafi verið felld inn í lög­gjöf­ina um Evrópska efnahagssvæðið í samræmi við samninginn um Evrópska efnahags­svæð­ið og gildi því á Íslandi með sama hætti og hún gildir í aðildarríkjum Evrópusambandsins.
  2. Viðurkenning allra aðila á þessari lagalegu stöðu greiðir fyrir skjótri niðurstöðu samninga­viðræðna þeirra sem nú standa yfir um fjárhagsaðstoð við Ísland, þ.m.t. við Alþjóða­gjald­eyris­sjóðinn. Þessar samningaviðræður skulu fara fram með samhæfðum og samræmdum hætti og skal þar tekið tillit til hinna erfiðu og fordæmislausu aðstæðna sem Ísland er í og knýjandi nauðsynjar þess að ákveða ráðstafanir sem gera Íslandi kleift að endurreisa fjármála- og efnahagskerfi sitt.
  3. Stofnanir Evrópusambandsins og Evrópska efnahagssvæðisins munu taka áframhaldandi þátt í þessu ferli sem fer fram í samráði við þær.

Reykjavík 16. nóvember 2008


mbl.is „Erfitt en verður að leysast"
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það fer enginn í fötin hans Vilhjálms!

 

straightjacket

"As an Icelander, I do not accept the authority of the present government of Iceland."

("Sem Íslendingur fellst ég ekki á völd núverandi ríkisstjórnar Íslands.")

http://postdoc.blog.is/blog/postdoc/entry/916096/


Standpínufélag á facebook vill vekja upp draug!

daviðí búning

Dramadrottning á AMX! Icesave.

Fréttaskýring AMX: Icesave er Rússnesk rúlletta, og Steingrímur hefur lagt pólitískt líf sitt undir! 

Finnst skynsömu fólki líklegt að pólitísku lífi Steingríms sé þar með lokið  felli þingið Icesave-frumvarpið?  Er nú ekki betra á halda sig við jörðina en að láta einsog móðursjúk unglingsstúlka?http://www.amx.is/stjornmal/8435/


Hversvegna ekki var farið með Icesave fyrir Alþjóðdómstólinn.

  Færsla á heimasíðu Baldurs McQueen.  Í athugasemdum kemur fram að Íslendingar hafa aldrei viðurkennt Alþjóðadómstólinn, og þar með var ekki hægt að fara með málið fyrir hann.  Það skrifast þá væntanlega á fyrri ríkisstjórnir að hafa trassað það um árabil.  Hver var aftur dómsmálaráðherra í síðustu ríkisstjórn?  Og hverjir voru forsætisráðherrar síðustu tvo áratugi t.d.? 

"Á vefsíðu Alþjóðadómstólsins í Haag birtist eftirfarandi klausa, sem ég skil á þann veg að þjóðir sem viðurkenna "sjálfvirka" lögsögu dómstólsins, geti sótt mál á hendur annarra þjóða án samþykkis þeirra, svo fremi báðar hafi undirgengist nefnda viðurkenningu á lögsögu.

The States parties to the Statute of the Court may "at any time declare that they recognize as compulsory ipso facto and without special agreement, in relation to any other State accepting the same obligation, the jurisdiction of the Court" (Art 36, para. 2 of the Statute).
Each State which has recognized the compulsory jurisdiction of the Court has in principle the right to bring any one or more other State which has accepted the same obligation before the Court by filing an application instituting proceedings with the Court, and, conversely, it has undertaken to appear before the Court should proceedings be instituted against it by one or more such other States.
(Alþjóðadómstólinn í Haag - Declarations Recognizing the Jurisdiction of the Court as Compulsory)
Á vefsíðunni er listi yfir 66 lönd sem hafa þannig viðurkennt lögsögu dómstólsins, t.d. Holland, Bretland og öll Norðurlöndin, að Íslandi undanskyldu.

Nú spyr ég fróðari menn; ber mér að skilja þetta svo, að ástæða þess Íslendingar geta ekki þvingað Breta til Haag, sé að íslenska þjóðin hafi ekki fengist til að viðurkenna lögsögu dómstólsins samkvæmt ofangreindum ákvæðum?"

Höf.  Baldur McQueen.  http://www.baldurmcqueen.com/index.php/2009/Spurning-til-logfroora-Alþjooadomstoll.html


Egill Helgason á leið til Brussel?

Sú saga er sögð af ýmsum, að Egill hyggist gerast lobbyisti í Brussel.  Mun vera gott uppúr því að hafa fyrir góða málamenn og heimsborgara.  Hvort þetta er satt eða logið, kemur bara í ljós!

Hinir pólitísku uppvakningar!

Eru nú pólitískir uppvakningar orðnir “in”. Fyrst Davíð og svo Ingibjörg. Það er þá víðar sinubruni í grasrótinni en Sjálfstæðisflokknun!

Ef við Íslendingar höfum fengið nóg af spillingu stjórnmálamanna, embættismanna og fjármálamógúla ættum við að taka á okkur stóran krók til að forðaast Evrópusambandið! Það var eihverntíma byggt á hugsjónum en er í dag apparat sem snýst um að viðhalda sjálfu sér og þægilegu líf spilltrar hirðar 30.000 embættismanna!

Tilefnið eru "endurkomur" Do og ISG inní stjórnmálaumræðuna!

http://eyjan.is/blog/2009/07/17/ingibjorg-solrun-umsokn-i-esb-naudsynlegur-leidangur-icesave-samningar-eru-oskyld-malefni/


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband